Konur myndu kjósa félagshyggjustjórn en karlar hallast að íhaldinu

Kjósa konur öðru­vísi en karlar? Skipta menntun eða tekjur máli þegar fólk ákveður hvaða stjórn­mála­flokkur end­ur­spegli best skoð­anir þess á því hvernig þjóð­fé­lagið á að vera? Er munur á því hvernig borg­ar­búar og þeir sem búa úti á landi ráð­stafa atkvæðum?

Ef konur myndu einar kjósa væri hægt að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri grænna. Hún myndi fá 49,2 pró­sent atkvæða en í ljósi þess að 3,3 pró­sent atkvæða sem konur myndu greiða Sós­í­alista­flokki Íslands eða öðrum fram­boðum sem ekki eru nefnd í könn­unum, myndu falla niður dauð þá myndi það duga fyrir tæpum meiri­hluta.

Ef karlar myndu einir kjósa væri á hinn bóg­inn hægt að mynda þriggja flokka íhalds­rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks með 49,1 pró­sent fylgi.

Það gæti dugað fyrir ágætum þing­meiri­hluta þar sem Vinstri græn yrðu tæp á því að ná inn á þing með 4,5 pró­sent fylgi, Flokkur fólks­ins myndi örugg­lega falla út með 2,7 pró­sent stuðn­ing og 1,3 pró­sent aðspurðra sagð­ist kjósa annað en nefnda flokka. Því eru líkur á að heil 8,5 pró­sent atkvæða myndu falla niður dauð ef karlar kysu einir, og ýkja þannig nið­ur­stöðu hinna flokk­anna.

Þetta má lesa úr úr gagna­safni frá MMR þar sem bak­grunns­breytur svar­enda í síð­ustu tveimur könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi stjórn­mála­flokka eru greindar.

[adspot]Vit­an­lega er um sam­kvæm­is­leik að ræða, konur eða karlar, eða aðrar bak­grunns­breytur sem verða hér til umfjöll­unar, eru ekki að fara að hætta að kjósa. Til­gang­ur­inn er hins vegar að sýna, út frá gagna­söfnum MMR, hvernig stjórn­mála­flokkar höfða með mis­mun­andi hætti til mis­mun­andi hópa.

Hvernig kjósa tekjuhópar?

Hjá fólki með 400 þús­und krónur eða minna í heim­il­is­tekjur á mán­uði er mikil vinstri slag­síða. Þar væri hægt að mynda meiri­hluta­stjórn Pírata, Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Sós­í­alista­flokks með 55,5 pró­sent stuðn­ing. Viðreisn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokkur njóta að sama skapi lít­illar hylli hjá þeim hópi. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja þar er 23,3 pró­sent.

Hjá þeim sem eru með 1.200 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur eða meira snýst þetta við. Auðvelt yrði að mynda meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sóknar með 54,2 pró­sent atkvæða úr þeim tekju­hóp.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Píratar og Vinstri græn eru að sama skapi óvin­sæl hjá tekju­hæsta hónum. Sam­an­lagt fylgi þeirra hjá honum mælist 16,5 pró­sent. Sam­fylk­ingin sker sig úr flóru flokka þar sem hún nýtur ágætis fylgis hjá tekju­lægsta hópnum en er samt vin­sæl hjá þeim tekju­hæsta, þar sem 18,6 pró­sent kjós­enda styðja hana. Það er vel yfir heild­ar­fylgi flokks­ins og setur hann í annað sætið yfir vin­sæl­ustu stjórn­mála­flokka lands­ins hjá hæsta tekju­hópnum, á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum sem gín yfir alla aðra í vin­sældum þar með 34,2 pró­sent fylgi.

Hvernig kjósa mismunandi landsvæði?

Ef höf­uð­borg­ar­svæðið myndi eitt kjósa myndu Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn fá sam­an­lagt 45,5 pró­sent atkvæða en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír (Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn) 37,6 pró­sent. Þar skiptir fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á svæð­inu öllu máli, en hann mælist með 24,3 pró­sent stuðn­ing þar sem er mesti stuðn­ingur sem hann mælist með á land­inu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er í miklum vand­ræðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem fylgi hans mælist ein­ungis 5,9 pró­sent og Vinstri græn eru ekki langt undan með 7,6 pró­sent fylgi.

Höf­uð­borg­ar­svæðið er hins vegar lang­sterkasta vígi allra frjáls­lyndu miðju­flokk­anna: Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar.

Þegar horft er á þann hóp sem er með grunn­skóla­menntun sem æðstu menntun er ljóst að þar eru íhalds­samir flokkar vin­sælli en hjá þeim sem hafa gengið lengra niður mennta­veg­inn. Sam­an­lagt fylgi þeirra mælist 46,4 pró­sent og myndi duga fyrir meiri­hluta á þingi innan þessa mengis, þar sem atkvæði greidd Vinstri grænum (3,8 pró­sent) og Viðreisn (4,0 pró­sent) myndu að öllum lík­indum falla niður dauð.

Í hópi háskóla­mennt­aðra myndi rík­is­stjórn­ar­myndun verða flókin þar sem ein­ungis fjórir flokkar mæl­ast með meira fylgi hjá þeim hópi en almennt. Þeir eru Sjálf­stæð­is­flokkur (25,2 pró­sent), Sam­fylk­ing (17,7 pró­sent), Viðreisn (14,3 pró­sent) og Vinstri græn (11,3 pró­sent), en Sam­fylk­ingin hefur þegar gefið út að það komi ekki til greina að starfa með Sjálf­stæð­is­flokki eftir næstu kosn­ingar.

Hvernig kjósa mismunandi aldurshópar?

Ef yngsti kjós­enda­hóp­ur­inn, 18 til 29 ára, myndi ráða myndun næstu rík­is­stjórnar er nokkuð ljóst að Píratar (24,9 pró­sent) og Sam­fylk­ingin (19,3 pró­sent) yrðu bak­beinið í henni með sam­an­lagt 44,3 pró­sent fylgi. Í ljósi þess að allt að fimm pró­sent atkvæða hjá hópnum myndu að óbreyttu falla niður dauð þá vantar ekki mikið upp á að þessir tveir flokkar næðu meiri­hluta þing­manna saman, miðað ein­vörð­ungu við yngstu atkvæðin. Þeir gætu líka kippt Sós­í­alista­flokki Íslands með sér í rík­is­stjórn en hann mælist með sjö pró­sent fylgi hjá þessum hóp, eða meira en Vinstri græn, Viðreisn, Flokkur fólks­ins og Mið­flokkur.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þriðji stærsti flokk­ur­inn hjá þessum ald­urs­hóp en hann er samt sem áður að mæl­ast með minni stuðn­ing þar en í nokkrum öðrum ald­urs­hópi.

Hjá 60 ára og eldri blasir við önnur staða. Þar er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í sér­flokki með 31,5 pró­sent fylgi. Ef Sam­fylk­ingin hefði ein­hvern áhuga á að vinna með Sjálf­stæð­is­flokki, og öfugt, þá væri hægt að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn þeirra ef kosn­inga­ald­ur­inn yrði færður upp í 60 ár. Sam­an­lagt fylgi þeirra hjá þeim ald­urs­hópi mælist slétt 50 pró­sent.

Gögnin sem hér eru til umfjöll­unar eru úr síð­ustu tveimur könn­unum MMR, sem gerðar voru 23-28. októ­ber og 6-11. nóv­em­ber 2020 (sam­tals 1.858 svar­endur).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár