Borgarstjóri segir að taka þurfi öllum fréttum Moggans með fyrirvara í aðdraganda kosninga

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gagn­rýnir Morg­un­blaðið í dag fyrir að hafa sleppt því að birta svör hans sem hrekja efn­is­lega nokkra punkta í frétta­flutn­ingi blaðs­ins um bens­ín­stöðv­ar­lóð við Ægisíðu 102.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gagn­rýnir frétta­flutn­ing Morg­un­blaðs­ins af bens­ín­stöðv­ar­lóð við Ægisíðu harð­lega í dag og segir að það sé „mik­il­vægt fyrir almenn­ing að átta sig á því að það þarf að taka öllum fréttum Morg­un­blaðs­ins og fram­setn­ingu þeirra með fyr­ir­vara í aðdrag­anda kosn­inga.“

Þetta kemur fram í færslu Dags á Facebook, en þar segir hann að frétt Morg­un­blaðs­ins í gær um að borgin sé að færa Festi millj­arða á Silf­ur­fati með því að láta bygg­ing­ar­rétt á lóð­inni við Ægisíðu 102 renna til félags­ins hafi byggt á þremur stað­hæf­ingum sem allar hafi verið efn­is­lega rangar.

„Blaðið var beðið um að leið­rétta punkt­ana þrjá – einsog eðli­legir fjöl­miðlar gera í takt við við­ur­kennd vinnu­brögð í blaða­mennsku, en gerði það ekki heldur sendi að bragði fimm spurn­ingar „til borg­ar­stjóra“. Í morgun birt­ist blaðið, bæði án leið­rétt­ing­ar­innar og svar­anna sem blaðið kall­aði þó eftir. Enda bera svörin með sér að skrif blaðs­ins voru út úr öllu korti,“ segir Dagur í færslu sinni, þar sem hann birtir einnig spurn­ingar blaða­manns Morg­un­blaðs­ins og svör sín við þeim.

Vert er að taka fram að vísað var til hluta svar­anna frá borg­ar­stjóra í fram­halds­frétt Morg­un­blaðs­ins um þetta mál, sem birt­ist í blað­inu í dag.

Kjarninn hefur áður fjallað um áform Festi á þess­ari lóð og fleirum þar sem bens­ín­stöðvar munu víkja í náinni fram­tíð og einnig óánægju sem íbúar í grennd­inni hafa sett fram með það bygg­ing­ar­magn sem Festi hefur sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingum félag­ins séð fyrir sér á lóð­inni.

Framsal bygg­ing­ar­réttar á lóð­inni til Festi var hluti af heild­ar­samn­ingum borg­ar­innar við olíu­fé­lögin um fækkun bens­ín­stöðva, en Festi var með lóð­ar­leigu­samn­ing um þessa til­teknu lóð til árs­ins 2027. Á sumum öðrum stöðum í borg­inni þar sem bens­ín­stöðvar munu víkja voru leigu­samn­ingar um lóðir í gildi langt fram eftir öld­inni.[links]

Dagur segir að punkt­arnir sem voru efn­is­lega rangir í frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins hafi verið þær að lóðin „gengi að óbreyttu aftur til borg­ar­innar“ eftir nokkur ár, að byggja eigi á reitnum fimm hæða hús og að Festi væri að fá tvo millj­arða í gjöf.

Borgin hefði þurft að bera kostnað við að fá lóðina til sín

Í svari borg­ar­stjóra til Morg­un­blaðs­ins er þessum þremur punktum svarað efn­is­lega. Hann segir það hafa verið borg­inni í hag að gera þennan samn­ing frekar en að bíða og að í samn­ingum um Ægisíðu 102 hafi verið ákvæði um upp­kaup við lok samn­ings á matsvirði, sem senni­lega hefði hlaupið á hund­ruðum millj­óna.

Borgin hefði því ekki ein­fald­lega fengið lóð­ina aftur ókeypis í hend­urnar eins og sagði í frétt Morg­un­blaðs­ins, heldur hefði hún þurft að bera kostnað sem gæti að sögn borg­ar­stjóra verið um 300-400 millj­ónir miðað við mark­aðs­verð atvinnu­hús­næðis og að við það bæt­ist kostn­aður við nið­ur­rif og hreinsun lóð­ar­innar, sem hefði getað orðið 100-200 millj­ónir króna að sögn Dags.

„Ljóst er því að sam­þykkja hefði þurft mikið bygg­ing­ar­magn til að ná þessum kostn­aði til baka. Hags­munir borg­ar­innar voru því betur tryggðir með því að ná samn­ingum, fækka bens­ín­stöðvum innan hverf­is­ins og flýta upp­bygg­ingu íbúða og hverfistengdrar þjón­ustu í hennar stað,“ segir í svari borg­ar­stjóra um þennan punkt.

Minni verðmæti í byggingaréttinum en slegið var fram

Varðandi þann punkt í frétt Morg­un­blaðs­ins um að verið sé að færa Festi í hendur bygg­ing­ar­rétt sem geti numið um tveimur millj­örðum segir Dagur að þær tölur séu „tómur skáld­skapur,“ enda sé eng­inn hafður fyrir þeim.

„Ef tveim millj­örðum er deilt á 50 íbúðir reikn­ast verð­mæti bygg­ing­ar­rétt­ar­ins á 40 millj­ónir á hverja íbúð sem er óbyggð og eftir að greiða gatna­gerð­ar­gjöld og bygg­inga­kostnað. Slík verð hafa hvergi sést á Íslandi og eru víðs fjarri veru­leik­anum. Morg­un­blaðið verður að vanda sig miklu betur í sínum frétta­flutn­ingi en ekki slá slíku fram. Í mál­inu liggur fyrir vilji til að þróa byggð á reitnum en engin stað­fest bygg­ing­ar­á­form liggja fyrir um þessa til­teknu lóð. Í samn­ingnum er kveðið á um upp­bygg­ingu upp á 2-4 hæðir. Það er ljóst að hún þarf að falla vel að þeirri byggð sem fyrir er,“ segir í svari Dags til Morg­un­blaðs­ins.

Fimm hæðir og undir lægsti flokkurinn í aðalskipulagi

Varðandi þann punkt í frétt Morg­un­blaðs­ins að til standi að byggja allt að fimm hæða hús á lóð­inni, en lóðin er í þeim hæð­ar­flokki í nýlega breyttu aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar, bendir Dagur á það í svari sínu að það sé lægsti hæð­ar­flokk­ur­inn í aðal­skipu­lagi borg­ar­innar.

„Í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur eru þrír hæð­ar­flokkar. Fimm hæðir og undir, fimm til átta hæðir og níu hæðir og yfir. Eðlilegt í ljósi stöðu þessa reits er að hann færi í neðsta flokk­inn, þ.e.a.s. undir fimm hæðum. Það gefur þó ekki fyr­ir­heit um að heim­ilt sé að byggja fimm hæðir enda hefur alltaf verið rætt um 2-4 hæðir sem kall­ast á við önnur hús í göt­unni. End­an­legar hæðir húsa eru ákveðnar í deiliskipu­lagi,“ segir í svari borg­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár