Heimsfaraldurinn rekur unga Íslendinga aftur heim í foreldrahús

Hlutfall ungra Íslend­inga sem búa heima hjá for­eldrum sínum hefur farið úr 42 í 70 pró­sent á innan við ári. Ljóst er að COVID-19 spilar þar stóra rullu, en atvinnu­leysi hjá 18-24 ára hefur auk­ist um 134 pró­sent á einu ári.

Hlutfall þeirra lands­manna á aldr­inum 18-24 ára sem býr í for­eldra­húsum hefur stór­auk­ist und­an­farið ár, og sér­stak­lega eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á snemma á árinu 2020. Í lok árs 2019 var hlut­fall þeirra lands­manna á því ald­urs­bili sem bjó í for­eldra­húsum 42 pró­sent. Í síð­ustu könnun sem Zenter gerði fyrir Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, í ágúst síð­ast­liðnum, var það hlut­fall hins vegar komið upp í 70 pró­sent.

Frá þessu er greint í umfjöllun á síðu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Þar segir að um gríð­ar­lega aukn­ingu sé að ræða á skömmum tíma og ljóst sé að heims­far­ald­ur­inn spili þar stórt hlut­verk. „Því eru sterkar vís­bend­ingar um að COVID-far­aldur sé að koma einna verst niður á unga fólk­inu og að það sé fast í for­eldra­húsum og sé hvorki að leita inn á leigu­markað né í eigið hús­næði um þessar mundir.“

Stóraukið atvinnuleysi vigtar þungt

Mikill sam­dráttur í ferða­þjón­ustu og tengdum þjón­ustu­geirum þar sem margt ungt fólk hefur að jafn­aði starfað, hefur leitt til þess að fjöldi þeirra sem eru á aldr­inum 18-24 ára sem eru atvinnu­lausir hefur stór­auk­ist.

Í lok októ­ber í fyrra voru 920 ein­stak­lingar á því ald­urs­bili án atvinnu. Í lok októ­ber 2020 taldi sá hópur 2.157 og því hefur atvinnu­lausum ung­mennum fjölgað um 1.237 á einu ári, eða um 134 pró­sent.

[adspot]Í umfjöllun Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar er vakin athygli á því að þessi þróun hjá yngsta hópi full­orð­inna Íslend­inga er að eiga sér stað á sama tíma og leigj­endum fari fækk­andi. Þar spilar inn í að aðstæður til hús­næð­is­kaupa hafa aldrei verið hag­stæð­ari en nú vegna lágra stýri­vaxta, en þeir eru nú 0,75 pró­sent og hafa ekki verið lægri í Íslands­sög­unni. Fyrir vikið hafa hús­næð­is­lána­vextir lækkað mikið. Nú er til að mynda hægt að fá óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá rík­is­bönk­unum á 3,5 pró­sent breyti­legum vöxtum og síð­asta vaxta­lækkun gefur vænt­ingar til þess að þeir vextir geti jafn­vel lækkað enn frekar. Í upp­hafi árs 2019 voru sam­bæri­legir vextir á bil­inu sex til 6,6 pró­sent.

Leigjendur ekki verið færri frá því í kringum hrunið

Kannanir sem Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun hefur látið gera benda til þess að hlut­fall lands­manna sem er á leigu­mark­aði hafi ekki verið lægra frá því í kringum hrunið 2008, en leigj­endur voru um 12 pró­sent lands­manna í lok þess árs. Síðan þá hefur með­al­talið verið í kringum 16 pró­sent en frá miðju ári 2019 hefur það farið hratt lækk­andi úr því að vera 18 pró­sent í júlí á því ári í að vera 13 pró­sent ári síðar.

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun bendir á að leigj­endum hafi tekið að fækka á svip­uðum tíma og vextir fóru að lækka og því sé fylgni þar á milli. Samkvæmt nýj­ustu leigukönnun stofn­un­ar­innar vildu enda níu af hverjum tíu leigj­endum heldur búa í eigin hús­næði en leigja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár