Gagnrýnir „kjaragliðnun“ á meðal lífeyrisþega

Tvö­földun frí­tekju­marks atvinnu­tekna elli­líf­eyr­is­þega rennur fyrst og fremst til tekju­hárra karl­manna. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir kjaragliðnun á milli tekju­lægstu líf­eyr­is­þega og lág­marks­kjara á vinnu­mark­aði halda áfram af fullum þunga.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hér fyrir miðju.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hér fyrir miðju. Mynd: Bára Huld Beck

Það kostar rík­iss­sjóð 438 millj­ónir króna að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum en 73 pró­sent þeirri upp­hæð renna til tveggja tekju­hæstu tíund­anna. Enn fremur njóta mun fleiri karlar góðs af henni heldur en konur. Þetta kemur fram í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í síð­ustu fjár­lögum var ákveðið að hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna aldr­aðra úr 100 þús­und krónum í 200 þús­und krónur. Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um var áætlað að meiri­hluti upp­hæð­ar­innar sem færi í þá aðgerð myndi renna til tekju­hærri hópa og karl­manna.

Sú reynd­ist vera raunin, en í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins kom fram að alls nutu 1.276 elli­líf­eyr­is­þegar góðs af hækkun frí­tekju­marks atvinnu­tekna. Þar á meðal voru 822 karlar og 454 konur. Aðgerðin kost­aði rík­is­sjóð 438 millj­ónir króna, en þar af renna 317 millj­ónir til tekju­hæstu 20 pró­sent­anna.

Jóhann Páll vekur athygli á svar­inu á Facebook-síðu sinni, en þar segir hann stjórn­ar­flokk­ana hafa talið brýn­ast að styðja sér­stak­lega við tekju­hærri hópana og karla frekar en konur. Sá hópur eldra fólks sem getur ekki unnið sé skil­inn eftir með átta sinnum lægra frí­tekju­mark, en almenna frí­tekju­markið nemur um 25 þús­undum króna.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um voru áhrifin af hækkun almenna frí­tekju­marks­ins einnig metin í fyrra, en sam­kvæmt minn­is­blaði frá félags­mála­ráðu­neyt­inu hefði slík aðgerð dreifst mun jafnar á milli kynja og tekju­hópa. Á þetta minn­ist Jóhann Páll í upp­færsl­unni sinni og segir kjaragliðnun á milli tekju­lægstu líf­eyr­is­þega og lág­marks­kjara á vinnu­mark­aði halda áfram af fullum þunga.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tekur undir með Jóhanni Páli í athuga­semd við stöðu­upp­færslu hans, en þar segir hún að það virð­ist vera mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að gera betur við þau sem hafa mest á milli hand­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár