Vegna hamfarahlýnunar var 160 sinnum líklegra að hitabylgjur gengju yfir Bretlandseyjar síðasta sumar líkt og raunin varð. Hvert hitametið á fætur öðru var slegið, hættuástand skapaðist vegna hita og samgöngur fóru úr skorðum.
Breska veðurstofan staðfesti í dag að nýliðið ár sé það hlýjasta í landinu frá því að mælingar hófust. Meðalhiti ársins er í fyrsta sinn í mælingasögunni yfir 10 gráðum. Sérfræðingar veðurstofunnar hafa reiknað út að gera megi ráð fyrir hitabylgjum eins og þeim sem gengu yfir landið í sumar á þriggja til fjögurra ára fresti. Án loftslagsbreytinga af mannavöldum hefði mátt gera ráð fyrir slíkum hitabylgjum einu sinni á fimm alda tímabili. Það er að segja: Einu sinni á 500 ára tímabili.
[links]Meðalhiti ársins 2022 í Bretlandi reyndist 10,03 gráður. Þar með er fyrra met frá árinu 2014, 9,88 gráður, slegið. Síðasta ár var því 0,89 gráðum heitara en síðustu þrír áratugir að meðaltali, segir í gögnum bresku veðurstofunnar. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að desember hafi verið óvenju kaldur og því dregið meðalhita ársins töluvert niður.
Mörgum var illa brugðið er hiti fór í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust yfir 40 gráður á Bretlandseyjum. Áður hafði metið verið 38,7 gráður.
Talið er að þúsundir ótímabærra dauðsfalla megi rekja til hitabylgjanna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir