Sex af hverjum tíu treysta niðurstöðum nýafstaðinna þingkosninga

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hafa mest traust á nið­ur­stöðum nýaf­stað­inna þing­kosn­inga. Kjós­endur Sós­í­alista­flokks Ísland og Pírata bera minnst traust til þeirrar nið­ur­stöðu.

Mynd af kjörgögnum í Borgarnesi eftir fyrstu talningu, en fyrir endurtalningu.
Mynd af kjör­gögnum í Borg­ar­nesi eftir fyrstu taln­ingu, en fyrir end­ur­taln­ingu. Mynd: Instagram

Einungis 61,3 pró­sent lands­manna treysta nið­ur­stöðum nýaf­stað­inna þing­kosn­inga vel, 15,4 pró­sent þeirra segj­ast treysta þeim í með­al­lagi en 23,3 pró­sent segj­ast treysta þeim illa.

Þetta kemur fram í könnun sem Maskína fram­kvæmdi dag­anna 27. sept­em­ber til 7. októ­ber síð­ast­lið­inn. Alls voru svar­endur í könn­un­inni 946 tals­ins, af land­inu öllu og yfir 18 ára gamlir. Gögnin voru vegin til að end­ur­spegla þjóð­ina út frá kyni, aldri og búsetu.

Könnunin sýnir að fólk undir fimm­tugu er lík­legra til að van­treysta nið­ur­stöðum þing­kosn­ing­anna en þeir sem eldri eru. Þá treysta kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks (94,6 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks (77,3 pró­sent) nið­ur­stöð­unum mun betur en kjós­endur ann­arra flokka en kjós­endur þriðja stjórn­ar­flokks­ins, Vinstri grænna (59 pró­sent), eru ólík­legri til að treysta nið­ur­stöð­unum. Rík­is­stjórnin hélt í kosn­ing­unum og flokk­arnir sem standa að henni eru með 37 þing­menn. Þeir reyna nú að kom­ast að sam­komu­lagi um áfram­hald­andi sam­starf.

[adspot]Minnst er traustið hjá kjós­endum Sós­í­alista­flokks Íslands, sem náði ekki inn á þing, þar sem 28,4 pró­sent svar­enda sögð­ust treysta nið­ur­stöð­unum og Pírötum þar sem 29,8 pró­sent sögð­ust gera það.

Meðferð kjörgagna ekki fullnægjandi

Enn liggur ekki ljóst fyrir hverjar end­an­legar nið­ur­stöður kosn­ing­anna verða. Ástæðan er sú að end­ur­taln­ing fór fram í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem sýndi umtals­vert breytta nið­ur­stöðu frá því sem fyrri taln­ing hafði sýnt. Í milli­tíð­inni, frá því að fyrri taln­ingu lauk og þar til sú síð­ari fór fram, var öryggi kjör­gagna ekki tryggt.

[links]Afleið­ing þessa varð meðal ann­ars sú að fimm fram­bjóð­endur sem töldu sig vera orðna jafn­að­ar­sæta­þing­menn misstu þau sæti, og þau fóru til fimm ann­arra fram­bjóð­enda sömu flokka.

Lands­kjör­stjórn greindi frá því á þriðju­dag í síð­ustu viku að ekki hefði borist stað­fest­ing á því frá yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis að með­ferð kjör­gagna hafi verið full­nægj­andi. Það er í fyrsta sinn í Íslands­sög­unni sem slík yfir­lýs­ing er gefin eftir þing­kosn­ing­ar. Síðar hafa bæst við upp­lýs­ingar sem sýna að víða var pottur brot­inn í fram­kvæmd­inni, meðal ann­ars var for­maður yfir­kjör­stjórnar í kjör­dæm­inu einn með óinn­sigl­uðum kjör­gögnum í 29 mín­útur í aðdrag­anda seinni taln­ingar.

Fjórir af þeim fimm fram­bjóð­endum sem duttu út eftir end­ur­taln­ingu hafa skilað inn kæru til kjör­bréfa­nefndar Alþingis vegna kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd er nú að störfum og reynir að kom­ast að nið­ur­stöðu um kjör­bréf þing­manna. Mögu­leik­arnir sem hún stendur frammi fyrir er að láta fyrstu taln­ingu gilda, láta end­ur­taln­ing­una gilda, láta fara fram upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eða láta kjósa upp á nýtt á öllu land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár