Popúlismi ekki ólýðræðislegur en kannski óæskilegur, viðtal við Chantal Mouffe

Chantal Mouffe er pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Uni­versity of Westminster í London og er meðal aðstand­enda rann­sókna­set­urs­ins, Center for the Study of Democracy. Hennar þekkt­ustu bækur heita Agonistics, The Return of the Political, The Dimension of Radical Democracy og Hegemony and Socialist Strategy sem hún skrif­aði ásamt Ernesto Laclau.

Hún hefur fært rök fyrir því að stjórn­mál í Evrópu séu í „póst-póli­tísku“ ástandi. Í við­tali við Sigríði Tulinius, útskýrir hún að með hug­tak­inu eigi hún við að það sé lít­ill sem eng­inn munur á milli hinna hefð­bundnu miðju-vinstri flokka og miðju-hægri flokka. Þeir bjóði upp á keim­lík afbrigði af sömu póli­tík. Miðju-hægri flokk­arnir boða nýfrjáls­hyggu og eini val­kost­ur­inn sem miðju-vinstri flokk­arnir veita er örlítið mann­úð­legri útgáfu af nýfrjáls­hyggju. Þetta
sam­komu­lag miðju­flokk­ana gefur kjós­endum lít­inn val­kost og hefur alvar­leg áhrif á lýð­ræðið. Afleið­ingar þessa póst-póli­tíska ástands er að fólk missir áhuga á póli­tík því það skiptir í raun­inni litlu máli hvort er kosið til hægri eða vinstri. Birt­inga­mynd þessa áhuga­leysis kemur best fram í minnk­andi kosn­inga­þát­töku í Evrópu.

Önnur afleið­ing þess ástands, að mati Mouffe, er vax­andi stuðn­ingur við popúl­íska flokka í Evrópu. Þessir flokkar skapa ný póli­tísk mörk, en mörkin eru dregin á milli "fólks­ins” og "ráð­andi afla”. Þessi þróun er oft talin nei­kvæð en Mouffe segir að pópu­l­ismi í sjálfu sér sé ekki ólýð­ræð­is­legur. Aftur á móti, þarf að hugsa hvernig popúl­ismi sé æski­legur. Í við­tal­inu fer hún ítar­lega yfir þessar hug­myndir og setur þær í sam­hengi við ástandið í Evrópu í dag.

https://vimeo.com/124019870

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Myndband

SkýringMyndband

Nið­ur­skurð­ar­stefna í kreppu sem virk­aði ekki, við­tal við James Meadway

James Meadway er aðal­hag­fræð­ingur New Economics Foundation (NEF), sem er hug­veita í London. Meg­in­mark­mið NEF eru að fást við hag­fræði­legar lausnir sem stuðla að rétt­læti í félags-, efna­hags- og umhverf­is­málum. Í apríl 2013, birti NEF skýrslu eftir James Meadway um nið­ur­skurð­ar­stefnu stjórn­valda í Bret­landi eftir kreppu. Að hans mati var stefnan byggð á tveimur for­sendum sem ekki stóð­ust. Í fyrsta...
SkýringMyndband

Upphaf hruns nýfrjáls­hyggj­unnar - við­tal við Paul Mason

Paul Mason, við­skipta­rit­stjóri Channel 4 News, hefur verið áber­andi í umfjöllun sinni um þá sögu­legu atburða­rás sem hófst með efna­hag­skrepp­unni árið 2008. Áður en hann hóf störf á Channel 4 News var hann við­skipta­rit­stjóri frétta­skýr­inga þátt­ar­ins Newsnight á BBC. Í miðju Arabíska vor­inu, skrif­aði hann frægan pistil sem bar nafnið “Twenty rea­sons why it’s kicking off everywhere”. Þar setti hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár