Baráttan um Brókina

Þeir sem í síð­ustu viku ætl­uðu að smella sér inn á Skind­buk­sen (Brókina) í mið­borg Kaup­manna­hafnar og fá sér hakkebøf, biksemad eða skipp­erlabskovs hafa lík­lega hrokkið við þegar þeir komu þar að læstum dyrum. Óljóst er hvað verður um stað­inn.

Upphaf Skind­buk­sen, í kjall­ar­anum á Lille Kon­g­ens­gade 4 við Kóngsins Nýjatorg, má rekja til þess að á efri hæð húss­ins var veit­inga­stað­ur­inn Grand Café sem þótti bæði fínn og virðu­legur. Í kjall­ar­anum var bar og veit­inga­staður,eins­konar útibú frá veit­inga­staðnum, sýnu alþýð­legra. Meðal við­skipta­vina voru vagn­menn (kúskar, droskeku­skere) sem fluttu far­þega, á hest­vögnum, milli staða líkt og leigu­bíl­stjórar nútím­ans. Milli ferða fengu þeir sér hress­ingu í kjall­ar­anum sem fékk nafnið Kúska­kjall­ar­inn (Droskekæld­eren). Þegar sjálfrenn­ing­arnir (eins og opnir bílar voru fyrst kall­aðir) leystu hest­vagn­ana af hólmi breytt­ist nafnið í Bíl­stjóra­kjall­ar­ann. Bíl­stjór­arnir klædd­ust iðu­lega skinn­buxum og árið 1930 var nafni stað­ar­ins breytt í Skind­buk­sen.

Vinsæll meðal Íslendinga

Margar sögur, sannar og ósannar, eru til um veru Íslend­inga í Kaup­manna­höfn fyrr á tímum. Í frá­sögnum koma verts­húsin á svæð­inu kringum Kóngsins Nýjatorg mjög við sögu. Stephan a Porta, Hviids vinstue, Pedrini, Pleisch, Genelli og Skind­buk­sen. Íslend­ingar gáfu þessum stöðum íslensk nöfn; Mjóni (eftir veit­inga­mann­inum Mini) Hvítur, Pétur drengur, Blesi, Njáll og Brókin. Flestir þess­ara staða heyra nú sög­unni til, ef frá eru taldir Hvítur og Brókin. Í minn­ingum Íslend­inga, einkum frá 18. og 19. öld eru þessir tveir ásamt Mjóna fyr­ir­ferð­ar­mestir. Brókin var frá upp­hafi bæði bar og mat­sölu­staður. Þótt eng­inn væri mat­seð­ill­inn vissu fasta­gestir alltaf hvað var á boðstólum, ekki bara í dag heldur líka á morgun. Með því að skoða mat­seðil Grand Cafe, á efri hæð­inni, var ætíð hægt að reikna út hvað „gefið yrði á garð­ann á Brókinni dag­inn eftir“ (orða­lag Björns Th. Björns­sonar í bók hans um Kaup­manna­höfn). Biksemad, með spæ­leggi hefur í ára­tugi verið einn vin­sæl­asti og ódýr­asti réttur stað­ar­ins og svo er enn, kost­aði, þegar skrif­ari þessa kíkti á mat­seð­il­inn fyrir skömmu kr. 129.- ( 2.170.- íslenskar).

Griðastaður listamanna

Vin­sældir Brók­ar­innar hafa í gegnum árin ekki verið bundnar við Íslend­inga. Stað­ur­inn hefur notið mik­illa vin­sælda lista­manna, sem þar hafa „rætt málin og farið yfir sviðið“ eins og yfir­þjónn stað­ar­ins komst að orði í blaða­við­tali fyrir nokkru. Veggi og loft veit­inga­sal­ar­ins prýða fjöl­margar myndir, sumar mál­aðar beint á stein­inn. Þar má sjá and­lits­myndir fjöl­margra þekktra danskra lista­manna og framá­manna í dönsku menn­ing­ar­lífi, blaða­manna, og Íslend­inga. Í áður­nefndu við­tali sagði yfir­þjónn stað­ar­ins að stundum hefðu lista­menn, með létta pyngju, boðið mynd sem greiðslu fyrir veit­ing­arnar. Meðal Íslend­inga sem héldu tryggð við Brókina og sátu þar tíðum var Alfreð Flóki og ljós­mynd af honum hefur árum saman hangið þar á vegg.

Gamalt norrænt eldhús

Á und­an­förnum tveimur ára­tugum hefur hinum gömlu dönsku veit­inga­stöðum sem bjóða uppá það sem sumir kalla gam­al­dags mat fækkað nokkuð. Hakka­buff, pur­u­steik, áður­nefndur biksi­matur og fleira af því tagi naut skyndi­lega ekki sömu vin­sælda og áður. Pizzur og pasta ásamt margs konar skyndi­bita komu í stað­inn. Svo kom „nýja nor­ræna eld­húsið“. Staðir eins og Brókin þóttu gam­al­dags, höfðu ekki aðlagað sig breyttum tímum var gjarna sagt. Títt­nefndur yfir­þjónn á Brókinni sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að þar á bæ hefðu menn hugsað sér að halda sig við „gamla nor­ræna eld­húsið“ eins og hann kall­aði það. Án þess að gert sé lítið úr öllu því nýja hefur það gamla sótt í sig veðrið á nýjan leik, ekki síst „smør­rebr­auðs­stað­irnir“ sem um skeið voru orðnir mjög fáir í Kaup­manna­höfn, og víðar í Danmörku.

Miklar breytingar í miðborg Kaupmannahafnar

Á síð­ustu árum hafa orðið miklar breyt­ingar á mið­borg Kaup­manna­hafnar. Margar gam­al­grónar versl­anir hafa lagt upp laupana, ekki síst á Strikinu. Í stað­inn hafa komið útibú versl­ana sem finna má nán­ast í hvaða borg sem er. Sama gildir um mat­sölu­stað­ina. Fyrir nokkrum árum var til dæmis veit­inga­staðnum Stephan a Porta (Mjóna), elsta kaffi­húsi Kaup­manna­hafnar lokað og þar er nú McDonalds ham­borg­ara­staður.

Mörgum hugn­ast ekki breyt­ingar af þessu tagi, segja að með allri „alþjóða­væð­ing­unni“ hverfi sér­staðan. Útlend­ingar komi ekki til Dan­merkur til að setj­ast inn á fjöl­þjóð­lega ham­borg­ara­staði eða skoða úrvalið í versl­unum, sem séu þær sömu og heima hjá þeim.

Ferða­mönnum hefur fjölgað mjög á síð­ustu árum í Kaup­manna­höfn og það hefur orðið til þess að verð á hús­næði í mið­borg­inni hefur hækkað mikið. Eigna­menn og stöndug fyr­ir­tæki sækj­ast í auknum mæli eftir að kom­ast yfir hús­eignir og freist­ingin þegar vel er boðið er því mikil fyrir þá sem eiga hús­næði í mið­borg­inni. Lille Kon­g­ens­gade, sem liggur frá Kóngsins Nýja­torgi, við hlið Magasin du Nord, er ein þeirra gatna sem eigna­menn hafa beint sjónum sínum að. Húsa­lengjan sem Brókin er hluti af, er nú nán­ast öll í eigu eins athafna­manns, eða fyr­ir­tækis í hans nafni. Þessi maður hefur lengi rennt hýru auga til kjallar­ans sem hýsir Brókina og Hvít en þessir stað eru hlið við hlið.

Fram til þessa hafa eig­endur þess­ara tveggja staða ekki ljáð máls á því að selja þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing.

Lok lok og læs á Brókinni

Eins nefnt var í upp­hafi þessa pistils komu gestir að lok­uðum dyrum á Brókinni í byrjun lið­innar viku. Fljót­lega spurð­ist út að nú hefði eig­and­inn hús­næð­is­ins (rekst­ur­inn var í ann­arra höndum) hrein­lega látið undan og væri búinn að selja áður­nefndum athafna­manni og starf­semin þess vegna stöðvast. Einn starfs­manna veit­inga­stað­ar­ins sagði í við­tali að hann hefði átt í við­ræðum við eig­anda hús­næð­is­ins um kaup á því en athafna­mað­ur­inn greini­lega boðið betur.

Enginn veit hvað verður

Á þess­ari stundu veit eng­inn hvað verður. Athafna­mað­ur­inn, núver­andi eig­andi Brók­ar­innar, hafði í við­tölum fyrr á árinu gefið í skyn að ef hann eign­að­ist hús­næðið yrðu breyt­ingar. Hann vildi þó lítið segja í hverju þær breyt­ingar gætu falist. Dag­blaðið Politi­ken greindi hins vegar frá því fyrir nokkrum dögum að hinn nýi eig­andi hefði tjáð blaða­manni að stað­ur­inn yrði að sjálf­sögðu áfram til og rek­inn með sama sniði og áður. Samn­ingar við starfs­fólk væru í vinnslu og þegar þeir yrðu frá­gengnir yrði opnað á ný. Eig­and­inn sagði að eina breyt­ingin sem til stæði væri betri loft­ræst­ing. Blaða­maður Politi­ken sagði að von­andi yrði ný loft­ræst­ing ekki til þess að eyði­leggja and­rúms­loftið á staðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár