„Verðum tilbúin þegar flugfélögin koma“

Isavia seg­ist geta brugð­ist hratt við þegar flug­fé­lög vilja hefja flug til Íslands að nýju. „Við erum þegar til­búin að taka við vélum og verðum til­búin þegar flug­fé­lögin koma,“ segir Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia.

Ró hefur verið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu vikur. Það kann að breytast í sumar.
Ró hefur verið yfir í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar síð­ustu vikur. Það kann að breyt­ast í sumar. Mynd: Isavia

Þau flug­fé­lög sem hafa flogið hingað til lands und­an­farin ár hafa verið í sam­bandi við Isavia til að kanna stöð­una hér um leið og þau hafa upp­lýst um stöð­una þeirra megin. Þá hefur Isavia haldið nánu sam­bandi við þessa flug­rek­endur til að upp­lýsa þá um gang mála á Íslandi.

Þetta segir Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, spurður um hvort erlend flug­fé­lög hafi sýnt því áhuga að fljúga hingað í sumar þegar landa­mæri hér og víðar í Evrópu hafa opn­ast. Þegar hefur verið gefið út að stjórn­völd stefni að því að bjóða ferða­mönnum að fara í sýna­töku við kom­una til Kefla­vík­ur­flug­vallar eða að fram­vísa við­ur­kenndu vott­orði í stað þess að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Stýri­hópur skil­aði nýverið skýrslu með hug­myndum að útfærslum. Í kjöl­farið skip­aði heil­brigð­is­ráð­herra verk­efn­is­stjórn og fól henni und­ir­bún­ing að fram­kvæmd sýna­töku hjá komu­far­þegum. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní verði skimunin komin til fram­kvæmda og tveimur vikum eftir að hún hefst verði verk­efnið metið og tekin ákvörðun um fram­haldið á grund­velli þeirrar nið­ur­stöðu.

Verk­efn­is­stjórnin á einnig að gera til­lögur um fram­kvæmd sýna­töku og grein­ingar hjá far­þegum sem koma til lands­ins eftir öðrum leiðum en með flugi til Kefla­víkur.

[links]Í minn­is­blaði heil­brigðis- og dóms­mála­ráð­herra um málið segir að viss áhætta sé fólgin í því að draga úr sótt­varna­ráð­stöf­unum og liðka fyrir ferða­lögum til og frá land­inu þar sem fá ríki hafi náð jafn góðum tökum á far­aldr­inum og hér. Aftur á móti megi líta til þess að í ljósi góðrar stöðu okkar og þeirrar stað­reyndar að fyrr eða síðar verði aukin ferða­lög til og frá land­inu óhjá­kvæmi­leg sé nú tíma­bært að huga að til­slök­unum. „Að ýmsu leyti sé hag­stætt að gera það núna þar sem ferða­lög á milli landa séu hvort eð er í lág­marki og því svig­rúm fyrir hendi til að prófa sig áfram án þess að missa tök á ástand­inu.“

Sótt­varna­læknir mun vinna minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra upp úr til­lögum vinnu­hóps­ins sem ráð­herra mun svo byggja ákvörðun sína á og er hennar að vænta fljót­lega.

Aðeins eitt flugfélag með reglubundið farþegaflug

Icelandair er eina flug­fé­lagið sem er nú með reglu­bundið far­þega­flug til Íslands. Eitt og eitt flug ann­arra flug­fé­laga hefur þó „tínst inn af og til,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, „meðal ann­ars sér­stök flug með erlenda rík­is­borg­ara frá Íslandi“.

Í júlí í fyrra buðu 23 flug­fé­lög upp á flug­ferðir frá Íslandi til 67 áfanga­staða. Yfir 840 þús­und far­þegar voru fluttir til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli i þeim mán­uði. Í apríl í ár voru 3.132 flug­far­þegar fluttir til og frá Íslandi um flug­völl­inn.

Þegar hafa banda­rísk flug­fé­lög ákveðið að fljúga ekki til Íslands í sumar en önnur félög sem hingað hafa vanið komur sínar hafa ekki gefið slíkt út.

Guðjón segir að Isavia geti brugð­ist mjög hratt við þegar flug­fé­lög vilja hefja flug til Íslands á nýjan leik. „Við erum þegar til­búin að taka við vélum og verðum til­búin þegar flug­fé­lögin koma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár