Niðurskurðarstefna í kreppu sem virkaði ekki, viðtal við James Meadway

James Meadway er aðal­hag­fræð­ingur New Economics Foundation (NEF), sem er hug­veita í London. Meg­in­mark­mið NEF eru að fást við hag­fræði­legar lausnir sem stuðla að rétt­læti í félags-, efna­hags- og umhverf­is­málum.

Í apríl 2013, birti NEF skýrslu eftir James Meadway um nið­ur­skurð­ar­stefnu stjórn­valda í Bret­landi eftir kreppu.

Að hans mati var stefnan byggð á tveimur for­sendum sem ekki stóð­ust. Í fyrsta lagi var því haldið fram að einkager­inn myndi fylla það skarð sem skap­að­ist með nið­ur­skurði. Raunin er sú að fjár­fest­ingar hafa verið langt undir spám og sýna ekki nægan bata. Í öðru lagi, gerði stefnan ráð fyrir vexti í útflutn­ingi. Þrátt fyrir fall punds­ins um tutt­ugu pró­sent frá árinu 2007, hefur útflutn­ingur verið óstöð­ugur og ekki vaxið sem skyldi.

Í við­tali við Kjarnann, talar Meadway um hvað þessi stefna hefur leikið breskt sam­fé­lag grátt og færir rök fyrir því hvers vegna aðrar lausnir, sem byggja á skyn­sam­legri dreif­ingu gæða, séu lík­legri til árang­urs. Meadway og félagar hafa kynnt sér mál­efni Íslands og ræðir hann m.a. reynslu Íslands af fjár­málakrepp­unni í þessu áhuga­verða við­tali.

https://vimeo.com/122188644

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Myndband

SkýringMyndband

Popúl­ismi ekki ólýð­ræð­is­legur en kannski óæski­legur, við­tal við Chantal Mouffe

Chantal Mouffe er pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Uni­versity of Westminster í London og er meðal aðstand­enda rann­sókna­set­urs­ins, Center for the Study of Democracy. Hennar þekkt­ustu bækur heita Agonistics, The Return of the Political, The Dimension of Radical Democracy og Hegemony and Socialist Strategy sem hún skrif­aði ásamt Ernesto Laclau. Hún hefur fært rök fyrir því að stjórn­mál í Evrópu séu...
SkýringMyndband

Upphaf hruns nýfrjáls­hyggj­unnar - við­tal við Paul Mason

Paul Mason, við­skipta­rit­stjóri Channel 4 News, hefur verið áber­andi í umfjöllun sinni um þá sögu­legu atburða­rás sem hófst með efna­hag­skrepp­unni árið 2008. Áður en hann hóf störf á Channel 4 News var hann við­skipta­rit­stjóri frétta­skýr­inga þátt­ar­ins Newsnight á BBC. Í miðju Arabíska vor­inu, skrif­aði hann frægan pistil sem bar nafnið “Twenty rea­sons why it’s kicking off everywhere”. Þar setti hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár