Sólveig: „Stjórnmálin hafa brugðist verka-og láglaunafólki“

Formaður Eflingar segir stjórn­mála­stétt­ina ganga erinda auð­manna með því að vernda hags­muni, eignir og gróð­ar­mögu­leika þeirra.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir nauð­syn­legt að setja kap­ít­al­ism­anum stól­inn fyrir dyrnar. Einnig segir hún stjórn­málin hafa brugð­ist verka-og lág­launa­fólki með inn­leið­ingu nýfrjáls­hyggj­unnar í stað þess að hemja til­ætl­un­ar­semi og græðgi auð­valds­kerf­is­ins. Þetta segir Sólveig í pistli sínum á vef­svæði Eflingar sem birt­ist fyrr í dag.

Í pistl­inum fór Sólveig um víðan völl, en henni var tíð­rætt um hlut laun­þega og atvinnu­rek­enda í að halda efna­hags­legum stöð­ug­leika hér að landi. Hún kall­aði þá sögu­skoðun sem hverf­ist í kringum óða­verð­bólgu­tíma­bilið um 1980 „marg­tuggna“ og „örþreytta“ og velti því upp hvort rót óstöð­ug­leik­ans í íslensku efna­hags­lífi sé „sjálftöku­fólkið [og] ofur­launa­menn­irnir“ sem leiddu af sér efna­hags­hrunið.

Í ljósi þess eigi áróð­urs­deildir sér­hags­muna­afl­anna mikið verk fyrir höndum. Samkvæmt Sólveigu þurfa þeir að sann­færa íslenskan almenn­ing um að það sem leiði þjóð­fé­lagið til and­skot­ans séu vonir fólks um sann­gjarna verð­lagn­ingu en ekki „inn­an­tóm papp­írs­við­skipti útþan­ins og ofal­ins fjár­mála­kerfis auð­stétt­ar­innar.“

Kerfið útbúið „til að svína á okkur“

Sólveig segir ekki vera skrýtið að við upp­lifum að kerfið sé útbúið í þeim til­gangi að svína á okkur, þegar við sjáum hversu mikið hin efna­hags­lega for­rétt­inda­stétt upp­sker í upp­sveiflum og hversu lítið með­limir hennar láta kreppur og krísur á sig fá.

Á sama tíma og auð­menn­irnir haldi fast í völd sín fjölgi umsóknum í sjúkra­sjóði verka­lýðs­fé­laga hins vegar stöðugt, ásamt því að launa­kröfum sem Efling sendir út fjölgi og met­fjöldi fólks hafi í þjón­ustu hjá VIRK á síð­asta ári. Aukin skatt­byrði hjá fólki með lágar tekjur, nið­ur­skurður í barna-og vaxta­bóta­kerf­inu ásamt því að grafið sé undan öllum kerfum sem lág­tekju­hóp­arnir reiða sig á, segja, að mati Sól­veigar, mjög skýra sögu af því í þágu hverra hags­muna hefur verið unnið und­an­farna ára­tugi.

Segir stjórmálin hafa brugðist

Að mati Sól­veigar hefur stjórn­mála­stéttin sam­þykkt að vera ávallt fyrst og fremst fram­kvæmda­stjórar inn­leið­ingar nýfrjáls­hyggj­unnar og hafi því brugð­ist verka-og lág­launa­fólki. Hún segir að þau sem fara með póli­tísk völd eigi að axla þá ábyrgð að hemja til­ætl­un­ar­semi og græðgi auð­valds­kerf­is­ins, en í stað þess hefur hún geng­ist inn á það að meg­in­verk­efnið sé að gæta að stöð­ug­leika með því að vernda hags­muni, eignir og gróð­ar­mögu­leika atvinnu­rek­enda.

Enginn pólitískur vilji eða hugrekki til staðar

Undir lok pistils­ins segir Sólveig ýmis vanda­mál steðja að heims­byggð­inni allri, þar á meðal hnatt­ræna hlýnun og fjórðu iðn­bylt­ing­una. Þau ógni okkur öllum, ekki síst vegna þess að eng­inn póli­tískur vilji eða hug­rekki sé til staðar til að gera það sem þarf, að setja kap­ít­al­ism­anum stól­inn fyrir dyrnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár