„Snýst ekkert um að við þurfum meiri orku“ – heldur hvernig við forgangsröðum

Þing­flokks­for­maður Pírata og umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra voru ekki sam­mála um ágæti nýrrar skýrslu um stöðu og áskor­anir í orku­málum á þingi í dag.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Við þurfum ekki að virkja meira en við þurfum að for­gangs­raða betur í þágu nátt­úr­unnar, í þágu fram­tíð­ar­kyn­slóða en ekki í þágu skamm­tíma­gróða og hag­vaxtar. Hvað ætlar hæst­virtur ráð­herra að gera annað en að botn­virkja Ísland í þágu stór­iðj­unnar? Það er spurn­ingin mín. Hvað ætlar hann að gera??“

Þetta voru meðal spurn­inga sem Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata spurði Guðlaug Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag.

Ráð­herr­ann brást ókvæða við og sagði meðal ann­ars að það væru honum mikil von­brigði ef þing­flokkur Pírata ætl­aði að tala gegn aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum.

Rödd náttúruverndar í mýflugumynd við gerð skýrslunnar

Halldóra hóf fyr­ir­spurn sína á því að minn­ast á nýja skýrslu um stöðu og áskor­anir í orku­málum með vísan til mark­miða og áherslna stjórn­valda í lofts­lags­málum.

„Mark­miðið var að draga fram stað­reyndir á grund­velli fag­legra sjón­ar­miða og upp­lýs­inga á sviði orku­mála á aðgengi­legu formi til upp­lýs­ingar fyrir stjórn­völd, hag­að­ila og almenn­ing. En fag­legu sjón­ar­miðin náðu ekki lengra en svo að höf­undar græn­bók­ar­innar leggja ekki neitt sjálf­stætt mat á sviðs­myndir heldur eru sviðs­myndir skýrsl­unnar upp­settar af orku­fyr­ir­tækjum sem skil­uðu inn útreikn­uðum sviðs­myndum sem voru, afsakið slett­una, for­seti, bara „copy-peist­aðar“ inn í skýrsl­una.

Formaður hóps­ins sem vann græn­bók­ina talar um að á næstu 18 árum þurfi að reisa ígildi fimm Kára­hnjúka­virkj­ana á Íslandi. Stefnan er að stækka hag­kerfið á ógn­ar­hraða, keyra upp hag­vöxt­inn sam­hliða orku­skiptum. Á meðan aðrar þjóðir heims eru að breyta neyslu­venjum, umbylta sam­göngu­kerfum og aðlaga sam­fé­lag sitt að lofts­lags­breyt­ingum ætla íslensk stjórn­völd að nýta sér ferð­ina og nota orku­skiptin til að stækka stór­iðj­una og keyra upp hag­vöxt­inn. Rödd nátt­úru­verndar var í mýflugu­mynd við gerð skýrsl­unnar enda fengu nátt­úru­vernd­ar­sam­tök nán­ast engan tíma til að bregð­ast við, sem er mjög kunn­ug­legt stef, gefa þeim bara nægi­lega lít­inn tíma til að bregð­ast við,“ sagði hún.

Spurði Halldóra um hvað seta ráð­herr­ans sner­ist í umhverf­is­ráðu­neyt­inu. „Það er aug­ljós­lega ekki að vera rödd nátt­úru­verndar. Hvaða arf­leifð sá hæst­virtur ráð­herra fyrir sér að skilja eftir sig þegar hann fer úr emb­ætti? Ætlar hann að verða ráð­herr­ann sem botn­virkj­aði Ísland í þágu orku­fyr­ir­tækj­anna og stór­iðj­unnar og nota lofts­lags­málin sem skálka­skjól fyrir það? Eða ætlar ráð­herra að gera eitt­hvað aðeins stærra?“ spurði hún.

Komumst ekkert áfram í þessum málum eingöngu með „stóryrðum og fyrirsögnum“

Guð­laugur Þór svar­aði og sagði að það væru honum mikil von­brigði ef þing­flokkur Pírata ætl­aði að „tala hér í fyr­ir­sögnum“ og tala gegn aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum.

„Ef ein­hver trúir því í eina sek­úndu að heim­ur­inn sé að fara með ein­hverjum þeim hætti sem hátt­virtur þing­maður vís­aði til, ef ein­hver trúir því í eina sek­úndu, þá hvet ég hátt­virta þing­menn og alla aðra sem gera það til að fara á inter­netið og skoða hvað er að ger­ast í heim­inum. Það sem er að ger­ast í heim­inum er að við erum að berj­ast gegn lofts­lags­vánni og það gerum við með því að fara úr jarð­efna­elds­neyti yfir í græna orku. Það er það sem við erum að gera ásamt ýmsu öðru. Það er án nokk­urs vafa langstærsta aðgerðin. Umræðan fór mjög vel af stað og mál­efna­lega og þetta er stórt verk­efni til að vinna úr. Svo er það kannski bara þannig, virðu­legi for­seti, að það eru hátt­virtir þing­menn sem eru ekki til­búnir til að leggja sitt lóð á vog­ar­skál­arnar í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni þegar til stykk­isins kemur.

Ef menn telja að eitt­hvað sé rangt í þess­ari skýrslu og öðrum eiga menn auð­vitað bara að koma með það fram. Þetta er gert eins gagn­sætt og mögu­legt er. Þetta er strax sett á netið, hátt­virtir þing­menn fá aðgang að öllum þeim upp­lýs­ingum sem þeir vilja. Ef það er eitt­hvað sem menn telja að betur megi fara þá skulu menn bara koma með mál­efna­legar athuga­semdir við það. En við komumst ekk­ert áfram í þessum málum ein­göngu með stór­yrðum og fyr­ir­sögnum,“ sagði ráð­herr­ann.

Búum við efnahagskerfi sem grundvallast á hugmyndafræði um línulegan, óendanlegan hagvöxt

Halldóra kom í pontu í annað sinn og sagði að græn­bókin væri skrifuð af hags­muna­að­ilum stór­iðj­unnar í Samtökum iðn­að­ar­ins og Samtökum atvinnu­lífs­ins.

„Við lifum á tímum þar sem hætta steðjar að mörgum skil­yrðum þess sem gerir það líf­væn­legt að lifa á þess­ari plánetu okkar sem hýsir okkur, sem fæðir okkur. Að miklu leyti er vand­inn að við búum við efna­hags­kerfi sem grund­vall­ast á hug­mynda­fræði um línu­legan, óend­an­legan hag­vöxt á plánetu sem hefur ekki yfir óend­an­legum auð­lindum að ráða. Stað­reyndin er sú að við erum langstærsti raf­magns­fram­leið­andi heims miðað við fólks­fjölda, langstærsti. Við fram­leiðum tvisvar sinnum meira á hvern ein­stak­ling en Norðmenn sem eru í öðru sæti. 80 pró­sent af þess­ari orku fer í álver, kís­il­ver og gagna­ver. Þetta snýst ekk­ert um að við þurfum meiri orku. Þetta snýst um hvernig við for­gangs­röðum,“ sagði hún.

Spurði hún jafn­framt hvernig þessi for­gangs­röðun þjón­aði orku­skipt­unum. „Við þurfum ekki að virkja meira en við þurfum að for­gangs­raða betur í þágu nátt­úr­unnar, í þágu fram­tíð­ar­kyn­slóða en ekki í þágu skamm­tíma­gróða og hag­vaxtar. Hvað ætlar hæst­virtur ráð­herra að gera annað en að botn­virkja Ísland í þágu stór­iðj­unnar? Það er spurn­ingin mín. Hvað ætlar hann að gera??“ spurði hún.

„Hér er einn þingflokkur sem er á móti hagvexti“

Guð­laugur Þór sagði í fram­hald­inu þegar hann svar­aði í annað sinn að græn­bókin væri ekki í þágu stór­iðj­unnar og ef Halldóra hefði „kynnt sér málið þá snýst þetta um það að stórum hluta hvað þarf mikla orku í orku­skiptin sem við förum í“.

„Ég held að það skipti máli að menn tali skýrt og ég þakka hátt­virtum þing­manni og Pírata fyrir að tala gegn hag­vexti. Þá liggur það bara fyrir. Hér er einn þing­flokkur sem er á móti hag­vexti. Það eru hræði­legar fréttir fyrir þá sem þurfa á til dæmis rík­is­út­gjöldum að halda. Þá er ég að tala um öryrkja, þá sem þurfa á heil­brigð­is­kerf­inu að halda, skól­unum og öðru slíku því að hátt­vitur þing­maður er að segja við þetta fólk: Við ætlum að taka niður lífs­kjör í land­inu, við ætlum að taka niður opin­bera þjón­ustu. Það er það sem hátt­virtur þing­maður er að segja og hátt­virtur þing­maður Björn Leví Gunn­ars­son er mjög ánægður með það. Við Íslend­ingar fórum í orku­skipti á undan öllum öðrum og við getum verið afskap­lega stolt af því og það gerði ekki bara gott fyrir umhverfið,“ sagði hann.

Halldóra kall­aði fram í og spurði hvað hann ætl­aði að gera annað.

Guð­laugur Þór hélt áfram og sagði það gerði ekki ein­ungis gott fyrir lofts­lagið. „Það gerðu líka gott fyrir efna­hags­lífið og jók sam­keppn­is­for­skot okkar á þessum sviðum. Við erum núna að fara í þá veg­ferð, að vísu eru aðilar sem ætla ekki í þá veg­ferð og það er þing­flokkur Pírata, að fara í þriðju orku­skiptin og það er gott fyrir lofts­lagið og það er gott fyrir okkur Íslend­inga.“

„Risaeðla í umhverfisráðuneytinu“

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata gerði orð ráð­herr­ans að umtals­efni undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta eftir fyr­ir­spurna­tím­ann og sagði að það væri orð­inn ákveð­inn plag­siður hjá ráð­herrum að mæta frekar með derr­ing en svör í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir.

Hann vildi vekja athygli á því að umhverf­is­ráð­herra hefði farið að hrópa: „Þing­mað­ur­inn hatar hag­vöxt.“

Andrés Ingi sagð­ist hafa haldið að „við hefðum vaxið upp úr fyrir svona fimmtán árum í umræð­unni um umhverf­is­mál en nei, það er risa­eðla í umhverf­is­ráðu­neyt­inu sem heldur að fólk sem vill hverfa frá því að ein­blína ein­göngu á hag­vöxt óháð því hvernig hann er til­kom­inn og hanna þannig grunn að sjálf­bæru sam­fé­lagi – að það fólk sé ein­hvern veg­inn úti að aka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár