Wuhan-dagbókin veldur titringi í Kína

Virtur kín­verskur rit­höf­undur hóf að birta dag­bók­ar­færslur um dag­legt líf í heima­borg sinni Wuhan í jan­úar. Dagbókin vakti gríð­ar­lega athygli en nú eru margir Kín­verjar ósáttir við skrifin.

Þekktur kín­verskur rit­höf­undur, Fang Fang, hefur síð­ustu daga þurft að þola harða gagn­rýni frá löndum sínum vegna Wuhan-dag­bók­ar­innar sem hún birti á net­inu er hún var inni­lokuð í heima­borg sinni Wuhan, þar sem kór­ónu­veiran á upp­tök sín.

Fang Fang hlaut fyrst í stað mikið lof frá Kín­verjum og tugir millj­óna þeirra lásu dag­bók­ar­færslur hennar þar sem hún lýsti líf­inu í borg­inni. En nú, eftir að stjórn­völd í Banda­ríkj­unum og víðar eru farin að beina spjótum sínum að Kín­verjum og saka þá um hylm­ingu og slök við­brögð við veiru­far­aldr­inum, hafa margir snú­ist gegn henni. „Bravó Fang Fang. Þú ert að gefa vest­rænum ríkjum skot­færi til að ráð­ast á Kína,“ skrif­aði einn les­andi dag­bók­ar­innar á kín­verska sam­skipta­for­ritið Weibo.

[adspot]

Til stendur að gefa dag­bók Fang Fang út á mörgum tungu­málum á næst­unni. Hún er 64 ára og hlaut árið 2010 virt­ustu bók­mennta­verð­laun Kína.

Fang fór að birta dag­bók­ar­færslur þann 23. jan­úar eftir að alls­herjar útgöngu- og ferða­bann var sett á í Wuhan. Í einni færsl­unni lýsti hún því hvernig íbú­arnir reyndu að hjálp­ast að og styðja hver annan og hversu dásam­legt var að upp­lifa hvers­dags­lega hluti eins og sól­ar­geisla að lýsa upp íbúð­ina.

En Fang fjall­aði einnig um hápóli­tísk mál eins og yfir­full sjúkra­húsin sem vís­uðu veikum frá. Þá sagði hún frá skorti á and­lits­grímum og dauðs­föllum í sinni eigin fjöl­skyldu.

„Vinur minn sem er læknir sagði: Stað­reyndin er sú að við læknar höfum vitað um hríð að sjúk­dóm­ur­inn smit­ast frá manni til manns, við létum okkar yfir­menn vita en samt var­aði eng­inn almenn­ing við,“ skrif­aði Fang í einni færsl­unni.

Í Kína er fjöl­miðla­frelsi veru­lega ábóta­vant og stjórn­völd hafa frá upp­hafi far­ald­urs­ins reynt að stjórna fréttum og færslum á net­inu um hið raun­veru­lega ástand sem skap­að­ist. Því þyrsti marga Kínverja í upp­lýs­ingar og sóttu því í að lesa dag­bók­ar­færslur Fang Fang.

[adspot]

En eins og fyrr segir hafa nú margir landa hennar snú­ist gegn henni og sagt hana fram­leiða fall­byssu­fóður fyrir óvini kín­verska rík­is­ins. „Hversu mikið græðir þú á því að selja dag­bók­ina?“ spyr einn les­andi og sakar Fang um að reyna að auðg­ast á hörm­ungum íbúa Wuhan.

Fang hefur svarað fyrir sig á Weibo og seg­ist vera fórn­ar­lamb nettrölla. Í við­tali við kín­versku vef­síð­una Caixin seg­ist hún hafa fengið líf­láts­hót­anir og að heim­il­is­fang hennar hafi verið birt á net­inu.

Banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tækið HarperCollins ætlar að gefa dag­bók­ina út í Banda­ríkj­unum í sumar. Það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum Kín­verjum hvernig bókin er kynnt. „Hinn blá­kaldi raun­veru­leiki hins hræði­lega ástands varð til þess að Fang Fang hóf að tjá sig af miklu hug­rekki gegn mis­munun, spill­ingu, mis­notkun og kerf­is­bundnum póli­tískum vanda­málum sem hindr­uðu við­brögð við far­aldr­inum,“ segir á vef­síðu útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins um Wuhan-dag­bók­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár