Skil sæstrengshóps frestast til júníloka

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra, eftir fund þeirra í október.
David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, eftir fund þeirra í októ­ber. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinnu­hópur sem skip­aður var til að kanna mögu­lega teng­ingu Íslands og Bret­lands í gegnum sæstreng mun ekki skila af sér nið­ur­stöðum sínum fyrr en í lok júní. Þegar hóp­ur­inn var skip­aður, í kjöl­far tví­hliða­fundar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra með Davið Cameron þann 28. októ­ber 2015, var greint frá því í frétta­til­kynn­ingu að hóp­ur­inn ætti að skila af sér nið­ur­stöðu innan sex mán­aða, eða fyrir apr­íl­lok.

Samkvæmt svörum frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem leiðir vinn­una fyrir Íslands hönd, hafa skilin nú dreg­ist um tvo mán­uði. Hópurinn hefur það hlut­verk að finna út verð og magn raf­orku sem hægt væri að selja í gegnum sæstreng frá Íslandi til Bret­lands. DV greindi frá því í nóv­em­ber að Benedikt Gíslason sé full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í íslensku verk­efna­stjórn­inni sem hafi það verk­efni að eiga í við­ræð­unum við Breta. Þar sitji einnig Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­gjafi Sig­mundar Davíðs. Auk þeirra sitja í verk­efna­stjórn­inni þau Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, Þórður Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Lands­nets, og Ingvar Már Pálsson, skrif­stofu­stjóri iðn­aðar- og orku­mála í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Í til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins frá októ­ber í fyrra sagði að Sig­mundur Davíð hefði fyr­ir­vara um lagn­ingu sæstrengs. „Forsenda fyrir mögu­legri lagn­ingu sæstrengs í fram­tíð­inni væri að raf­orku­verð til heim­ila og fyr­ir­tækja hækki ekki. Eðlilegt er þó að eiga við­ræður við Breta um þau efna­hags­legu og félags­legu áhrif sem lagn­ing sæstrengs á milli land­anna gæti haft í för með sér.“

Katrín Lilja Jóns­dóttir, meist­ara­nemi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands, skrif­aði ítar­lega frétta­skýr­ingu um mögu­legan sæstreng milli Íslands og Bret­lands á Kjarnann í mars síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár