Klíkuskapur í atvinnulífinu á Íslandi

Líklegt er að klíku­skapur ríki í valda­miklum stöðum úr við­skipta- og atvinnu­líf­inu hér á landi, sam­kvæmt nýbirtri grein í tíma­rit­inu Stjórn­mál og Stjórn­sýsla.

Vís­bend­ingar eru um klíku­skap í atvinnu­líf­inu á Íslandi, sam­kvæmt nýrri grein Magnúsar Þórs Torfa­sonar, Þor­gerðar Ein­ars­dóttur, Guð­bjargar Lindu Rafns­dóttur og Mar­grétar Sigrúnar Sig­urð­ar­dóttur í Stjórn­málum og Stjórn­sýslu. Stjórn­ar­með­limir fyr­ir­tækja eru lík­legir til að búa nálægt hvorum öðrum, sér í lagi ef þeir eru virkir í stjórn­mála- eða íþrótta­starfi.

Nýbirt grein Magnúsar Þórs Torfa­sonar, lekt­ors í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Þor­gerðar Ein­ars­dóttur, pró­fess­ors við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, Guð­bjargar Lindu Rafns­dóttur, pró­fess­ors við félags- og mann­vís­inda­deild Háskóla Íslands, og Mar­grétar Sigrúnar Sig­urð­ar­dóttur, lekt­ors við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í tíma­rit­inu Stjórn­mál og Stjórn­sýsla, fjallar um elítur á Íslandi og inn­byrðis tengsl þeirra. Þar er farið yfir valda­mikla hópa á flestum sviðum sam­fé­lags­ins, en sjónum beitt að elítu­myndun innan við­skipta- og atvinnu­lífs­ins á árunum 2014-2015.

Mikill jöfnuður á Íslandi

Samkvæmt grein­inni hefur það gjarnan verið trú Íslend­inga að félags­legur og efna­hags­legur jöfn­uður ein­kenni þjóð­ina og að hvers konar elítur séu lítt áber­andi. Það við­horf að sam­fé­lagið væri að mestu leyti stétt­laust sé ríkj­andi á Íslandi, eitt af lyk­il­at­riðum í sjálfs­mynd og lífs­við­horfum lands­manna hafi löngum verið jafn­að­ar­andi sem lýsir sér í því að Íslend­ingar geri lít­inn manna­mun sín á milli.

Í þessu til­felli hefur Ísland einnig komið vel út í alþjóð­legum sam­an­burði. Samkvæmt Alþjóða­efna­hags­ráð­inu (World Economic Forum) var jafn­rétti kynj­anna mest hér á landi í fyrra, átt­unda árið í röð. Einnig er Gini-stuð­ull Íslands lægstur allra OECD landa, sem bendir til þess að tekju­jöfn­uður hér sé meiri en ann­ars staðar.

Hins vegar hefur þró­unin á síð­ustu árum hér á landi verið í átt að meiri ójöfn­uði, rétt eins og á öðrum Vest­ur­löndum. Bent er á það í skýrsl­unni að auður hennar rík­ustu hafi farið vax­andi á meðan lífs­kjör almenn­ings hafa staðið í stað. Sterk tengsl séu milli elítu­mynd­unar og vax­andi ójafn­aðar, bæði leiði til sam­þjöpp­unar valda hjá eins­leitum hópum innan sam­fé­lags­ins.

Gamlir karlar í Garðabæ

Í grein sinni athug­uðu grein­ar­höf­undar tengsl valda­hópa innan íslensks sam­fé­lags. Þar kom í ljós að sterk tengsl séu milli elítu­flokka innan við­skipta-og atvinnu­lífs­ins ann­ars vegar, og félags- og hags­muna­sam­taka hins vegar. Einnig voru vís­bend­ingar um önnur tengsl, en valda­miklir ein­stak­lingar í fjöl­miðlum og stjórn­sýslu virt­ust tengj­ast elítu­hópum úr mörgum atvinnu­greinum.

Grein­ar­höf­undar athug­uðu einnig sam­þjöppun ein­stak­linga sem mynda við­skipta­el­ít­una eftir póst­núm­erum. Athygli vekur að sterk búsetu­eins­leitni ríkir meðal þeirra, þ.e. með­limir í fram­kvæmda­stjórnum fyr­ir­tækja eru lík­legri til að velja nágranna sína með sér í stjórn.

Ef litið er á búsetu með­lima við­skipta­el­ít­unnar kemur í ljós að búsetu­eins­leitnin er sér­stak­lega áber­andi ef ein­stak­ling­arnir búa í Garðabæ eða á Sel­tjarn­ar­nesi. Þessi tvö sveit­ar­fé­lög skera sig út, en þar búa 150% fleiri ein­stak­lingar í við­skipta- og atvinnu­lífsel­ít­unni en vænta hefði mátt út frá íbúa­fjölda.

Einnig er áhuga­vert að búsetu­eins­leitnin virð­ist sterk­ari hjá ákveðnum hópum ein­stak­linga, til dæmis meðal eldri ein­stak­linga og karl­manna. Sér í lagi vekur athygli að stjórn­ar­menn eru mun lík­legri til að koma úr sama póst­núm­eri eftir því sem þeir eru virk­ari í stjórn­mála- og íþrótta­starfi. 

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar benda til þess að eitt­hvað virð­ist vera um klíku­skap í íslensku sam­fé­lagi. Aðgengi að valda­miklum stöðum í við­skipta- og atvinnu­líf­inu sé ekki jafn­opið og oft er haldið fram, en það virð­ist markast að ein­hverju leyti af búsetu ein­stak­linga. Að lokum bendir Magnús á að vinna þurfi mark­visst að því skilja betur hvernig megi bæta þessa þætti til að stuðla að lýð­ræð­is­legri upp­bygg­ingu valda­mik­illa staða á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

elítur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár