Hollande segir Íslamska ríkið ábyrgt fyrir árásunum

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, segir Íslamska ríkið (ISIS) bera ábyrgð á árás­unum í París í gær, þar sem að minnsta kosti 128 manns létu lífið og um 100 manns særð­ust alvar­lega. Hann segir árás­irnar, sem eru mann­skæð­ustu hryðju­verka­árásir í Evrópu síðan í Madríd 2004, sem hug­lausum og sem stríðs­að­gerð (e. act of war). Hollande segir að Frakk­land muni verja sig í þessum aðstæðum. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Ráðist var á París, höf­uð­borg Frakk­lands, í gær­kvöldi. Talið er að árás­ar­menn­irnir hafi verið átta og eru þeir allir látnir, sjö þeirra með því að sprenga sjálfa sig í loft upp. Vit­orðs­menn ganga þó enn lausir. Árá­sa­menn­irnir drápu að minnsta kosti 128 manns og særðu um 200 í við­bót, þar af um 100 alvar­lega. Ráðist var á fólkið með hríð­skota­byssum og sprengjum við þjóð­ar­leik­vang Frakka, á börum, veit­inga­stöðum og í tón­leika­sal í París. Allir stað­irnir áttu það sam­eig­in­legt að vera staðir þar sem fólk fer til að skemmta sér. Til að horfa á fót­bolta, drekka, borða, hlusta á tón­list. Og sam­kvæmt fregnum flestra miðla heims var árás­unum ekki beint gegn neinum sér­stökum ein­stak­lingum. Árás­ar­menn­irnir voru að reyna að myrða sem flesta.

Árás­irnar, sem virð­ast þaul­skipu­lagðar, áttu sér stað á sex mis­mun­andi stöðum víðs­vegar um París, sam­kvæmt The Guardian.Tvær sjálfs­morðsárásir voru gerðar á Stade de France, þjóð­ar­leik­vang Frakka í norð­ur­hluta borg­ar­innar, á meðan að lands­lið Frakka lék æfinga­leik við Þýska­land. Fleiri sprengjur sprungu við leik­vang­inn.

Flestir sak­lausir borg­arar féllu hins vegar á tón­leika­staðnum Bataclan, þar sem banda­ríska hljóm­sveitin Eagles of Death Metal var með tón­leika. Þar lét­ust 87 manns, sam­kvæmt The Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár