Dýrar auglýsingar en fáir fylgjendur hjá Flokki fólksins og Samfylkingunni

Rúmur helm­ingur alls aug­lýs­inga­kostn­aðar stjórn­mála­flokk­anna á Facebook og Instagram hefur annað hvort komið frá Sam­fylk­ing­unni eða Flokki fólks­ins síð­asta árið. Þrátt fyrir það hafa báðir flokk­arnir fáa fylgj­endur á miðl­unum ef miðað er við aðra flokka.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Facebook-síða Loga Einarssonar.

Alls vörðu Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin sam­an­lagt tæpum sjö millj­ónum króna í aug­lýs­ingum á Facebook og Instagram á síð­ustu þrettán mán­uðum. Þetta er meira en sam­an­lagður aug­lýs­inga­kostn­aður allra hinna stjórn­mála­flokk­anna sem mæl­ast inni á þingi sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Þetta kemur fram í sam­an­tekt aug­lýs­inga­stof­unnar Sahara um flokk­ana á sam­fé­lags­miðlum, sem birt var fyrr í dag.

Samkvæmt sam­an­tekt­inni nam aug­lýs­inga­kostn­aður allra flokk­anna sam­tals 11,9 millj­ónum króna á tíma­bil­inu 4. ágúst 2020 til 27. ágúst 2021. Þar varði Flokkur fólks­ins um þriðj­ungi af þeirri upp­hæð, eða 3,9 millj­ónum króna. Næst á eftir kemur Sam­fylk­ingin, sem varði 2,9 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar á miðl­unum.

Í þriðja sæti kemur svo Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem borg­aði 1,8 milljón króna í aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­unum á tíma­bil­inu, en aug­lýs­inga­kostn­aður allra hinna stjórn­mála­flokk­anna var undir einni milljón.

Sahara tók einnig saman fylgj­endur flokk­anna á Instagram og Facebook. Þar er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í fyrsta sæti, en hann er með 15.534 fylgj­endur á Facebook og 3.888 fylgj­endur á Instagram. Ef litið er á sam­an­lagðan fjölda fylgj­enda á báðum miðl­unum eru Píratar og Viðreisn næst­vin­sæl­ustu flokk­arnir, en þeir eru báðir með yfir 10 þús­und fylgj­endur. Hvorki Flokkur fólks­ins né Sam­fylk­ingin eru á meðal fimm vin­sæl­ustu flokk­anna á miðl­unum, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Kjarninn hefur áður greint frá aug­lýs­inga­kostn­aði flokk­anna á Facebook í sumar, en þar voru Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin einnig mest áber­andi. Frá miðjum maí og fram í miðjan ágúst­mánuð keypti Flokkur fólks­ins alls aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­inum fyrir um 1,1 milljón króna, en aug­lýs­inga­kostn­aður Sam­fylk­ing­ar­innar var rétt undir einni milljón króna á sama tíma.

Aths. rit­sjórnar 31. ágúst kl. 16:34: Í upp­haf­legu útgáfu frétt­ar­innar var vitnað í Sahara um að töl­urnar næðu til aug­lýs­inga­kostn­aðar á tíma­bil­inu 4. ágúst 2021 til 27. ágúst 2021. Hið rétta er að tíma­bilið sem mælt var náði frá 4. ágúst 2020. Sahara hefur nú upp­fært þessar upp­lýs­ingar og hefur frétt­inni verið breytt í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár