Drög að nýjum þjónustusamningi við RÚV kynnt

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur kynnt nýjan þjón­ustu­samn­ing við Rík­is­út­varpið fyrir rík­is­stjórn en núgild­andi samn­ingur rennur út um ára­mótin.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti drög að nýjum þjón­ustu­samn­ingi við Rík­is­út­varpið (RÚV) fyrir rík­is­stjórn í gær. Þetta stað­festir ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt lögum ber mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að gera þjón­ustu­samn­ing við RÚV um fjöl­miðlun í almanna­þágu til fjög­urra ára í senn. Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn, sem skil­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rennur út í lok þessa árs. Nýr samn­ingur mun taka gildi í byrjun næsta árs.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu eru skyldur RÚV und­ir­strik­aðar í samn­ingnum, sem og almanna­þjón­ustu­hlut­verk þess, en sér­stök áhersla er lögð á að RÚV styðji við og efli íslenska tungu og menn­ingu lands­ins „enda er sterk staða tungu­máls­ins ein af for­sendum vel­sældar og mennt­unar.“

Ótímabært að svara hvers kyns breytingar verði á samningnum

Jafn­framt er lögð áhersla á, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu, að RÚV verji ákveðnum hluta af tekjum til kaupa á efni frá sjálf­stæðum fram­leið­endum ásamt því að setja reglur um við­skipta­boð.

Í svörun ráðu­neyt­is­ins segir enn fremur að í raun sé ótíma­bært að svara því hvort miklar breyt­ingar verði á samn­ingnum þar sem hann sé nú í vinnslu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er á meðal þess sem undir er í þeirri vinnu fjár­mögnun starf­semi RÚV og hvort að fyr­ir­tæk­inu verði áfram heim­ilt að sækja sér tekjur á sam­keppn­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár