Icelandair segir upp 240 manns og setur 92 prósent starfsmanna í skert starfshlutfall

Tilkynnt var um gríð­ar­stórar aðgerðir hjá Icelandair á starfs­manna­fundi í morgun. Fjöl­mörgum sagt upp og stærsti hluti hinna fara í úrræði rík­is­stjórn­ar­innar. For­stjór­inn lækkar um 30 pró­sent í launum.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Icelandair hefur sagt upp 240 starfs­mönnum og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna munu fara í skert starfs­hlut­fall tíma­bundið. Þessi hópur fellur undir úrræði rík­is­stjórn­ar­innar um mót­fram­lag eftir því sem við á. Þessi leið hefur betri áhrif á sjóð­streymi félags­ins en upp­sagnir þar sem upp­sagn­ar­frestur er greiddur.

Upp­sagn­irnar ná til flestra hópa innan félags­ins en heild­ar­fjöldi stöðu­gilda hjá Icelandair Group var að með­al­tali 4.715 á árinu 2019. Þeir starfs­menn sem verða áfram í fullu starfi lækka um 20 pró­sent í launum. Fram­kvæmda­stjórar lækka um 25 pró­sent og laun for­stjóra og stjórnar lækka um 30 pró­sent.

Frá þessu var greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sem send var út í morgun og á starfs­manna­fundi sem hófst hjá Icelandair klukkan 9:30.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir að þetta séu sögu­legir tímar þar sem heims­far­aldur geisar sem hefur haft gríð­ar­leg áhrif á flug og ferða­lög. „Mik­il­væg­asta verk­efnið núna er að tryggja rekstr­ar­grund­völl Icelandair Group til fram­tíðar. Þær aðgerðir sem við kynntum fyrir starfs­fólki okkar í dag eru sárs­auka­fullar en nauð­syn­legar til að tak­marka áhrif þeirra aðstæðna sem uppi eru á rekstur og sjóð­streymi félag­ins.

Félagið hefur stað­ist ýmis áföll í gegnum tíð­ina, hvort sem það hefur verið bar­átta við nátt­úru­öflin, efna­hagslægðir eða aðra utan­að­kom­andi þætti. Við höfum kom­ist í gegnum þau öll með sam­stöðu og útsjón­ar­semi, en fyrst og fremst með þeim ein­staka bar­áttu­anda og krafti sem ávallt hefur ein­kennt starfs­fólk félags­ins. Það hefur svo sann­ar­lega sýnt sig und­an­farna daga og vikur. Ég er stoltur og þakk­látur að til­heyra þeirri öfl­ugu liðs­heild sem starfs­fólk Icelandair Group myndar og er sann­færður um að við komumst í gegnum þessar krefj­andi aðstæður.“

Í til­kynn­ing­unni segir að for­sendur fyrir milli­landa­flugi og ferða­lögum hafa breyst veru­lega á skömmum tíma vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Icelandair Group hafi á und­an­förnum vikum gripið til víð­tækra ráð­staf­ana til þess að tryggja rekstr­ar­grund­völl félags­ins til fram­tíðar.“

Icelandair hafi á liðnum vikum nýtt sér þann sveigj­an­leika sem felst í leiða­kerfi félags­ins og aðlagað þannig fram­boð að eft­ir­spurn sem jafnt og þétt hefur farið minnk­andi í kjöl­far ferða­tak­mark­ana víðs vegar um heim. „Félagið hefur jafn­framt breytt áætlun til að koma við­skipta­vinum til síns heima innan þess ramma sem ferða­tak­mark­anir hafa leyft. Í dag flýgur félagið um 14 pró­sent af upp­haf­legri flug­á­ætlun og gert er ráð fyrir enn meiri sam­drætti á kom­andi vikum. Eins og gefur að skilja hefur útbreiðsla veirunnar einnig haft tölu­verð áhrif á starf­semi ann­arra félaga innan sam­stæðu Icelandair Group. Má þar helst nefna fækkun far­þega í inn­an­lands­flugi og stöðvun flugs til Græn­lands hjá Air Iceland Connect sem og fækkun gesta hjá Icelandair Hotels.“

Stærsti kostn­að­ar­liður félags­ins sé launa­kostn­aður því sénauð­syn­legt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostn­aði. „Mót­væg­is­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar og sam­starf við Félag íslenskra atvinnu­flug­manna, Flug­freyju­fé­lag Íslands, Flug­virkja­fé­lag Íslands og önnur stétta­fé­lög gera félag­inu kleift að draga úr upp­sögnum sem nauð­syn­legt hefði verið að ráð­ast í vegna þeirrar stöðu sem nú ríkir.“

Þá hefur félagið að und­an­förnu leitað leiða til að draga úr útstreymi fjár­magns, svo sem með því að end­ur­semja við birgja og fjár­mögn­un­ar­að­ila. „Öllum þessum aðgerðum er ætlað að auka sveigj­an­leika félags­ins til að takast á við núver­andi aðstæður, lækka rekstr­ar­kostnað og bæta sjóðs­streymi. Fjár­hags­leg áhrif útbreiðslu COVID-19 veirunnar eru enn óljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár