Byggja baðstaði í ósnortinni náttúru

Eigendur Bláa lóns­ins hafa fjár­fest í bað­tengdri ferða­þjón­ustu víðs vegar um landið. Framan af voru byggð upp böð við sjó og vötn en nú er sjónum beint að hálendi Íslands. Nýjar fjár­fest­ingar eru hluti aðgerða eig­enda til að dreifa áhætt­unni við rekstur fyr­ir­tæk­is­ins í námunda við Reykja­nes­elda.

Eigendur Bláa lóns­ins hafa nýtt hagnað af rekstri lóns­ins í Svarts­engi til upp­bygg­ingar víða um land. Á síð­ustu árum hafa þær fjár­fest­ingar færst frá rekstri bað­staða sem nýta auka­af­urðir orku­vinnslu, yfir í stór­huga fram­kvæmdir í nátt­úru Íslands. Dótt­ur­fyr­ir­tæki Bláa lóns­ins standa fyrir upp­bygg­ingu í Kerl­ing­ar­fjöllum, Þjórs­ár­dal og Hoffelli, auk þess að hafa tekið áður þátt í að byggja bað­staði víða um land. Heim­ildin hefur tekið saman lista yfir alla bað­staði sem Bláa lónið teng­ist. 

Hoffell

Bláa lónið keypti sum­arið 2024 bróð­ur­part jarð­ar­innar Hoffell 2 í Horna­firði. Byggja á upp bað­stað, veit­inga­stað og hótel í námunda við jök­ul­lónið. Selj­endur voru hjónin Þrúðmar Þrúð­mars­son og Ingi­björg Stef­áns­dóttir, sem hafa rekið gist­ingu og heitar laugar á jörð­inni síð­ast­lið­inn ára­tug. Fyr­ir­huguð upp­bygg­ing er skammt frá Hof­fellsjökli, sem skríður úr Vatna­jökli, og verður útsýni yfir jök­ul­lónið sem þar er. Þegar er búið að semja við RARIK, orku­fyr­ir­tæki í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Eyðileggja allt sem þeir koma nálægt, og breyta því í ómanneskjulegar gróðavélar
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    "Untouched nature" is history! Human intrusion and destruction everywhere!
    0
  • JDÓ
    Jóna Dóra Óskarsdóttir skrifaði
    Áhugavert efni. Fróðlegt væri að fá nánari umfjöllun um/skýringu á eftirfarandi:
    "Baðstaðurinn er innan friðlýsts svæðis en þarf ekki að fara í gegnum umhverfismat, þrátt fyrir að vera orðið tvöfalt stærra en upphaflega stóð til."
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár