Fjölgar í kaþólska söfnuðinum og fækkar í þjóðkirkjunni – Áframhaldandi þróun

Enn fækkar í þjóð­kirkj­unni sam­kvæmt nýj­ustu tölum Þjóð­skrár.

Dómkirkjan í Reykjavík
Dóm­kirkjan í Reykja­vík Mynd: Bára Huld Beck

Alls hefur skráðum í þjóð­kirkj­una fækkað um 632 manns á tíma­bil­inu frá 1. des­em­ber á síð­asta ári til 1. ágúst síð­ast­lið­ins. Nú eru 232.040 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár.

Þessar tölur ríma við þróun síð­ustu ára en í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra lands­­manna sem skráðir eru í þjóð­­kirkj­una met­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt.

Mest fjölgar í kaþólska söfnuðinum

Á sama tíma­bili fjölg­aði í kaþ­ólska söfn­uð­inum um 437 manns eða um 3,1 pró­sent og í Siðmennt um 320 manns eða um 11,4 pró­sent. Aukning var einnig í Ása­trú­ar­fé­lag­inu eða um 196 manns sem er 4,4 pró­sent fjölgun. Alls voru 25.512 ein­stak­lingar skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga þann 1. ágúst síð­ast­lið­inn og fjölg­aði þeim um 749 frá 1. des­em­ber 2018 eða um 3 pró­sent.

Þessi aukn­ing í kaþ­ólska söfn­uð­inum hefur átt sér stað sam­hliða mik­illi fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, en stærstu hóp­arnir sem hingað flytja koma frá löndum þar sem staða Kaþ­ólsku kirkj­unnar er sterk. Þar munar mest um Pól­verja, sem eru fjöl­menn­asta hóp erlendra rík­is­borg­ara sem búsettur er á Íslandi.

[adspot]

Þjóðkirkjan fékk viðbótarframlag

Til­­veru­­réttur þjóð­­kirkj­unnar er tryggður í stjórn­­­ar­­skrá lands­ins. Þar segir að hin evang­el­íska lút­­­erska kirkja skuli vera þjóð­­­kirkja á Íslandi og að rík­­­is­­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda.

Í krafti þessa fær þjóð­­­kirkja umtals­verða fjár­­­muni úr rík­­­is­­­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Bisk­­­ups Íslands, í Kirkju­­­mála­­­sjóð og Jöfn­un­­­ar­­­sjóð sókna.

Fram kom í fréttum í des­em­ber síð­ast­liðnum að í fjár­auka­lögum vegna árs­ins 2018 hefði fjár­heim­ild til trú­mála verið hækkuð um 820 millj­ónir króna. Þessi hækkun skýrð­ist ann­ars vegar af því að fram­lag til þjóð­kirkj­unnar hefði verið aukið um 857 millj­ónir króna og hins vegar hefðu fram­lög vegna sókn­ar­gjalda lækkað um 37 millj­ónir króna vegna end­ur­mats á fjölda ein­stak­linga í skráðum trú­fé­lög­um.

Þetta fram­lag kom til við­bótar því fjár­magni sem þegar hafði verið ráð­stafað til þjóð­kirkj­unnar á fjár­lög­um.

Sam­tals var áætlað að þessi upp­­­hæð yrði 2.830 millj­­­ónir króna árið 2018. Til við­­­bótar fékk þjóð­­­kirkjan greidd sókn­­­ar­­­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni var. Sam­tals kost­aði rekstur þjóð­kirkj­unnar því tæp­­­lega 4,6 millj­­­arða króna árið 2018 áður en að við­bót­ar­fram­lagið var sam­þykkt. Það hækk­aði rík­is­fram­lagið um tæp 19 pró­sent.

Þá er ekki með­­­talið rúm­­­lega 1,1 millj­­­arðs króna fram­lag til kirkju­­­garða.

Kirkjujarðarsamkomulag milli ríkis og kirkju

Fram­lagið til þjóð­kirkj­unnar er vegna hins svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags milli ríkis og kirkju sem gert var 10. jan­úar 1997. Í því var samið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti mundi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi o.fl.

Til við­bótar skyldi ríkið greiða árlegt fram­lag í Kristni­sjóð sem svar­aði til 15 fastra árs­launa presta. Ef það fækk­aði eða fjölg­aði í þjóð­kirkj­unni skyldi fram­lag rík­is­ins lækka eða hækka eftir til­teknum við­miðum en þó aldrei niður fyrir til­tek­inn fjölda starfa. Þá skyldu laun og launa­tengd gjöld fyrr­greindra starfs­manna þjóð­kirkj­unnar vera sam­kvæmt úrskurðum kjara­ráðs.

Viðræður um endurskoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins

Í frum­varpi til fjár­auka­laga sagði að í kjöl­far banka­hruns­ins hefði orðið for­sendu­brestur í rík­is­fjár­málum og til að bregð­ast við því væri óhjá­kvæmi­legt að gera umtals­verðar aðhalds­kröfur í rekstr­ar­út­gjöldum allra rík­is­stofn­ana og rekstr­ar­að­ila sem fjár­magn­aðir eru úr rík­is­sjóði.

„Í til­felli þjóð­kirkj­unnar var um sam­bæri­legar aðhalds­kröfur að ræða og gerðar voru í öðrum almennum rekstri hjá rík­inu. Í fjár­auka­lögum 2015, 2016 og 2017 voru sams­konar til­lögur sam­þykktar undir þeim for­merkjum að við­ræður myndu þegar hefj­ast við kirkj­una um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem fæli þá í sér end­ur­skoðun allra fjár­hags­legra sam­skipta ríkis og kirkju, þ.m.t. hvað varðar sókn­ar­gjöld, jöfn­un­ar­sjóð sókna, fram­lög til kirkju­mála­sjóðs og Kristni­sjóðs, með mark­mið m.a. um veru­lega ein­földun þess­ara sam­skipta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár