Fjármagnstekjur þeirra sem búa á Seltjarnarnesi og í Garðabæ eru miklu hærri en annarra á höfuðborgarsvæðinu

Þeir sem til­heyra við­skipta- og atvinnu­lífsel­ít­unni eru mun lík­legri til að búa á Sel­tjarn­ar­nesi eða í Garðabæ en í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Með­al­tals­fjár­magnstekjur íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ voru umtals­vert hærri á síð­asta ári en í öðrum stærri sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á Sel­tjarn­ar­nesi voru þær 1.585 þús­und krónur á hvern íbúa í fyrra en 1.556 þús­und krónur í Garða­bæ. Á sama tíma voru þær 679 þús­und krónur á hvern íbúa Reykja­vík­ur, 746 þús­und krónur á íbúa í Kópa­vogi, 554 þús­und krónur á íbúa í Mos­fellsbæ og 525 þús­und krónur í Hafn­ar­firð­i.

Alls var með­al­tal fjár­magnstekna á land­inu 709 þús­und krónur og því voru með­al­fjár­magnstekjur á íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi tæp­lega 124 pró­sent hærri en hjá meðal Íslend­ingn­um og næstum 130 pró­sent hærri en hjá íbúum Reykja­víkur, Þess sveit­ar­fé­lags sem liggur að Nesinu.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá Hagstofu Íslands.

Til útskýr­ingar eru fjár­magnstekjur þær tekjur sem ein­stak­lingar hafa af eignum sín­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­ur, sölu­hagn­aður eða leigu­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­eign­um. Þeir sem fá mestar fjár­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­linga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­eignir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eignum.

Af stærri sveit­ar­fé­lögum, þeim sem eru með fleiri en fjögur þús­und íbúa, sker eitt sig úr þegar kemur að hækkun á fjár­magnstekjum í fyrra, Vest­manna­eyjar. Fjár­magnstekjur á mann þar fóru úr 377 í 3.608 þús­und krónur að með­al­tali á mann á árinu 2021. Senni­leg­asta skýr­ingin á þess­ari miklu hækkun felst í söl­unni á útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Berg Huginn til Síld­ar­vinnsl­unnar fyrir 4,9 millj­arða króna, en þau við­skipti voru sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í febr­úar í fyrra, og í kjöl­farið var gengið frá greiðslu kaup­verðs. Auk þess eru stór útgerð­ar­fé­lög, sem skil­uðu met­hagn­aði í fyrra, með heim­il­is­festi í Vest­manna­eyjum. Þar má helst nefna Ísfélag Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöð­ina, sem skil­uðu met­hagn­aði og greiddu hlut­höfum sínum mik­inn arð.

Eigendur Ísfé­lags­ins eiga einnig umtals­vert magn af skráðum hluta­bréfum í óskyldum greinum og fast­eignum víða um land, sem hækk­uðu mikið í virði á síð­asta ári.

Sterk búsetueinsleitni á meðal elítuhópa

Þeir sem búa á Sel­tjarn­ar­nesi eða í Garðabæ hafa í gegnum árin verið mun lík­legri til að hafa helstu tekjur sínar af nýt­ingu fjár­magns en íbúar ann­arra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeir hafa líka verið lík­legri til að vera í áhrifa­stöðum í við­skipta­líf­inu en nágrannar þeirra.

Árið 2007, þegar banka­góð­ærið var í algleym­ingi, náði með­al­tal fjár­magnstekna á hvern íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi til að mynda 3.738 þús­und krónum og 3.165 þús­und krónum í Garða­bæ. Þá var heild­ar­með­al­talið 775 þús­und krónur og með­al­tal fjár­magnstekna á Sel­tjarn­ar­nesi því næstum fjór­falt hærra en hjá meðal Íslend­ingn­um.

Þegar banka­bólan sprakk með látum dróg­ust þessar tekjur mest saman í þessum tveimur sveit­ar­fé­lögum.

Í grein sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og Stjórn­sýsla árið 2017 var fjallað um elítur á Íslandi og inn­byrðis tengsl þeirra. Rannsókn grein­ar­höf­unda, sem voru fræði­menn úr ýmsum deildum Háskóla Íslands, sýndi að sterk tengsl væru á milli elítu­flokka innan við­skipta-og atvinnu­lífs­ins ann­ars veg­ar, og félags- og hags­muna­sam­taka hins veg­ar. Einnig voru vís­bend­ingar um önnur tengsl, en valda­miklir ein­stak­lingar í fjöl­miðlum og stjórn­sýslu virt­ust tengj­ast elítu­hópum úr mörgum atvinnu­grein­um.

Grein­ar­höf­und­arnir athug­uðu líka sam­þjöppun ein­stak­linga sem mynd­uðu við­skipta­el­ít­una eftir póst­núm­er­um. Þar kom í ljós að sterk búsetu­eins­leitni ríkti meðal þeirra, þ.e. með­limir í fram­kvæmda­stjórnum fyr­ir­tækja voru lík­legri til að velja nágranna sína með sér í stjórn. Þegar litið var á búsetu með­lima við­skipta­el­ít­unnar kom í ljós að búsetu­eins­leitnin var sér­stak­lega áber­andi ef ein­stak­ling­arnir bjuggu á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ. Þessi tvö sveit­ar­fé­lög skáru sig úr, en þar bjuggu 150 pró­sent fleiri ein­stak­lingar í við­skipta- og atvinnu­lífsel­ít­unni en vænta hefði mátt út frá íbúa­fjölda á árunum 2014 til 2015.

Íbúar þess­ara tveggja sveit­ar­fé­laga eru einnig mun lík­legri til að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn en í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sá flokkur er með hreinan meiri­hluta Á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ, þar sem hann fékk um helm­ing allra greiddra atkvæða, á meðan að stuðn­ingur við hann er rúm­lega 24 pró­sent í Reykja­vík og á bil­inu 27 til 33 pró­sent í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Aðgerðir stjórnvalda og Seðlabanka lykilatriði

Á árinu 2019, áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, voru fjár­magnstekjur á mann á Íslandi að með­al­tali 520 þús­und krónur á ári. Í lok árs 2021, þegar tak­mörk­unum vegna far­ald­urs­ins var að mestu lokið og efna­hags­legar aðgerðir stjórn­valda vegna hans voru að mestu komnar til áhrifa, voru fjár­magnstekj­urnar orðnar 709 þús­und krónur að með­al­tali. Þær höfðu hækkað um 36,3 pró­sent á tveimur árum. 

Fjár­magnstekj­urnar dróg­ust saman á árinu árinu 2020. Sú heild­ar­aukn­ing sem varð á þeim átti sér því öll stað, og rúm­lega það, í fyrra. Raunar hækk­uðu með­al­tals fjár­magnstekjur um heil 47 pró­sent frá árs­lokum 2020 og fram að síð­ustu ára­mótum. Með­al­talið hækk­aði þó minna en heild­ar­tekj­urnar, líkt og komið verður inn á síðar í þess­ari umfjöllun.

Ríkisstjórn Íslands kynnti til leiks fjölmörg úrræði til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum kórónuveirufaraldursins. Mörg þeirra úrræða höfðu á endanum jákvæð áhrif á tækifæri fjármagnseigenda til að ávaxta pund sitt.
Rík­is­stjórn Íslands kynnti til leiks fjöl­mörg úrræði til að bregð­ast við efna­hags­legum afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Mörg þeirra úrræða höfðu á end­anum jákvæð áhrif á tæki­færi fjár­magns­eig­enda til að ávaxta pund sitt.

Þessi aukn­ing á fjár­magnstekjum á rætur sínar að stóru leyti að rekja til aðgerða stjórn­valda, sem kynntar voru sem við­bragð við efna­hags­legum áhrifum far­ald­urs­ins. Á árunum 2020 og 2021 greip rík­is­stjórnin og Seðla­­banki Íslands til marg­hátt­aðra aðgerða sem hleyptu súr­efni inn í hag­­kerf­ið. Má þar nefna miklar stuðn­ings­greiðslur til fyr­ir­tækja, sem höfðu þau hlið­ar­á­hrif að verja hluta­bréfa­eign fjár­magns­eig­enda frá höggi, ákvörðun Seðla­bank­ans að lækka stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent, sem gerði láns­fjár­magns ódýr­ara en nokkru sinni áður, og afnám sveiflu­jöfn­un­ar­aukans, sem jók svig­rúm við­skipta­banka til útlána um mörg hund­ruð millj­arða króna. Það svig­rúm nýttu þeir að uppi­stöðu í ný hús­næð­is­lán, sem bjó til villta vest­urs ástand á hús­næð­is­mark­aði og blés þar upp bólu.

Afleið­ing­­arnar hafa verið meðal ann­­ars verið þær að fast­eigna­verð og virði verð­bréfa hefur hækkað mik­ið, og eig­endur slíkra eigna á sama tíma ávaxtað fé sitt vel.

81 prósent fjármagnstekna til efsta lagsins

Kjarninn greindi frá því í júlíað í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­linga eftir tekju­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi 22. júní síð­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar fjár­magnstekjur á síð­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­sent allra fjár­magnstekna ein­stak­linga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­lingar 181 millj­arð króna í fjár­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­skyld­ur, var með tæp­lega 147 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári. Heild­ar­fjár­magnstekjur ein­stak­linga hækk­uðu um 57 pró­sent milli ára, eða alls um 65 millj­arða króna. Mest hækk­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­arðar króna á árinu 2021.

Fjár­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­tekj­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­ir. Alls um níu pró­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­magnstekjur. Fjár­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­sent, sem er mun lægra hlut­­fall en greitt er af t.d. launa­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­sent eftir því hversu háar tekj­­urnar eru. 

Í minn­is­blaði um áður­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­is­stjórn í síð­asta mán­uði var þetta stað­fest. Þar kom fram að hækk­andi skatt­greiðslur efstu tekju­tí­und­ar­innar séu fyrst og síð­ast til­komnar vegna þess að fjár­magnstekjur þeirra hafa stór­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­sent af öllum fjár­magnstekju­skatti.

Rúmur helmingur af nýjum auði fór til efstu tíundarinnar

Í tölum sem Hagstofa Íslands birti í júlí kom fram að af þeim 608 nýju millj­örðum króna sem urðu til í fyrra fóru 331 millj­arður króna til efstu tíund­ar­inn­ar. Það er hlut­falls­lega mun meira en rík­asta lagið tók til sín árin á undan.

Ástæður þess að fjár­magnstekjur hafa auk­ist svona mikið eru fyrst og síð­ast þær að virði hluta­bréfa hefur auk­ist gríð­ar­lega á kór­ónu­veiru­tím­anum og fast­eigna­verð hefur rokið upp um tugi pró­senta. Rík­­­ustu tíu pró­­sent Íslend­inga juku eign sína í verð­bréfum um 93,4 millj­arða króna á árinu 2021. Þessi eign er þó metin á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði, og því var hún van­metin um síð­ustu ára­mót.

Heild­­ar­aukn­ing í eign á verð­bréf­um, sem eru að upp­i­­­stöðu hluta­bréf og skulda­bréf, á meðal allra lands­­manna var upp á 105,3 millj­­arða króna. Því eign­að­ist efsta tíund­in, rúm­­lega 23 þús­und ein­stak­l­ing­­ar, í tekju­­stig­­anum 89 pró­­sent af virði nýrra verð­bréfa á síð­­asta ári.

Þessi hópur fékk líka miklar arð­greiðslur út úr fyr­ir­tækj­unum sem hann átti hluta­bréf í og, líkt og áður sagði, var hann dug­legur við að selja bréfin á háu verði í fyrra fyrir mik­inn sölu­hagnað sem mynd­aði fjár­magnstekjur.

Flestir lands­menn eiga eina teg­und eigna sem hefur vaxið mikið í virði, fast­eign­ina sem þeir búa í. Það er enda þannig að tæp­lega 76 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á aukn­ingu á eigin fé frá 2010 er vegna hækk­andi fast­eigna­verðs. Slík hækkun hefur þá hlið­ar­verkun að stjórn­völd geta stært sig af því að skulda­staða heim­il­anna sé að batna. Hlut­falls­lega er hún lægra hlut­fall af upp­blásnu mark­aðsvirði.

Þessi staða er hins vegar ekki staða í hendi hjá þeim sem eiga eina eign, og þurfa að búa í henni, þótt auður verði til á blaði sam­hliða miklum hækk­un­um. Flestir þurfa að kaupa sér nýja eign ef þeir selja gömlu, og nýju eign­irnar hafa líka hækkað að jafn­aði jafn mikið í virði.

Í tölum frá Þjóðskrá Íslands kemur fram að næstum 53 þús­und íbúðir á Íslandi eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina íbúð. Þ.e. ein­hverra sem geta haft tekjur af útleigu ann­arrar íbúðar en þeirrar sem við­kom­andi býr í. Í svörum sem Kjarninn fékk frá Þjóðskrá í lok síð­asta árs kom fram að á fimmta þús­und áttu fleiri en tvær íbúðir og 453 ein­stak­lingar eða lög­að­ilar áttu fleiri en sex íbúðir. Þetta er hóp­ur­inn sem hefur hagn­ast mest á hækk­andi hús­næð­is­verði.

Afar senni­legt er að þorri þessa hóps til­heyri þeim tíu pró­sent lands­manna sem eru með hæstu tekj­urn­ar. Sá hópur hefur aukið eigið fé sitt í fast­eignum um 1.551 millj­arð króna frá árinu 2010. Það þýðir að 45 pró­sent af allri aukn­ingu á eigin fé heim­ila vegna hækk­unar á fast­eigna­verði fór til þessa hóps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár