Michael Moore reyndi að heimsækja hvítflibbafanga á Kvíabryggju

Ísland er í aðal­hlut­verki í nýj­ustu heim­ild­ar­mynd Michael Moore. Þar er m.a. fjallað um upp­gjör Íslands við efna­hags­hrunið og fang­els­is­mál á Íslandi.

Michael Moore fyrir utan Keflavíkurflugvöll þegar hann yfirgaf landið í maí 2015.
Michael Moore fyrir utan Kefla­vík­ur­flug­völl þegar hann yfir­gaf landið í maí 2015.

Ísland leikur stórt hlut­verk í nýrri heim­ild­ar­mynd kvik­mynda­gerð­ar­manns­ins Michael Moore, sem sýnd hefur verið á kvik­mynda­há­tíðum í haust og var frum­sýnd völdum hluta almenn­ings á Þor­láks­messu. Hún verður í sýn­ingu í eina viku til að vera gjald­geng til Ósk­arsverð­launa næsta árs en verður svo tekin aftur úr sýn­ingu þangað til í febr­úar. Mynd Moore heitir Where to Invade next og með henni vildi Moore að kynna það besta í Evrópu fyrir sam­löndum sínum. Í mynd­inni ferð­ast Moore til Íslands, Finn­lands, Noregs, Ítalíu og fleiri landa til að stela góðum hug­myndum land­anna sem virka við sam­fé­lags­upp­bygg­ingu í þeim til­gangi að flytja þær með sér aftur til Banda­ríkj­anna. Myndin er ein þeirra heim­ild­ar­mynda sem kemur til greina þegar til­nefn­ingar til Ósk­arsverð­launa fyrir bestu heim­ild­ar­mynd á næstu verð­launa­há­tíð.

Moore dvaldi hér­lendis í maí síð­ast­liðnum og hvíldi mikil leynd yfir ástæðum þess að kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn var staddur hér­lendis. Hann hitti þó margt fólk og á meðal þeirra sem Moore fund­aði með á meðan að á tveggja daga dvöl hans stóð voru Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, fjár­festir­inni Halla Tóm­as­dóttir, Margrét Krist­manns­dóttir, Hafdís Jóns­dóttir í World Class, Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrrum for­seti Íslands og Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari. Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, greindi frá því í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 2 á meðan að Moore var hér­lendis að hann hefði vakið hann með sím­tali þá um morg­un­inn og til stæði að þeir ættu fund síðar sama dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans varð aldrei af þeim fundi.

Reyndu að ná tali af útrásarvíkingum

Mikil leynd hvíldi yfir ástæðum þess að Moore kom til Íslands og héldu ýmsir íslenskir fjöl­miðlar því upp­haf­lega fram að hann væri að vinna að heim­ild­ar­mynd um íslenska heil­brigð­is­kerfið. Það reynd­ist ekki rétt.

Hér­lendis kynnti Moore, og fjöl­mennt teymi hans, sér meðal ann­ars stöðu jafn­rétt­is­mála, póli­tískan akti­visma sem hefur skilað grund­vall­ar­breyt­ingum í stjórn­málum, fang­els­is­mál og upp­gjör Íslands við efna­hags­hrunið. Í tveimur síð­ar­nefndu hlut­unum fólst meðal ann­ars að Moore ræddi við Ólaf Þór Hauksson, sér­stakan sak­sókn­ara, auk þess sem fram­leiðsluteymi hans reyndi að fá við­tal við þá banka­menn sem hlutu dóma í Al Thani-mál­inu sem nú afplána langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju og vildu fá að heim­sækja hið opna fang­elsi. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans vildu þeir ekki ræða við kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn og reynt var að koma í veg fyrir að aðstoð­ar­fólk hans færi að Kvía­bryggju til að mynda. Sú við­leitni skil­aði þó ekki árangri. Þá reyndi teymi Moore að ná sam­bandi við aðra íslenska banka- og við­skipta­menn sem léku stórt hlut­verk í risi og falli íslenska efna­hagsund­urs­ins á árunum fyrir og eftir banka­hrun.

Moore er einn þekkt­asti heim­ild­ar­gerð­ar­maður í heimi og hefur vakti fyrst athygli fyrir mynd­ina á Roger and Me, sem fjallað áhrif þess að General Motors lok­aði verk­smiðjum sínum í heima­borg Moore, Flint í Michigan-fylki. Hann hlaut síðan Ósk­arsverð­laun fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Bowling for Columbine, sem fjall­aði um hræði­leg fjöldamorð tveggja skóla­pilta í bænum Columbine og byssu­menn­ing­una í Banda­ríkj­unum.

Árið 2004 kom svo út myndin Fahren­heit 9/11, sem fjallar um Banda­ríkin í kjöl­far árásanna sem áttu sér stað 11. sept­em­ber 2001. Sérstöku ljósi var beint að George W. Bush, for­seta lands­ins, og sam­bandi fjöl­skyldu hans við Osama Bin Laden, sem bar ábyrgð á árás­unum. Myndin var gríð­ar­lega umdeild en feyki­vin­sæl og fékk meðal ann­ars æðstu verð­laun kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Cannes, Gullpálmann. Fahren­heit 9/11 er enn þann dag í dag sú heim­ild­ar­mynd sem hefur halað inn mestar tekjur í sög­unni, en í ágúst 2012 hafði hún tekið inn meira en 200 millj­ónir dala, um 26,4 millj­arða króna. Árið 2005, þegar athyglin vegna Fahren­heit 9/11 var sem mest, var Moore á lista tíma­rits­ins Time yfir 100 áhrifa­mesta fólk í heimi.

Þekkt­ustu myndir sem Moore hefur gert síðan eru Sicko og Capitalism: A love story. Hann hefur auk þess skrifað fjöl­margar bækur og gert þrjár sjón­varps­þátt­araðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár