Katrín styður ekki uppkosningu í Norðvesturkjördæmi

Katrín Jak­obs­dóttir hyggst greiða atkvæði með því að öll útgefin kjör­bréf verði stað­fest og er ekki á sama máli og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, sem mælti fyrir upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi á þing­inu í dag.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í kvöld­fréttum RÚV að hún myndi greiða atkvæði með til­lögu meiri­hluta kjör­bréfa­nefndar, sem felur í sér að öll kjör­bréf verði stað­fest. Atkvæða­greiðsla um hefst á Alþingi kl. 20 í kvöld.[links]

Katrín styður þannig ekki til­lögu full­trúa Vinstri grænna í kjör­bréfa­nefnd­inni, Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Sú til­laga felur í sér að ein­ungis 47 kjör­bréf verði stað­fest og gripið verði til upp­kosn­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

„Það liggur auð­vitað fyrir að þetta er ekki ein­falt úrlausn­ar­efni sem blasir við Alþingi,“ sagði Katrín við RÚV í kvöld og bætti svo hún að ann­mark­arnir á fram­kvæmd kosn­inga í NV-kjör­dæmi hefðu ekki verið nægi­legir til að ógilda kosn­ing­una sem fram fór 25. sept­em­ber.

[adspot]

„Ég mun greiða atkvæði með því að stað­festa öll kjör­bréf og ég geri það því ég tel að það þurfi að leiða mjög sterkar líkur að því að þetta hafi haft áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga,“ sagði Katrín.

Hún sagð­ist hafa vonir um það að þegar nið­ur­staða þessa máls lægi fyrir yrði mjög fljót­lega hægt að kynna áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár