Upphaf hruns nýfrjálshyggjunnar - viðtal við Paul Mason

Paul Mason, við­skipta­rit­stjóri Channel 4 News, hefur verið áber­andi í umfjöllun sinni um þá sögu­legu atburða­rás sem hófst með efna­hag­skrepp­unni árið 2008. Áður en hann hóf störf á Channel 4 News var hann við­skipta­rit­stjóri frétta­skýr­inga þátt­ar­ins Newsnight á BBC. Í miðju Arabíska vor­inu, skrif­aði hann frægan pistil sem bar nafnið “Twenty rea­sons why it’s kicking off everywhere”.

Þar setti hann í sam­hengi þau fjöl­mörgu upp­þot og mót­mæla­hreyf­ingar sem spruttu upp um allan heim á þessum árum. Þessi pist­ill varð síðar að bók­inni, “Why it’s kicking off everywhere” þar sem hann færði rök fyrir því að þessi atburða­rás mark­aði byrj­un­ina á falli hug­mynda­fræði nýfrjáls­hyggj­unnar.

Í við­tali við Kjarnann, sem Sigríður Tulinius tók, talar hann um að hug­mynda­fræði nýfrjáls­hyggj­unnar hafi verið ein­stök í sögu kap­ít­al­ism­ans því að ólíkt fyrri efna­hags­mód­elum hafi hún ekki aukið lífs­gæði heldur lækkað lífs­gæði meiri­hluta fólks. Aftur á móti, segir hann að nýfrjáls­hyggjan hafi skapað stór­kost­legar tækninýj­ungar sem hafi mikla mögu­leika sem verið er að halda niðri með núver­andi efna­hags­stjórnun. Í vænt­an­legri bók hans, “Postcapitalism – A Guide To Our Future”, færir hann rök fyrir því hvernig hægt sé að losa um þessar hömlur og nýta tækninýj­ung­arnar til þess að skapa sam­fé­lag þar sem fólk þarf að vinna minna, þar sem ríkir meiri sátt í þjóð­fé­lag­inu, þar sem hús­næði og matur er ódýr og þar sem nýsköpun er verð­launuð en ekki ein­okun líkt og undir núgild­andi efna­hag­stjórnun.

https://vimeo.com/120955219

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Myndband

SkýringMyndband

Popúl­ismi ekki ólýð­ræð­is­legur en kannski óæski­legur, við­tal við Chantal Mouffe

Chantal Mouffe er pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Uni­versity of Westminster í London og er meðal aðstand­enda rann­sókna­set­urs­ins, Center for the Study of Democracy. Hennar þekkt­ustu bækur heita Agonistics, The Return of the Political, The Dimension of Radical Democracy og Hegemony and Socialist Strategy sem hún skrif­aði ásamt Ernesto Laclau. Hún hefur fært rök fyrir því að stjórn­mál í Evrópu séu...
SkýringMyndband

Nið­ur­skurð­ar­stefna í kreppu sem virk­aði ekki, við­tal við James Meadway

James Meadway er aðal­hag­fræð­ingur New Economics Foundation (NEF), sem er hug­veita í London. Meg­in­mark­mið NEF eru að fást við hag­fræði­legar lausnir sem stuðla að rétt­læti í félags-, efna­hags- og umhverf­is­málum. Í apríl 2013, birti NEF skýrslu eftir James Meadway um nið­ur­skurð­ar­stefnu stjórn­valda í Bret­landi eftir kreppu. Að hans mati var stefnan byggð á tveimur for­sendum sem ekki stóð­ust. Í fyrsta...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár