Hvað slær klukkan? Hún slær þrjú!

Það þekkja sjálf­sagt flestir, ef ekki allir, (frönsku) barna­gæl­una um meist­ara Jakob sem vildi fá að vita hvað klukkan slægi þegar hann rumskaði. Og hún sló, sem kunn­ugt er, þrjú. Ef þetta hefði verið aðfara­nótt síð­asta sunnu­dags í októ­ber (síð­ast­liðna nótt) hefði Jakob getað lúrt áfram í klukku­tíma og vaknað þegar klukkan slægi aftur þrjú, búinn að „græða“ klukku­tíma. Vel að merkja ef Jakob byggi í Evrópu, ann­ars staðar en á Íslandi. Aðfara­nótt síð­asta sunnu­dags í októ­ber ár hvert er sem sé nóttin þegar flestir Evr­ópu­búar seinka klukk­unni og bæta klukku­stund við nótt­ina. Sá hagn­aður hverfur svo aðfara­nótt síð­asta sunnu­dags í mars árið eftir.

Benjamín Franklín vildi spara kertin

Árið 1784 dvaldi amer­íski vís­inda­mað­ur­inn og fjöl­fræð­ing­ur­inn Benjamín Franklín í París. Hann lét sig flesta hluti varða, og á meðan hann var í París skrif­aði hann grein (An Econimical Project) þar sem hann lagði til að Par­ís­ar­búar færu klukku­tíma fyrr á fætur en þeir væru vanir og gengju til náða einni stundu fyrr en venjan væri. Með þessu myndi draga úr notkun ster­ín­kerta (tólg­ar­kerta) sem væru dýr og kæmu hreint ekki í stað dags­birtunnar.

Í grein­inni er einnig að finna útreikn­inga Frank­líns á hversu mik­ill tólg­ar­sparn­að­ur­inn væri og hug­myndir hans um myrkv­un­ar­tjöld í svefn­her­bergjum og fleira í þeim dúr. Ekki minnt­ist hann hins vegar á að færa klukk­una til eftir árs­tíðum. Greinin er hin skemmti­leg­asta aflestrar eins og margt sem hraut úr penna Benja­míns Frank­líns. En eins og það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja reynd­ust Par­ís­ar­búar ekki fúsir til að fylgja þess­ari efna­hags­ráð­gjöf og höfðu áfram dökkar gard­ínur fyrir gluggum til að úti­loka morg­un­sól­ina.

Skordýrafræðingur og byggingameistari

Árið 1895 kom nýsjá­lenskur skor­dýra­fræð­ingur, Georg Vernon Hudson, fram með þá hug­mynd að færa klukk­una fram um tvær stundir að sum­ar­lagi. Ekki var það tólg­ar­sparn­aður sem Hudson hafði í huga heldur sá hann fram á að með því móti gæti hann lengur fram eftir á hverju kvöldi sinnt áhuga­máli sínu, skor­dýra­söfnun. Tíu árum síðar, 1905, kom William Willett, enskur bygg­inga­meist­ari, fram með sömu hug­mynd, blöskr­aði að sögn að fólk stein­svæfi í morg­un­sól­inni. „Morg­un­stund gefur gull í mund“ sagði Willett. Þessi hug­mynd kom til kasta breska þings­ins en varð ekki að veru­leika.

30. apríl 1916

Það sem seinna fékk heitið sum­ar­tími varð til í miðri fyrri heims­styrj­öld­inni. Þýska­land og Aust­ur­ríki ákváðu 30. apríl 1916 að breyta klukk­unni, færa hana fram um eina klukku­stund til að spara orku, sem mik­ill skortur var á. Danmörk fylgdi í kjöl­farið 21. maí sama ár, Rússland og fleiri lönd ári síðar og Banda­ríkin árið 1918. Síðan hafa verið sett ótelj­andi lög og reglu­gerðir um sumar- og vetr­ar­tíma.

Áratugum áður en sumar- og vetr­ar­tím­inn voru inn­leiddir hafði orðið til það sem nefna má alþjóð­lega tíma­belta­kerfið. Með auknum sam­göngum í Evrópu, ekki síst járn­braut­unum varð tíma­sam­ræm­ing nauð­syn­leg. Árið 1981 náðu aðild­ar­ríki ESB sam­komu­lagi um núver­andi fyr­ir­komu­lag: klukk­unni er flýtt um eina klukku­stund aðfara­nótt síð­asta sunnu­dags í mars og seinkað um eina klukku­stund aðfara­nótt síð­asta sunnu­dags í októ­ber.

Árvisst og endalaust deilumál

Þótt sumar- og vetr­ar­tím­inn séu stað­reynd þýðir það ekki að allir séu á eitt sáttir um fyr­ir­komu­lagið. Þeir sem fylgj­andi eru breyt­ingum á klukk­unni vor og haust nefna fyrst og fremst orku­sparnað og að dag­ur­inn nýt­ist betur. And­stæð­ingar þess að breyta klukk­unni segja því fylgja mik­inn kostnað og óþæg­indi ýmiss konar. Bændur hafa alla tíð verið mjög and­snúnir því að breyta klukk­unni, segja morg­un­dögg­ina sitja lengur og þeir verði því að vinna lengur fram eftir til að ná heyjum og korni í hús, því fylgi auka­kostn­aður.

Rétt eða rangt

Iðulega hefur verið deilt um hvort sum­ar­tím­inn sé „rétt­ari“ en vetr­ar­tím­inn eða öfugt. Við þeirri spurn­ingu er lík­lega ekki til afdrátt­ar­laust svar. Breskur sér­fræð­ingur birti nýlega grein í British Medical Journal þar sem hann leiðir rök að, og mælir með, að sum­ar­tím­inn verði lát­inn gilda allt árið. Birtu­tím­inn verði lengri og það sé gott fyrir heils­una, bæði lík­am­lega og and­lega. Dönsk rann­sókn, sem spannar átján ára tíma­bil leiðir í ljós að um eins mán­aðar skeið eftir að breytt er yfir í vetr­ar­tíma fjölgar þeim sem grein­ast með þung­lyndi. Ástæðan er ekki ljós.

Sér­fræð­ingar hafa á síð­ustu árum í auknum mæli beint sjónum sínum að áhrifum þess að breyta klukk­unni tvisvar á ári. Hvort þær rann­sóknir verða til þess að núver­andi fyr­ir­komu­lagi verði breytt leiðir tím­inn í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár