Kostnaður Íslands við vinnu FAO innan við tvær milljónir

Samkvæmt atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu kost­aði vinnan við fyrsta áfang­ann í úttekt á vegum FAO um við­skipta­hætti útgerða 15 þús­und banda­ríkja­dali, eða rétt innan við tvær millj­ónir króna.

Ísland kostaði tæpum tveimur milljónum til vinnu FAO við fyrsta áfangann. Óljóst er hvernig kostun annars áfanga verksins verður háttað.
Ísland kost­aði tæpum tveimur millj­ónum til vinnu FAO við fyrsta áfang­ann. Óljóst er hvernig kostun ann­ars áfanga verks­ins verður háttað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sá kostn­aður sem Ísland bar vegna fyrsta áfanga vinnu við úttekt á vegum Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ar­innar (FAO) á veiðum og við­skipta­háttum útgerða, þar á meðal í þró­un­ar­ríkjum, nam 15 þús­und banda­ríkja­dölum, jafn­virði rétt innan við tveggja millj­óna íslenskra króna.

Þetta kemur fram í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna máls­ins. Afrakstur vinn­unnar í þessum fyrsta áfanga úttekt­ar­innar af fjórum var kynntur á veffundi sjáv­ar­út­vegs­skrif­stofu FAO fyrr í vik­unni.[links]

Þar lýsti Stefán Jón Hafstein, sendi­full­trúi í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, því yfir fyrir hönd Íslands að stjórn­völd væru viljug til þess að halda áfram að styðja við þetta verk­efni, en Ísland greiddi allan kostnað við fyrsta áfanga vinn­unnar.

Verk­efn­inu var enda hleypt af stokk­unum að frum­kvæði Íslands, en það að fá FAO til að vinna úttekt af þessu tagi var ein af sjö aðgerðumsem stjórn­völd boð­uðu til þess að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið í Namibíu kom upp árið 2019.

Stjórn­völd sögð­ust ætla að leggja til að á grund­velli úttekt­ar­innar myndi FAO vinna „til­lögur til úrbóta í sam­vinnu við aðrar alþjóð­legar stofn­anir sem vinna að heil­brigðum við­skipta­háttum, gegn spill­ingu, mútum og pen­inga­þvætti.“

[adspot]

Fyrsti áfang­inn fól í sér kort­lagn­ingu á þeim samn­ingum sem eru í gildi um aðgengi á afla­heim­ildum og grein­ingu á þeim, en skýrsla með heild­ar­nið­ur­stöðum verður ekki birt fyrr en snemma á næsta ári. Hægt er að nálg­ast útdrátt um nið­ur­stöð­urnar hér.

Fram kom á fund­inum í vik­unni að næsta skref verk­efn­is­ins, annað af fjórum, yrði að gera efna­hags­lega grein­ingu á þeim samn­ingum um veiði­heim­ildir sem kort­lagðir voru í fyrsta áfang­an­um.

Samkvæmt svörum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu er „enn verið að vinna und­ir­bún­ing vegna ann­ars áfanga“ og er það „enn óljóst hver áætl­aður kostn­aður verður og hvort fleiri ríki komi hugs­an­lega að verk­inu strax í þeim áfanga“. Ísland mun þó taka þátt í kostn­að­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár