Eldri kjósendur réðu niðurstöðum kosninga í Englandi

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­unar YouGov réðu atkvæði eldri kjós­enda úrslitum í nýaf­stöðnum kosn­ingum á Englandi. Gíf­ur­legur munur er á kjör­sókn og kjör­fylgi eftir ald­urs­hópum.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands Mynd: EPA

Mikill munur er á kosn­inga­nið­ur­stöðum og kjör­sókn eftir aldri í nýaf­stöðum alls­herj­ar­kosn­ing­unum til enska þings­ins. Eru þetta nið­ur­stöður úr könnun bresku grein­inga­stofn­un­ar­innar YouGov, sem birt var á dög­unum. Nið­ur­stöð­urnar virð­ast vera í takt við þróun sem hefur átt sér stað á Vest­ur­löndum.

Í kjöl­far alls­herj­ar­kosn­ing­anna sem fóru fram í Englandi 8. júní síð­ast­lið­inn fram­kvæmdi breska grein­inga­stofn­unin YouGov könnun á kosn­inga­nið­ur­stöðum og kjör­sókn eftir aldri, stétt, kyni, menntun og stöðu á vinnu­mark­aði. Úrtak könn­un­ar­innar var stórt, en tæp 53 þús­und kjós­enda svör­uðu henni.

Samkvæmt könn­un­inni er gíf­ur­legur munur á kosn­inga­nið­ur­stöðum eftir ald­urs­hópum. Aðeins 19% kjós­enda undir tví­tugu kusu Íhalds­flokk­inn, á meðan sama hlut­fall meðal kjós­enda yfir sjö­tugu er 69%. Svo sterk er fylgnin milli ald­urs og atkvæða til Íhalds­flokks­ins að með hverju ald­ursári juk­ust líkur bresks kjós­enda á að kjósa Íhalds­flokk­inn um tæpt 1%.

Bein fylgni var einnig milli kjör­sóknar og ald­urs, en hún var aðeins 57% kjós­enda undir tví­tugu, miðað bið 84% kjós­enda yfir sjö­tugt. Þar sem mik­ill munur hafi verið á kjör­sókn og stjórn­mála­skoð­unum eftir aldri er ljóst að sigur Íhalds­flokks­ins hafi aðal­lega verið til­kom­inn vegna eldri kjós­enda, en flokk­ur­inn hlaut um 44% atkvæða í kosn­ing­unum.

Þrátt fyrir að kjör­sókn ungra kjós­enda hafi verið undir með­al­lagi var hún meiri en búist var við í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Samkvæmt nið­ur­stöðum YouGov er hægt að álykta að óvænt kjör­sókn ungra kjós­enda hafi verið ein af meg­in­á­stæðum þess að Verka­manna­flokk­ur­inn hafi fengið mun meiri atkvæði en búist var við. Þegar blásið var til kosn­inga 18. apríl mæld­ist flokk­ur­inn í 25%, en fékk svo rúm­lega 40% atkvæða á kjör­dag.

Samhliða kjör­sókn og aldri einnig virt­ist mennt­un­ar­stig einnig tengj­ast kosn­inga­nið­ur­stöðum með mark­tækum hætti. Kjós­endur með lægra mennt­un­ar­stig voru mun lík­legri til að hafa kosið Íhalds­flokk­inn, 55% kjós­enda sem höfðu lokið GCSE-próf (ígildi gagn­fræða­prófs) eða minna kusu hann, sam­an­borið við 32% kjós­enda með háskóla­gráðu. Kosn­inga­úr­slit voru einnig skoðuð eftir kyni og þjóð­fé­lags­stöðu, en ekki reynd­ist mik­ill munur á kjör­fylgi flokka milli þeirra hópa.

Svipuð þróun á Vesturlöndum

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sam­rým­ast ágæt­lega nið­ur­stöðum ann­arra kann­anna, bæði í Englandi (hér og hér) og í Banda­ríkj­unum. Kjörsókn eldri kjós­enda hefur að jafn­aði verið meiri en yngri kjós­enda og eru þeir einnig lík­legri til að kjósa íhalds­sama flokka. Nið­ur­staða þess­ara tveggja þátta gæti þannig leitt til auk­ins vægis íhalds­sam­ari flokka á þingi en end­ur­spegli stjórn­mála­skoð­unum allra sem eru kjör­gengir. Vægi eldri kjós­enda hefur einnig auk­ist sam­hliða hækk­andi með­al­ald­urs á Vest­ur­löndum á síð­ustu ára­tugum, en ástandið hefur orðið að hug­taki innan stjórn­mála­fræð­innar, sem á ensku er kallað „gerontocracy”.

Senni­legt er að slíkt ástand ríki að ein­hverju leyti á Íslandi líka, en líkt og Kjarninn greindi frá fyrir tveimur árum voru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lang­vin­sæl­astir meðal kjós­enda 68 ára og eldri. Einnig virð­ast eldri kjós­endur vera mun dug­legri að skila sér á kjör­stað á Íslandi. Í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum kusu 69% kjós­enda undir tví­tugu, sam­an­borið við 90% kjós­enda á ald­urs­bil­inu 65-69 ára, eins og sést á mynd að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár