Milljónir barna í hættu vegna lélegra loftgæða

Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna varar við auk­inni mengun en gríð­ar­legur fjöldi barna verður fyrir skaða af völdum hennar út um allan heim á degi hverjum.

Mynd tekin að morgni í nóvember 2017 í Nýju-Delhi á Indlandi.
Mynd tekin að morgni í nóv­em­ber 2017 í Nýju-Delhi á Indlandi. Mynd: EPA

Sautján milljón börn undir eins árs aldri anda að sér meng­uðu lofti og þar af leið­andi er þroska heil­ans stofnað í hættu, sam­kvæmt Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Mengun hefur mest áhrif á börn í Suður-Asíu en meira en tólf milljón barna búa á svæðum þar sem mengun er sex sinnum hærri en öruggt þykir. Fjórar millj­ónir barna eru í áhættu­hópi í Austur-Asíu og Kyrra­hafs­eyj­unum.

Frá þessu er greint í frétt BBC í vik­unni.

Samkvæmt sam­tök­unum Unicef getur svifryks­mengun haft slæm áhrif á heila­vef og dregið úr vits­muna­þroska. Í skýrslu á vegum sam­tak­anna kemur fram að mengun hafi áhrif á greind­ar­vísi­tölu í orð­uðu og óorð­uðu sam­hengi, valdi slak­ari útkomu á prófum, lækki með­al­ein­kunnir grunn­skóla­barna auk þess að valda öðrum tauga­tengdum hegð­un­ar­vanda­málum. Áhrifin eru var­an­leg og end­ast alla ævi, segir í skýrsl­unni.

Hættuástand í Delhi á Indlandi

Mikil mengun er alla­jafna í Delhi á Indlandi og greinir BBC frá því að um hættu­á­stand sé að ræða. „Eftir því sem heim­ur­inn verður þétt­býlli, án full­nægj­andi varna og aðgerða til að draga úr mengun, þá munu sífellt fleiri börn vera í hættu þegar fram líða stundir,“ segir Unicef.

Samtökin mæla því með að sér­stakar grímur verði not­aðar í rík­ara mæli sem og síur til að hreinsa loftið og að börn ferð­ist síður þegar meng­unin er sem mest.

Ástandið var ein­stak­lega slæmt í höf­uð­borg Indlands, Nýju-Delhi, í nóv­em­ber á þessu ári og lagð­ist þykkt meng­un­ar­ský yfir alla borg­ina. Skólum var lokað og deilur spruttu upp um hvenær ætti að opna þá að nýju. For­eldrar sök­uðu stjórn­völd um að huga ekki nægi­lega vel að heilsu barna í borg­inni.

Fréttir voru fluttar af íþrótta­mönnum að spila krikket á Indlandi og í Sri Lanka sem veikt­ust og ældu í miðjum leik.

Áhrifin víðar

Í Norður-Kína er talið að lífslíkur séu minni vegna meng­unar og að með­al­ævi­lengd sé allt að þremur árum styttri vegna þess. Stjórn­völd þar í landi hafa sam­kvæmt BBC sett fyr­ir­tækjum strang­ari reglur um útblástur en fjöl­miðlar hafa greint frá því að þessar reglur séu iðu­lega virtar að vettugi.

Áhrif meng­unar sjást þó ekki ein­ungis í Asíu því sam­kvæmt rann­sóknum í breskum borgum þá eykur mikil mengun líkur á ung­barna­dauða og sjúk­dómum sem koma í ljós síðar á ævinni.

Fylgst með loftgæðum á Íslandi

Á vef­síðu Veð­ur­stofu Íslands segir að fyrir utan að fylgj­ast með veðri og lofts­lagi standi hún að marg­vís­legri umhverf­is­vöktun annarri, einkum varð­andi meng­un­ar­efni sem eru langt að komin. Sýnum er safnað á svoköll­uðum bak­grunns­stöðvum, fjarri þétt­býli og öðrum stað­bundnum upp­sprettum meng­unar.

Daglegar mæl­ingar á brenni­steini í úrkomu, and­rúms­lofti og svifryki eru kost­aðar af Veð­ur­stof­unni. Mælingar á þung­málmum og þrá­virkum líf­rænum efnum í lofti og úrkomu eru kost­aðar af alþjóðafé.

Umhverf­is­stofnun vaktar loft­gæði á Íslandi og eru nið­ur­stöður mæl­inga birtar nán­ast í raun­tíma á vefnum. Einnig fylgist heil­brigð­is­eft­ir­litið með loft­gæð­unum í Reykja­vík og gefur út við­var­anir ef þörf er á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár