Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ hélt opinn fund með Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra um útlendingamál, löggæslu og landhelgisgæsluna í vikunni. Á fundinum fór mest fyrir umræðu um útlendingamál, en Reykjanesbær hefur síðustu ár hlutfallslega tekið á móti og veitt fleira flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu en flest hinna sveitarfélaganna.
Heimildin var á staðnum og tók upp ræðu ráðherra en var gert að stöðva upptöku að ræðu lokinni og sagði Jón Gunnarsson að það væri gert til að fólk gæti talað eins og það vildi. Sem fyrr segir var þetta opinn fundur á vegum Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og fulltrúi Heimildarinnar á staðnum.
Því verður hér fjallað um flest þeirra mála sem rædd voru á fundinum meðan á upptöku stóð og eftir að slökkt var á upptökutækinu.
Þó að málefni umsækjenda um vernd og flóttafólks hafi verið fyrirferðarmest á fundinum, ræddi Jón Gunnarsson einnig um rekstur Landhelgisgæslunnar og nefndi sérstaklega TF-SIF eftirlitsflugvél …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir (1)