Leyndarmálið í skjalaskápnum

Árið 1997 kom Bill Clinton í heim­sókn til Dan­merkur, fyrstur banda­rískra for­seta. Með hástemmdum lýs­ing­ar­orðum, þakk­aði for­set­inn Dönum gott for­dæmi, en sagði ekki fyrir hvað. Þangað til nú hafa ein­ungis örfáir vitað hvað hann meinti.

Bill Clinton og Poul Nyrup Rasmussen.
Bill Clinton og Poul Nyrup Rasmus­sen. Mynd: EPA

Danska for­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnti snemm­sum­ars árið 1997 að Bill Clinton Banda­ríkja­for­seti væri vænt­an­legur til Kaup­manna­hafnar 11. júlí. Engin ástæða fyrir þess­ari fyrstu heim­sókn starf­andi Banda­ríkja­for­seta var til­greind í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. Stjórn­mála­skýrendum fjöl­miðl­anna þótti til­kynn­ingin snubb­ótt en nán­ari útskýr­ingar feng­ust ekki.

Eins og til stóð lenti þota for­set­ans á Kastrup síð­degis 11. júlí. Tekið var á móti honum með þeirri við­höfn sem tíðkast þegar um opin­berar heim­sóknir er að ræða. Á flug­vell­inum tóku Friðrik krón­prins og Poul Nyrup Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra á móti for­set­anum, Hillary var ekki með í för. Að lok­inni mót­tök­unni á flug­vell­inum var flogið með for­set­ann að Mari­en­borg höll­inni þar sem gest­gjaf­inn, Margrét Þór­hildur drottn­ing ,tók á móti for­set­anum.

Þótt Bill Clinton hefði aldrei fyrr komið til Dan­merkur, og ætti ekki þangað rætur að rekja, var hann mjög vin­sæll meðal Dana. Þegar heim­sóknin stóð fyrir dyrum var til­kynnt að Banda­ríkja­for­seti myndi flytja ávarp framan við dóm­húsið á Nytorv, fast við Strikið, 12. júlí. Mikill mann­fjöldi, eða um 80 þús­und manns, (tölur frá lög­reglu) mætti til að heyra og sjá for­set­ann, og komust færri að en vildu. Í ávarpi sínu lagði Banda­ríkja­for­seti áherslu á nána vin­áttu Dan­merkur og Banda­ríkj­anna, sagði að Danir væru vinir í raun. Þeir væru, þrátt fyrir að vera fámenn þjóð, öfl­ugir liðs­menn í banda­lagi vest­rænna þjóða og gott for­dæmi.

[adspot]Sem dæmi um náin tengsl þjóð­anna sagði hann „Hver ein­asti Dani á ætt­ingja í Banda­ríkj­unum. Í dag get ég sagt að allir Banda­ríkja­menn vita að þeir eigi vin í Danmörku“. Það var ekki fyrr en eftir að for­set­inn var flog­inn heim á leið að ein­hverjir fóru að klóra sér í koll­inum yfir ummælum hans um gott for­dæmi. Án þess að verða nokkru nær. „Kannski mál­aði for­set­inn vinu­átt­una bara svona sterkum litum“ skrif­aði stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Information, sem þótti eft­ir­tekt­ar­vert hve vel fór á með Poul Nyrup Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra og Bill Clinton.

Svo liðu 23 ár.

Embættismenn sendir heim

24. ágúst síð­ast­lið­inn greindi danska varn­ar­mála­ráðu­neytið frá því, í til­kynn­ingu, að Lars Findsen yfir­maður leyni­þjón­ustu danska hers­ins, FE, hefði verið leystur frá störfum ásamt tveimur starfs­mönnum emb­ætt­is­ins. Auk þess­ara þriggja var ráðu­neyt­is­stjóri Varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem til stóð að yrði sendi­herra Dana í Þýska­landi, sendur heim. Til­kynn­ing ráðu­neyt­is­ins var stutt og án nokk­urra útskýr­inga en aug­ljóst að eitt­hvað meira en lítið alvar­legt byggi að baki, hátt­settir emb­ætt­is­menn eru ekki bara sendir heim, si svona.

Klukku­tíma síðar þennan sama dag birt­ist önnur til­kynn­ing frá varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Þar var sagt að fram hefðu komið ásak­anir um alvar­lega mis­bresti í starf­semi leyni­þjón­ustu hers­ins. Þær hefðu komið fram í langri og yfir­grips­mik­illi skýrslu Eft­ir­lits­stofn­unar leyni­þjón­ust­unnar, TET.

24. ágúst birt­ist svo enn ein til­kynn­ingin, að þessu sinni frá Eft­ir­lits­stofn­un­inni, TET. Þar kom meðal ann­ars fram að tölvu­sér­fræð­ingur sem starfað hefur hjá leyni­þjón­ustu hers­ins, FE, hefði um nokk­urra ára skeið haft grun um að FE hefði farið langt út fyrir verk­svið sitt með því að safna og dreifa upp­lýs­ingum um danska rík­is­borg­ara til erlends „aðila“ en slíkt er bannað með lögum. Hann hefði reynt að koma þessum grun sínum á fram­færi, lengi vel án árang­urs.

[links]Það reynd­ist ekki heiglum hent að átta sig á hvað þetta þýddi, og hver hefði sagt hvað við hvern hvenær og hvar. Og hver væri hin raun­veru­lega ástæða þess að emb­ætt­is­menn­irnir fjórir voru sendir heim, án skýr­inga. Fyrir nokkrum dögum var einn til við­bótar, starfs­maður FE sendur heim. Sér­fræð­ingar dönsku fjöl­miðl­anna voru fljótir að átta sig á því að á eftir A kemur B, eins og stundum er sagt, og ætl­uðu ekki að láta sér nægja yfir­borðs­kenndar yfir­lýs­ingar ráða­manna og stutt­orðar til­kynn­ingar.

27. ágúst greindi Danska útvarpið, DR, frá náinni sam­vinnu Leyni­þjón­ustu danska hers­ins, FE, og National Security Agency (NSA) sem er ein stærsta, ef ekki stærsta leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna. FE hafði, sam­kvæmt frétt DR, heim­ilað banda­rísku leyni­þjón­ust­unni aðgang að flutn­ings­línum tölvu­gagna. Slíkur aðgangur gerir kleift að fylgj­ast með tölvu­pósti, sms skila­boðum og sím­tölum. Og nú varð allt í einu ljóst hvað það var sem Bill Clinton meinti þegar hann þakk­aði Dönum á Nýja­torgi 12. júlí 1997, vin­áttu og gott for­dæmi.

Tölvukapall í Kaupmannahöfn

Bill Clinton Banda­ríkja­for­seti hafði sér­staka ástæðu til að þakka Dönum gott for­dæmi og náið vina­sam­band, eins og hann orð­aði það í ræðu sinni fyrir framan 80 þús­und manns og í beinni sjón­varps­út­send­ingu 12. júlí 1997. Hann gætti þess hins vegar að segja ekki of mikið og það er fyrst nú sem komið er í ljós hvað hann átti við.

Snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar hafði banda­ríska leyni­þjón­ustan NSA kom­ist að því að í Kaup­manna­höfn lægi fjar­skiptakap­all. Og það eng­inn smá kap­all. Kapall þessi var í eigu dansks fyr­ir­tækis og um hann komu geysi­mikil tölvu og síma­sam­skipti frá Asíu, gegnum Rússland til tölvu­vers í Danmörku og þaðan áfram um allar jarðir. Ónafn­greindur heim­ild­ar­maður dag­blaðs­ins Berl­ingske sagði að „þegar maður í Síberíu hringir í kunn­ingja sinn í þarnæsta húsi fer sím­talið um kap­al­inn í Danmörku“. Banda­ríkja­menn­irnir átt­uðu sig strax á því að með því að semja við Dani um „aftöpp­un­ar­leyfi“ gætu þeir fylgst náið með rúss­neskum tölvu- og síma­sam­skiptum. Og sömu­leiðis kín­verskum. Samn­ingur við Dani yrði sann­kall­aður stór­lax í njósn­a­heim­inum.

En átti Danmörk að leyfa að leyni­þjón­usta erlends ríkis fengi aðgang að tölvukapli í eigu dansks fyr­ir­tækis í Danmörku? Leyni­þjón­usta danska hers­ins sagði nei. En Banda­ríkja­menn gáfust ekki upp. Bill Clinton for­seti sendi Poul Nyrup Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra bréf þar sem hann bað um að þessi ákvörðun yrði end­ur­skoðuð. Og það gerði danski for­sæt­is­ráð­herr­ann. Hann og Hans Hækkerup, sem var varn­ar­mála­ráð­herra á þessum tíma, voru báðir hlynntir nánu sam­starfi við Banda­ríkin og sam­vinnu NATO ríkj­anna.

Skjalið í skápnum

Þegar Bill Clinton kom til Kaup­manna­hafnar í júlí 1997 hafði samn­ingur um „aftöpp­un­ar­leyfi“ verið frá­geng­inn. Til þess að koma í veg fyrir að nokkur utan­að­kom­andi gæti kom­ist í samn­ing­inn, t.d gegnum tölvu, var hann prent­aður á rit­vél (Smith Corona sagði eitt dönsku blað­anna) og hann er aðeins til í einu ein­taki. Þetta ein­tak er varð­veitt í skjala­skáp í húsa­kynnum leyni­þjón­ustu danska hers­ins. Eins og gefur að skilja hafa dönsku miðl­arnir ekki fengið að sjá samn­ing­inn sjálfan þótt þeir hafi kom­ist á snoðir um inni­haldið.

Að ýmsu var að hyggja varð­andi samn­ing­inn. Mik­il­væg­ust var leyndin, hún yrði að vera algjör. Top secret. Ekki mátti safna upp­lýs­ingum um Dani, við það hefur ekki verið staðið eins og áður var nefnt. Mjög mik­il­vægt ákvæði í þessum samn­ingi var að hann ein­skorð­að­ist ekki við þáver­andi rík­is­stjórn, heldur myndi gilda um alla fram­tíð (orða­lag Berl­ingske). Ákveðið var að í hvert skipti sem nýr varn­ar­mála­ráð­herra tæki við í Danmörku myndi hann setja nafn sitt á samn­ing­inn, sem síðan yrði aftur settur á sinn stað í sér­stöku hólfi í skjala­skápnum. Þannig gæti nýr varn­ar­mála­ráð­herra séð að for­veri hans hefði ritað nafn sitt til sam­þykkis. Mjög strangar reglur gilda um aðgang að umræddum skjala­skáp. Auk varn­ar­mála­ráð­herr­ans skal nýr for­sæt­is­ráð­herra hverju sinni upp­lýstur um samn­ing­inn og sömu­leiðis utan­rík­is­ráð­herra. Allir eru bundnir algjörum trún­aði.

Varnarmálaráðherrann gagnrýndur

Nokkrir stjórn­ar­and­stæð­ingar á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hafa harð­lega gagn­rýnt að Trine Bramsen varn­ar­mála­ráð­herra skuli hafa heim­ilað Eft­ir­lits­stofnun leyni­þjón­ust­unnar, TET, að birta upp­lýs­ingar varð­andi „aftöpp­un­ar­kap­al­inn“. Sumir þeirra taka stórt upp í sig og segja að Trine Bramsen hafi í fljót­færni stór­skaðað sam­starf banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar, NSA, og þeirrar dönsku, FE. Ráð­herr­ann eigi ekki ann­arra kosta völ en segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár