Forsætisráðherra vill skoða þrepaskipt fjármagnstekjuskattskerfi

Til þess að gera skatt­kerfið rétt­lát­ara mætti taka til skoð­unar að koma á þrepa­skiptu fjár­magnstekju­skatts­kerfi á Íslandi, sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er hún svar­aði spurn­ingu um málið á Facebook.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur vert að skoða þrepaskipt fjármagnstekjuskattskerfi.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur vert að skoða þrepa­skipt fjár­magnstekju­skatts­kerfi. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að á næsta kjör­tíma­bili eigi að skoða „mjög vel“ hvort taka skuli upp þrepa­skipt fjár­magnstekju­skatts­kerfi á Íslandi. Þetta sagði hún í svo­kall­aðri beinni línu á Facebook-síðu sinni í hádeg­inu í dag.

Þar var hún spurð að því hvernig, að hennar mati, hægt væri að gera skatt­kerfið sann­gjarn­ara. Hún sagði að á þessu kjör­tíma­bili hefði verið tekið mik­il­vægt skref er þrepa­skipt tekju­skatts­kerfi var aftur tekið upp, en snemma á árinu 2019 var sam­þykkt að bæta einu þrepi við tekju­skatts­kerfið.

Það sagði hún algjört lyk­il­at­riði til að tryggja auk­inn jöfnuð í sam­fé­lag­inu og rétt­lát­ara skatt­kerfi, þannig að þau sem hafa lægri tekjur greiði hlut­falls­lega minna en þau sem hafa hærri tekjur.

„Mér finnst að sömu hugsun eigi að beita þegar við horfum á aðra hluta skatt­kerf­is­ins og ég held að það væri skyn­sam­legt að taka upp skoðun á fjár­magnstekju­skatts­kerfi Norð­ur­landa ann­ars vegar og fjár­magnstekju­skatts­kerf­inu á Íslandi. Við auð­vitað hækk­uðum fjár­magnstekju­skatt­inn á þessu tíma­bili, en hækk­uðum líka frí­tekju­markið, og þá þarf að huga að því, viljum við færa okkur lengra inn í eitt­hvert þrepa­skipt kerfi á því sviði. Þetta tel ég að eigi að skoða mjög vel á næsta kjör­tíma­bili,“ sagði Katrín.

[adspot]

Í dag greiða ein­stak­lingar 22 pró­sent tekju­skatt af fjár­magnstekjum sem ekki stafa af atvinnu­rekstri, en fjár­magnstekjum má skipta í fjóra flokka; arð, leigu­tekjur, sölu­hagnað og vaxta­tekjur.

Kjarninn sagði frá því í vor að árið 2019 hefði tekju­hæsta 1 pró­sent lands­manna tekið til sín næstum helm­ing allra fjár­magnstekna sem urðu til á Íslandi það ár, eða 44,5 pró­sent. Þetta kom fram í umfjöllun Páls Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ings í Tíund, frétta­bréfi Skatts­ins.

Í umfjöllun Páls í Tíund var bent á að þeir allra tekju­hæstu á Íslandi eru með lægri skatt­byrði en þeir sem standa þeim næst í tekju­stig­anum.

Þar sagði orð­rétt: „Ástæða þess að skatt­byrði tekju­hæsta eina pró­sents lands­manna er lægri en skatt­byrði tekju­hæstu fimm pró­sent­anna er sú að fjár­magnstekjur vega þyngra í tekjum þeirra sem eru tekju­hærri á hverjum tíma en skattur af fjár­magnstekjum var 22 pró­sent en stað­greiðsla tekju­skatts og útsvars af launum, líf­eyri og trygg­inga­bótum yfir 11.125 þús. kr. var 46,24 pró­sent.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár