Varð hissa þegar honum bauðst starf aðstoðarmanns

Nýráðinn aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra segir nauð­syn­legt að gefa ungu fólki meiri tæki­færi innan stjórn­sýsl­unnar. Hann hætti að versla í H&M eftir heim­sókn í fata­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Kambódíu. Umræðan um ráðn­ing­una kom ekki á óvart.

Gauti Geirsson tók við starfi aðstoðarmanns Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra fyrir viku síðan.
Gauti Geirsson tók við starfi aðstoð­ar­manns Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra fyrir viku síðan. Mynd: GG

Gauti Geirsson er nýjasti og yngsti aðstoð­ar­maður ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar. Ráðning hans sem aðstoð­ar­mann Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í síð­ustu viku vakti mikla athygli og þá sér­stak­lega ungur aldur hans. Gauti er 22 ára og hefur ekki veitt fjöl­miðlum við­tal um ráðn­ingu sína fyrr en nú, þegar hann hitti þau Þorstein Másson, Gylfa Ólafsson og Tinnu Ólafs­dóttir í hlað­varps­þætti Kjarnans, Útvarp Ísa­fjörður.

Gauti bendir á að nýaf­stiðin vika hafi verið kjör­dæma­vika og hann hafi verið á þeyt­ingi víða um landið með Gunnari Braga, hvar síma­sam­band var víða stop­ult. En hann kemur líka inn á þá miklu umfjöllun sem ráðn­ing hans fékk í fjöl­miðlum, mis­já­kvæða.

Með Framsóknarflokkinn í blóðinu

„Þetta var ansi mikið fjöl­miðla­fár svo ég ákvað að hvíla nafn mitt aðeins úr umræð­unni eftir vik­una. En ég er ánægður að vera kom­inn til ykkar,” segir Gauti. En bjóst hann við því að ráðn­ing hans myndi vekja jafn mikla athygli og raun bar vitni?

„Ég átti alveg von á að ráðn­ing 22 ára drengs, eða krakka, eða hvað sem maður hefur verið kall­aður, krakka­skítur eða eitt­hvað, mundi vekja athygli,” segir Gauti og hlær. „En það var kannski meira fólkið í kring um mig, vinir og aðstand­endur sem hafa verið meira í sjokki og tekið þetta meira inn á sig.”

Gauti er fæddur og upp­al­inn á Ísafirði og seg­ist koma af mik­illi og gam­alli fram­sókna­rætt - sam­vinnu­fé­lags­hyggju­ætt, eins og hann orðar það. Hann hefur mik­inn áhuga á byggða­málum, mann­rétt­inda­málum og umhverf­is­málum og hefur stundað nám í verk­fræði í Reykja­vík und­an­farin tvö ár. Hann hefur ferð­ast tölu­vert og hefur gaman af.

Verslar ekki í H&M eftir ferð til Kambódíu

„Ég sá að það voru ein­hverjir að froðu­fella yfir því að ég hafði farið í heims­reisu, eins og það væri eina reynsla mín frá útlöndum. En það er alveg hægt að fara í heims­reisu og taka myndir af sér á Instagram við Burj Kalifa eða hvað sem er,” segir hann. „En þegar ég var til dæmis í Kambódíu þá fór ég í fata­verk­smiðju hjá H&M og sá mann­rétt­inda­brotin þar. Talaði við þýska stelpu sem var með mann­rétt­inda­vakt­ina og ég hef ekki keypt vörur úr H&M síðan, því ég er mjög með­vit­aður um hvernig þetta er. Og í Afríku sökkti ég mér í nýlendu­tím­ana. Það er alveg hægt að fara í gegn um lífið og vera orð­inn gam­all en vera samt ekk­ert að pæla í svona hlutum. En ald­ur­inn segir ekki alveg allt.”

Fólk ekki vel að sér um störf aðstoðarmanna

Gauti segir að á sama tíma og sam­fé­lagið kalli eftir ungum og ferskum vindum er gerð krafa á starfs­menn að þeir séu með 40 ára reynslu að baki. Það gangi ein­fald­lega ekki upp.

„Ég varð hissa þegar ég fékk þetta boð. En svo fannst mér þetta bara nokkuð djarft, að hleypa ungu fólki inn,” segir hann. „Og ég gat eig­in­lega ekki sagt nei við því að láta rödd okkar heyr­ast.”

Hann segir tölu­verðan mis­skiln­ings gæta varð­andi starfs­lýs­ingu aðstoð­ar­manna ráð­herra.

„Ég held að partur af þessu sé að fólk er ekki mjög vel að sér varð­andi hlut­verk aðstoð­ar­manna ráð­herra. Umræðan er svo­lítið eins og það sé verið að ráða ráðu­neyt­is­stjóra eða eitt­hvað þannig,” segir hann. Aðstoð­ar­maður ráð­herra sé í raun trún­að­ar­maður ráð­herra og geri það sem honum er falið.

„Þetta er eina starfið sem þarf ekki að aug­lýsa opin­ber­lega sam­kvæmt lögum. Og aðstoð­ar­maður á að starfa í þeim verk­efnum sem ráð­herra felur honum. Þannig að ég held að það gæti ákveð­ins mis­skiln­ing varð­andi hvað aðstoð­ar­menn eru að gera. En auð­vitað þarf maður að setja sig inn í mál sem manni er falið,” segir Gauti.

Hlustið á við­talið við Gauta í heild sinni í nýjasta þætti af Útvarpi Ísafirði. Einnig er meðal ann­ars rætt um vatns­brask, fjölda kaffi­bolla sem æski­legt er að drekka og öryggi ferða­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár