Gætu Íslendingar fengið að kjósa forseta eftir bráðabana?

Nokkrar til­lögur hafa komið fram um að breyta ákvæðum í stjórn­ar­skrá um for­seta­kosn­ingar þannig að for­seti nái bara kjöri með meiri­hluta atkvæða, eða yfir 50 pró­sent. Frumvörp hafa verið lögð fram sem ekki náðu í gegn. En er þetta mögu­legt á þessu ári?

Bessastaðir hafa verið aðsetur forseta Íslands síðan hirðstjórar og amtmenn konungs voru æðstu ráðamenn á Íslandi.
Bessa­staðir hafa verið aðsetur for­seta Íslands síðan hirð­stjórar og amt­menn kon­ungs voru æðstu ráða­menn á Íslandi. Mynd: Flickr: Ragnheiður Sverrisdóttir

Margt bendir til þess að fjöldi for­seta­fram­bjóð­enda í ár verði sá mesti í sög­unni. Nú þegar hafa yfir tíu manns ýmist gefið form­lega kost á sér, viðrað mögu­leik­ann eða sagst „ekki úti­loka fram­boð.” Ef fram fer sem horfir gæti næsti for­seti verið kjör­inn með ansi fáum atkvæðum, jafn­vel 10 pró­senta fylgi, þó það telj­ist ólík­legt, eins og Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hefur bent á.

Ekki fyrsta tillagan

Baldur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, viðrar mögu­leik­ann á breyttu fyr­ir­komu­lagi næstu for­seta­kosn­inga í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar leggur hann til að for­seti nái ein­ungis kjöri með meiri­hluta greiddra atkvæða í ljósi þess að margt bendi til þess að fram­bjóð­endur í ár verði fleiri en nokkru sinni áður. Ef eng­inn nær meiri­hluta atkvæða, skuli kosið aftur á milli þeirra tveggja sem ná flestum atkvæðum.

Ásta Ragn­heiður Jóhann­es­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og þing­maður Sam­fylk­ingar og Þjóðvaka, lagði fram slíkt frum­varp árið 1995, í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna þegar Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, var kjör­inn.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir: „Forseti Íslands er eini þjóð­kjörni emb­ætt­is­maður rík­is­ins. Þess er kraf­ist að for­set­inn sæki umboð sitt til allra kosn­inga­bærra manna í land­inu. Það er því óeðli­legt að for­set­inn geti náð kjöri með stuðn­ingi lít­ils hluta þjóð­ar­innar.”

Það sama gerðu þing­menn Bjartrar fram­tíðar í októ­ber síð­ast­liðnum. 

Er þetta raunhæft?

Málið er mun flókn­ara en svo að Alþingi geti sam­þykkt breyt­ingu á lögum til að fyr­ir­komu­lagið breyt­ist á þessu ári, fyrir næstu kosn­ingar, sem sam­kvæmt stjórn­ar­skrá eiga að fara fram 25. júní næst­kom­andi. Fyr­ir­komu­lag um for­seta­kosn­ingar er nefni­lega bundið í stjórn­ar­skrá og henni breytum við ekki svo glatt. 

En eins og Baldur bendir á í grein sinni, er þetta mögu­leiki, þó að hann sé lít­ill. 

Núver­andi kosn­inga­fyr­ir­komu­lag byggir á ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar og verður því ekki breytt nema með breyt­ingu á henni. Henni verður hins vegar ekki breytt nema með sam­þykki tveggja þinga og þing­rofi og nýjum þing­kosn­ingum þar á milli. En árið 2013 var sam­þykkt bráða­birgða­á­kvæði sem opnar á að fram til 30. apríl 2017 megi breyta henni án þessa til­stands.

Hvað þyrfti að gera?

Alþingi yrði að hefj­ast handa um leið og það kemur saman á ný, nú 19. jan­úar. Ákvæði um for­seta­kosn­ingar í stjórn­ar­skrá yrði þá breytt á þann hátt að kjör­inn for­seti þarf að fá meiri­hluta atkvæða í kosn­ingu. Nái eng­inn meiri­hluta, skal kjósa á ný á milli tveggja fram­bjóð­enda sem hlutu flest atkvæði. Þetta verður að ger­ast fyrir 24. eða 25. jan­úar og vera sam­þykkt með tveimur þriðja hluta atkvæða.

Sex mán­uðum síðar, 23. eða 24. júlí næst­kom­andi, þarf að bera breyt­ing­una undir þjóð­ina. Nauð­syn­legt er að hún sé sam­þykkt með 40 pró­sentum atkvæða til að hún taki gildi. Breyt­ing­arnar á stjórn­ar­skránni þurfa að hafa verið sam­þykktar frá Alþingi í sex mán­uði áður en þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fer fram.

Á vor­mán­uðum þyrfti Alþingi svo að breyta lögum um tíma­setn­ingu for­seta­kosn­inga svo kosn­ingar fari ekki fram síð­asta laug­ar­dag í júní, heldur í lok júlí.

Ef kjósa þarf á milli tveggja efstu fram­bjóð­anda, myndu hand­hafar for­seta­valds, sem eru for­seti Alþingis og for­seti Hæsta­réttar, fara með for­seta­valdið frá 1. ágúst þar til kosn­ingu er lokið, tveimur til þremur vikum seinna, en sam­kvæmt stjórn­ar­skrá lýkur kjör­tíma­bili for­seta 31. júlí. Nýr for­seti sem kjör­inn yrði með meiri­hluta atkvæða tæki þá við þegar seinni kosn­ingu er lokið.

Samkvæmt þessu fær Alþingi ein­ungis nokkra daga til að fjalla um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá til að halda sig innan tímara­mmans. Til að setja það í sam­hengi hefur stjórn­ar­skrár­nefndin tll að mynda fundað oftar en hægt er að festa tölu á, án þess að nokkrar breyt­ingar hafi náð í gegn. Síðast var það núna um jólin, en stjórn­ar­flokk­arnir settu sig upp á móti breyt­ing­unum. Það verður því að telj­ast ólík­legt að þetta verði að veru­leika fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016, þó það sé mögu­leiki.

Björg Thor­ar­in­sen stjórn­sýslu­fræð­ingur sagði í sam­tali við RÚV seinni­part­inn í dag að til­lögur Baldurs væru óraun­hæfar. Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sagði þær senni­lega tækni­lega mögu­legar, en taldi ólík­legt að það væri póli­tískur vilji til að hrinda þeim í fram­kvæmd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár