Vilja lækka kosningaaldur niður í 16 ár í öllum kosningum á Íslandi

Ellefu þing­menn hafa lagt fram frum­varp um að lækka kosn­inga­aldur niður úr 18 árum í 16. 2018 kom mál­þóf þing­manna úr þremur flokkum i veg fyrir að greidd yrðu atkvæði um frum­varp sem hefði tryggt 16 ára kosn­inga­rétt í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Níu þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum og tveir þing­menn utan flokka hafa lagt fram frum­varp um að lækka kosn­inga­aldur niður í 16 ára. Verið frum­varpið að lögum munu allir lands­menn sem náð hafa 16 ára aldri geta kosið hér­lendis. Fyrstu kosn­ing­arnar sem þetta fyr­ir­komu­lag myndi gilda yrðu í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2022. Fyrstu for­seta­kosn­ing­arnar sem 16 ára gamlir ein­stak­lingar gætu kosið í yrðu 2024 og fyrstu þing­kosn­ing­arnar að óbreyttu árið 2025.

Fyrsti flutn­ings­maður máls­ins er Andrés Ingi Jónsson, sem starfar utan flokka eftir að hafa yfir­gefið Vinstri græn fyrir tæpu ári síðan. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem fór sömu leið og Andrés fyrr á þessu ári, er einnig á meðal flutn­ings­manna. Auk þeirra eru þing­menn frá Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn á frum­varp­inu.

[adspot]Í grein­ar­gerð sem fylgir með því segir að ungt fólk hafi löngum þurft að þola lýð­ræð­is­halla hvað varðar aðkomu að vali á kjörnum full­trúum og vægi á fram­boðs­listum stjórn­mála­sam­taka. „Lækkun kosn­inga­ald­urs mundi styrkja rödd ungu kyn­slóð­ar­innar og leið­rétta þennan lýð­ræð­is­halla. Þetta mundi jafn­framt auðga stjórn­málin með nýjum hug­myndum um leið og þjóðin er að eld­ast. Ísland mundi með lækkun kosn­inga­ald­urs skipa sér í hóp með þeim ríkjum þar sem ekki er ein­ungis kallað eftir sjón­ar­miðum ungs fólks til mála­mynda, heldur væri því veittur form­legur og fullur aðgangur að lýð­ræð­inu til jafns við full­orðna. Ísland yrði í hópi ríkja sem eru í far­ar­broddi þegar kemur að lýð­ræð­is­þróun – stigi mik­il­vægt skref sem er þó eng­inn enda­punktur heldur krafa um stöðugar umbætur til að sem flestar og fjöl­breyttastar raddir heyr­ist.“

Málþóf kom í veg fyrir atkvæðagreiðslu

Frumvörp um að lækka kosn­inga­aldur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum niður í 16 ár hafa áður verið lögð fram. Í mars 2018, skömmu fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar það árið, var öruggur meiri­hluti fyrir því að sam­þykkja málið, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans innan stjórn­mála­flokka á þeim tíma.

lögð­ust hins vegar þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins í mál­þóf til að tefja fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varpið.

Kannanir sýndu að þeir flokkar sem nutu mest stuðn­ings hjá ungu fólki voru mun meira fylgj­andi því að frum­varpið yrði sam­þykkt í mars 2018 og að breyt­ingin myndi taka gildi fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fóru fram í lok maí sama ár.

[links]Í síð­ustu skoð­ana­könn­un­inni sem Gallup gerði um fylgi stjórn­mála­flokka fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­ar, og birt­ist 27. októ­ber 2017, kom til að mynda fram að Vinstri græn nutu stuðn­ings 25 pró­sent kjós­enda sem voru undir 30 ára. Stuðn­ingur við flokk­inn var lang­mestur í yngsta ald­urs­hópnum. Píratar nutu stuðn­ings 15 pró­sent kjós­enda í þeim ald­urs­hópi. Til sam­an­burðar ætl­uðu 3-6 pró­sent þeirra sem voru eldri en 50 ára að kjósa Pírata. Við­reisn naut stuðn­ings 11 pró­sents kjós­enda undir þrí­tugu en ein­ungis fjögur pró­sent kjós­enda sem voru yfir 60 ára ætl­uðu að kjósa flokk­inn.

Eini flokk­ur­inn sem var í heild sinni fylgj­andi breyt­ing­unni á kosn­inga­aldr­inum sem naut meira fylgis hjá eldri kjós­endum en yngri var Sam­fylk­ing­in. Það er þó þannig að 12 pró­sent kjós­enda undir þrí­tugu ætl­uðu að kjósa þann flokk sem er meira fylgi en hann naut hjá fólki á fer­tugs­aldri.

Flokkar sem sækja stuðning til eldri kjósenda á móti

Flokk­arnir sem voru mest á móti breyt­ing­unni, eða að minnsta kosti mót­fallnir því að hún myndi taka gildi fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, áttu það allir sam­eig­in­legt að njóta umtals­verðs meira fylgis hjá eldri kjós­endum en þeim sem yngri eru.

Mun­ur­inn var sýni­leg­astur hjá Sjálf­stæð­is­flokki. Í áður­nefndri könnun Gallup kom fram að 18 pró­sent kjós­enda undir þrí­tugu ætl­uðu að kjósa flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum, sem er langt undir kjör­fylgi hans. Að sama skapi naut hann stuðn­ings 28-30 pró­sent þeirra sem voru eldri en 40 ára. Mið­flokk­ur­inn naut stuðn­ings sjö pró­sents kjós­enda undir þrí­tugu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn naut stuðn­ings átta pró­sent ungra kjós­enda.

Í báðum til­vikum var það fylgi tölu­vert undir kjör­fylgi.

Í til­viki Flokks fólks­ins mæld­ist stuðn­ingur við hann hjá fólki yngra en 30 ára ein­ungis eitt pró­sent í könnun Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár