Ríkisbankar vilja ekki upplýsa um fjárhæðir vegna færslu greiðslukortaviðskipta

Hvorki Íslands­banki né Lands­bank­inn vilja svara því hversu miklar fjár­hæðir séu undir vegna færslu á við­skipta­vinum þeirra til MasterCard ann­ars vegar og VISA hins vegar. Íslands­banki er stærsti eig­andi Borgunar, sem bank­inn er í við­skiptum við.

Hvorki Íslands­banki eða Lands­bank­inn, sem báðir eru í eigu íslenska rík­is­ins, vilja svara því hversu miklar fjár­hæðir séu undir vegna ákvörð­unar þeirra að færa alla við­skipta­vini sína í þjón­ustu eins greiðslu­korta­fyr­ir­tækis. Allir við­skipta­vinir Íslands­banka hafa annað hvort verið, eða verða, færðir í korta­við­skipti við MasterCard sem íslenska greiðslu­korta­fyr­ir­tækið Borgun sér um útgáfu fyrir og allir við­skipta­vinir Lands­bank­ans hafa annað hvort verið, eða verða, færðir í korta­við­skipti við VISA sem greiðslu­korta­fyr­ir­tækið Valitor sér um.

Íslands­banki á 63,47 pró­sent hlut í Borgun og ljóst að samn­ingur bank­ans við MasterCard og Borgun mun færa fyr­ir­tæk­inu auknar tekjur, enda munu um 40 pró­sent við­skipta­vina bank­ans fær­ast yfir til MasterCard. Hinir voru þar fyrir. Þær auknu tekjur munu skila Íslands­banka sem eig­anda auk­inni arð­semi.

Hjá Lands­bank­anum er færslan mun minni, en undir tvö pró­sent við­skipta­vina hans munu fær­ast úr MasterCard til VISA. Lands­bank­inn á ekki lengur hlut í íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tæki eftir að hafa selt hlut sinn í bæði Borgun og Valitor á und­an­förnum árum. Sala hans á hlut sínum í Borgun hefur verið mjög umdeild, líkt og Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um.

Arion banki mun áfram bjóða við­skipta­vinum sínum upp á bæði Visa og MasterCard kort. Valitor er að nán­ast öllu leyti í eigu Arion banka.

Þýðir breytingu á tugþúsundum kortum

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Íslands­banka um hvert umfang þeirra fjár­hæða sem séu undir í samn­ingi bank­ans við MasterCard og Borgun. Þ.e. hversu miklar fjár­hæðir séu undir á árs­grund­velli. Í svari Íslands­banka segir að það geti ekki upp­lýst um hversu háar fjár­hæðir sé að ræða. Færsla bank­ans alfarið yfir í MasterCard-kort þýði breyt­ingu á 34 þús­und kredit­kortum og 90 þús­und debet­kortum við­skipta­vina ÍSlands­banka. Þegar sé búið að skipta út 38 pró­sent þeirra.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Íslands­banka fór hann í útboð með þjón­ust­una og fór það fram í byrjun árs 2013. Í kjöl­farið samdi bank­inn við alþjóð­lega greiðslu­korta­fyr­ir­tækið MasterCard og íslenska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Borgun síðla þess árs. Sú ákvörðun var tekin af bank­anum eftir að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið KPMG hafði gert úttekt á til­boðum sem bár­ust, en alþjóð­lega greiðslu­korta­fyr­ir­tækið VISA og hið íslenska Valitor, sem er helsti útgef­andi og þjón­ustu­að­ili VISA á Íslandi, gerðu einnig til­boð. Um er að ræða fimm ára samn­ing og Íslands­banki segir að nýtt útboð á þjón­ust­unni muni fara fram þegar sá samn­ingur rennur út. Við­skipta­vinum Íslands­banka var kynnt þessi breyt­ing í októ­ber 2014.

Íslands­banki segir að tvær meg­in­á­stæður hafi verið fyrir því að hann kjósi að ein­beita sér ein­göngu að MasterCard-kortum. Það ein­faldi vöru­fram­boð bank­ans og að með MasterCard séu við­skipta­vinir hans og bank­inn sjálfir „betur í stakk búinn til þess að taka þátt í þeirri þróun og þeim breyt­ingum sem framundan eru í korta­heim­inum.“

Í nóv­em­ber 2014 leit­aði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum hjá Valitor um málið og hversu miklum tekjum fyr­ir­tækið yrði af vegna færslu á allri útgáfu­þjón­ustu vegna greiðslu­korta frá þeim til Borgunar. Fyr­ir­tækið vildi ekki veita neinar upp­lýs­ingar um málið.

Byrjað var að skipta út öllum debet­kortum hjá við­skipta­vinum Íslands­banka í byrjun árs í fyrra.

Landsbankinn segir að um viðskiptaupplýsingar sé að ræða

Kjarninn beindi einnig fyr­ir­spurn til Lands­bank­anst um umfang þeirri við­skipta sem færð­ust frá MasterCard til VISA, og þar af leið­andi frá Borgun til Valitor, þegar bank­inn ákvað að allir við­skipta­vinir hans ættu að vera með VISA kredit- og debet­kort.

Í svari bank­ans segir að um afar litla breyt­ingu sé að ræða. Um tvö þús­und ein­stak­lingar og um 500 fyr­ir­tæki voru með MasterCard-kredit­kort frá Lands­bank­anum, en Borgun sá um um útgáfu á þeim. Hlutfall þeirra í heild­ar­fjölda kredit­korta hjá bank­anum var undir tvö pró­sent. Yfir 98 pró­sent við­skipta­vina Lands­bank­ans voru því þegar með VISA-greiðslu­kort sem Valitor þjón­ustar útgáfu á.

Þegar ákvörð­unin var tekin um það að Lands­bank­inn myndi ein­ungis gefa út VISA-kort var farið í verð- og fýsi­leika­könnun hjá þeim aðilum á íslenskum mark­aði sem bjóða upp á slíka útgáfu­þjón­ustu. Bæði Borgun og Valitor skil­uðu inn til­boði og að mati Lands­bank­ans var til­boð Valitor hag­stæð­ara. Því var samið við það fyr­ir­tæki um útgáfu­þjón­ustu. Samn­ing­ur­inn er til fjög­urra ára og Lands­bank­inn segir að þegar honum ljúki verði að nýju leitað til­boða í útgáfu­þjón­ustu.

Lands­bank­inn vill hins vegar ekki gefa upp hvaða verð hann fékk hjá Valitor í tengslum við útboðið. Það séu við­skipta­upp­lýs­ingar sem snúi að sam­keppni milli fyr­ir­tækja sem sinni útgáfu greiðslu­korta á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár