Svandís hefur talað fyrir uppkosningu en hinir stjórnarflokkarnir vilja aðra niðurstöðu

Það mun liggja fyrir á fimmtu­dag í næstu viku hvort kjósa þurfi aftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eða hvort end­ur­taln­ing verði látin gilda. Engin ein­ing er milli flokka um nið­ur­stöð­una, ekki einu sinni innan raða rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, sem situr í undirbúningsnefnd um rannsókn kjörbréfa.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra og þing­maður Vinstri grænna, sem situr í und­ir­bún­ings­nefnd um rann­sókn kjör­bréfa. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra og þing­maður Vinstri grænna, sem situr í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa er sögð tala mjög fyrir upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sam­kvæmt for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í dag.

Þar kemur einnig fram að þing­menn Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar muni kjósa gegn stað­fest­ingu kjör­bréfa en óljóst sé hvort þing­menn Vinstri grænna muni fylgja Svandísi, beiti hún sér fyrir upp­kosn­ingu. Svandís segir við Frétta­blaðið að hún hafa talað opið fyrir báðum nið­ur­stöðum en finn­ist allt of bratt að hrapa að nið­ur­stöðu um stað­fest­ingu kjör­bréfa.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í nefnd­inni, sagði við Kjarnann á mið­viku­dag að sér heyr­ðist það vera ríkj­andi skoðun hjá meiri­hluta nefnd­ar­manna að seinni taln­ing atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi skuli gilda. Þetta segir hann þó ekki vera ein­róma álit nefnd­ar­manna, og sjálfur væri hann ekki á þess­ari skoðun, en að lín­urnar lægju á þessum slóðum. „Að með­al­tali er skoð­unin nær seinni taln­ing­unni, en allir eru með fyr­ir­vara um að skoðun sín geti breyst.“

[adspot]Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, á sæti í nefnd­inni rétt eins og Björn Leví og hún sagði við Kast­ljós á þriðju­dag að hún sæi ekk­ert annað í stöð­unni en að önnur taln­ing yrði tekin gild. „Eins og mín staða er akkúrat núna þá sé ég ekk­ert annað í kort­inu, ekki neitt.“

Talið er að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins í nefnd­inni séu allir á þeirri skoðun og ef þing­menn þeirra fylgi þeim þá mun það duga til að vera með meiri­hluta þegar kosið verður um kjör­bréf, en saman hafa flokk­arnir 35 þing­menn af 63. Þannig yrðu kynntar nið­ur­stöður kosn­ing­anna ekki settar í upp­nám.

Þing sett á þriðjudag og kosið um uppkosningu á fimmtudag

Und­ir­bún­ings­nefndin á sam­kvæmt verk­lags­reglum sínum að nálg­ast verk­efni sitt og þar með talið til­lögu­gerð á grund­velli mál­efna­legra sjón­ar­miða og lög­fræði­legs mats. Vinna nefnd­ar­innar er þó hvorki bind­andi fyrir kjör­bréfa­nefnd né þing­menn, sem hafa að end­ingu það stjórn­ar­skrár­bundna hlut­verk að skera úr um hvort að þeir og sam­þing­menn þeirra séu lög­lega kosn­ir.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans veður þing­setn­ing í fyrsta sinn frá kosn­ingum á þriðju­dag í næstu viku. Til stendur að kjósa um nið­ur­stöðu kjör­bréfa­nefnd­ar­innar tveimur dögum síðar, eða á fimmtu­dag. Þá mun liggja fyrir hvort úrslit kosn­ing­anna eftir end­ur­taln­ingu verði stað­fest af þing­mönnum eða hvort kjósa þurfi aftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár