Konur þurfa bara að vera duglegri

Á vef­síð­unni KÞBAVD.is eru birt fem­inísk skrif eftir bæði konur og karla. Bíll með þess­ari sömu skamm­stöfun og ýmsum end­ingum bar svo sigur úr býtum í hönn­un­ar­sam­keppni Strætó, en hún stendur fyrir Konur þurfa bara að vera dug­legri.

Ádeila á hugmyndafræði
Ádeila á hug­mynda­fræði „Skamm­stöf­un­inni er ætlað að deila á þá heimsku­legu hug­mynda­fræði að konur beri ábyrgð á að rétta við hvers konar mis­rétti sem þær verða fyrir,“ útskýrir Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir aktí­visti, sem er einn af for­sprökkum átaks­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

„KÞBAVD stendur fyrir „Konur þurfa bara að vera dug­legri“. Við þá setn­ingu má bæta svo til hverju sem er,“ segir Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir, sem tók þátt í að ýta átak­inu af stað. „Skamm­stöf­un­inni er ætlað að deila á þá heimsku­legu hug­mynda­fræði að konur beri ábyrgð á að rétta við hvers konar mis­rétti sem þær verða fyrir. Áherslan á ekki að vera á það hvernig konur eigi að klæða sig, hvert þær eigi að fara og hvernig þær eigi að haga sér til að kom­ast hjá því að karlar beiti þær ofbeldi. Áherslan á ekki að vera á það hvernig konur ættu að haga lífi sínu til að fá völd, áhrif og pen­inga til jafns við karla. Áherslan á að vera á það hvernig við getum breytt gild­unum og við­hor­f­unum sem liggja að baki mis­rétt­inu sem við upp­lifum á eigin skinni á hverjum degi.“

Stofnuðu vefsíðu 

Feminísk skrif eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár