Ný þróunarmarkmið - breytingin byrjar heima

Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna er búið að sam­þykkja háleit heims­mark­mið fyrir sjálf­bæra þróun, sem munu leysa af hólmi þús­ald­ar­mark­mið sam­tak­anna. Fyrir árið 2030 á að útrýma hungri og örbirgð, ná kynja­jafn­rétti, tryggja öllum jarð­ar­búum hreint drykkj­ar­vatn, næga orku og örugg hús. Og þetta er bara sýn­is­horn.

Heims­mark­miðin munu vera horn­steinn­inn í stefnu og starfi Sam­ein­uðu þjóð­anna næstu 15 árin. Í stað­inn fyrir átta hnit­miðuð þús­ald­ar­mark­mið sem beindu athygl­inni þangað sem neyðin var mest, koma nú sautján yfir­grips­mikil þró­un­ar­mark­mið sem vekja athygli á vel flestu sem betur má fara í heim­inum. Þessi mark­mið stað­næm­ast ekki við að eyða sjúk­dómum og hungri í fátæk­ari löndum. Nýju mark­miðin krefj­ast þess líka að við á Vest­ur­löndum breytum því hvernig við lifum.

Auðmelt þúsaldarmarkmið


Sagan segir að hin upp­runa­legu þús­ald­ar­mark­mið hafi verið skrifuð niður á bak­hlið serví­ettu yfir hádeg­is­mat í mötu­neyti Alþjóða­bank­ans. Flest þeirra eru ein­föld mark­mið til að bæta líf þeirra allra fátæk­ustu í heim­inum á mæl­an­legan hátt fyrir árs­lok 2015, með beinni aðstoð og fjár­mögnun frá rík­ari löndum. Þau náðu að beina kröftum allra landa í sömu átt, til að bæta úr krefj­andi vanda­málum með sam­stilltu átaki. Líklega er það lyk­ill­inn að þeim árangri sem þó hefur náðst í átt að þús­ald­ar­mark­mið­unum. Þetta eru auð­skilj­an­leg, og að mörgu leyti auð­fram­kvæm­an­leg mark­mið, sem flestir geta verið sam­mála um.

Það er engin rík­is­stjórn mót­fallin því að bjarga lífum ung­barna; eng­inn and­vígur því að fólk eigi að hafa hreint drykkj­ar­vatn. (Reyndar hafa fram­far­irnar verið seig­fljót­andi í átt að rétt­indum kvenna og betri mæðra­heilsu, enda gjarnan póli­tískt bit­bein á alþjóða­vett­vangi.) Þús­ald­ar­mark­miðin hafa hins vegar verið gagn­rýnd fyrir að beina sjónum að ein­kennum fátæktar og dreifa athygl­inni frá rótum vand­ans, svo sem vax­andi mis­skipt­ingu ver­ald­legra gæða í heim­inum og lofts­lags­breyt­ingum.

Nú leysum við vandamál heimsins


Með nýju þró­un­ar­mark­mið­unum á hins vegar að taka til hend­inni og leysa vanda­mál heims­ins, ekki bara vanda­mál fátæka fólks­ins. Þá nægir ekki lengur að grafa brunna í Afríku og byggja skóla í Afganistan. Nýju mark­miðin krefj­ast þess líka að hinir ríku hugi að eigin stjórn­háttum og lifn­að­ar­háttum. Þau krefj­ast þess meðal ann­ars að við á Vest­ur­löndum minnkum mengun og drögum úr neyslu. Þau eru einnig undir því komin að vest­ræn ríki hleypi hinum fátæk­ari að kjöt­kötl­unum og dragi mark­visst úr ójöfn­uði.

Að auki á að ganga enn hraust­legar til verks. Ekkert hálf­kák í þetta skiptið. Þús­ald­ar­mark­miðið um hungur var að helm­ingi færri skyldu líða hungur árið 2015 en árið 1990. Nú skulu bæði hungur og nær­ing­ar­skortur verða úr sög­unni. Hvert ein­asta manns­barn á að hafa aðgang að nægum og nær­ing­ar­ríkum mat alltaf. Þrátt fyrir að þús­ald­ar­mark­miðið um að minnka barna­dauða um tvo þriðju hafi ekki náðst, þá er samt stefnt að því að árið 2030 skuli engin börn undir skóla­aldri lát­ast af kvillum sem hægt er að koma í veg fyrir.

Hinn besti allra heima


Líkt og flestir aðrir alþjóða­sátt­málar, -samn­ingar og yfir­lýs­ingar eru heims­mark­miðin ekki eitt­hvað sem verður til í með­förum leið­tog­anna sem sam­þykkja þau núna. Að baki liggur rúm­lega tveggja ára ferli. Ísland hefur beitt sér hart til að meðal ann­ars rétt­indi kvenna og umhverf­is­mál fái sinn stað í skjal­inu. Að sama skapi hafa önnur lönd, félaga­sam­tök, stofn­anir og aðrir aðilar barist fyrir því að fá sín hugðar- og áhyggju­efni inn.

Úr því verður langur listi og á köflum útópískur. Ef fyr­ir­sögnin á þús­ald­ar­mark­mið­unum hinum fyrstu væri “sam­ein­umst hjálpum þeim”, þá gætu nýju heims­mark­miðin verið vers úr lag­inu Imagine eftir John Lennon. Hér er hugs­unin ekki: hverju getum við áorkað? heldur: hvað þarf að bæta til þess að við getum öll lifað í sátt og sam­lyndi, mett og sæl?

Jafningjar og jöfnuður


Það er þarft að beina sjónum að rótum vanda­mál­anna og því að allir þurfa að leggja sitt af mörkum og líta í eigin barm. Nýju mark­miðin leysa af hólmi hefð­bundna þró­un­ar­nálgun sem á tíðum hefur farið út í óheil­brigða yfir­burða­hugsun vest­rænna ríkja á kostnað hinna fátæk­ari.

Hér kveður við annan tón. Þetta eru ekki fyr­ir­mæli og pen­inga­að­stoð frá ríkum til fátækra, heldur jafn­ingja­nálgun og jafn­að­ar­hugsun sem er sjald­gæf í alþjóða­stjórn­málum. Það er í raun­inni ótrú­legt að leið­togar heims­ins séu búnir að sam­þykkja svo rót­tækan lista. Hann gæti nán­ast farið í kennslu­bækur stjórn­mála­heim­spek­innar yfir til­raunir mann­kyns til að búa til hið full­komna sam­fé­lag mann­anna.

Grýtt braut – en eina leiðin


Því miður eru veik­leik­arnir ekki ein­skorð­aðir við háleit mark­mið og víð efn­is­tök. Nú er búið að skil­greina vanda­mál og verk­efna­lista heims­byggð­ar­innar á svo yfir­grips­mik­inn hátt að það þarf að halda mjög vel á spöð­unum til að hver þjóð hverfi ekki til síns heima og vinni að sínum hugð­ar­efnum – af því þau eru á list­anum. Ísland gæti sagt: já, en við erum að berj­ast gegn mengun hafs­ins, það er sam­eig­in­legt vanda­mál heims­byggð­ar­innar. Og Noregur gæti sagt: já, en við erum að bólu­setja börn um allan heim, það er líka á list­anum. Á meðan myndu önnur erfið póli­tísk bit­bein sitja á hak­anum og fá litla athygli því allir eru jú að vinna í verk­efna­list­anum.

[caption id="attachment_39972" align="alignnone" width="2000"] Nýju mark­miðin leysa af hólmi hefð­bundna þró­un­ar­nálgun sem á tíðum hefur farið út í óheil­brigða yfir­burða­hugsun vest­rænna ríkja á kostnað hinna fátæk­ari. Mynd: EPA.[/caption]

Það er nefni­lega ekk­ert alþjóð­legt yfir­vald sem getur sektað eða skammað ríki sem ekki vinnur heima­vinn­una sína og tekur til í eigin ranni. Ríkin hafa bundið sig af eigin vilja og munu setja sér sínar eigin áætl­anir um það hvernig á að ná mark­mið­unum. En jafn­ingja­þrýst­ing­ur­inn á alþjóða­sam­starfi er sterkur og það eru til margar leiðir til að þvinga og þrýsta á.

Því hér verða allir að taka þátt og leggja sitt af mörkum. Þetta er sam­komu­lag sem tekur inn í mynd­ina að vanda­mál heims­ins eru sam­sett. Það er ekki hægt að bæta heilsu án þess að minnka fátækt, ekki hægt að útrýma hungri án þess að stöðva lofts­lags­breyt­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár