Sigmundur Davíð svaraði spurningum í Alþingi

Fundi á Alþingi er lokið og búið er að aflýsa þing­fundi sem átti að vera á morgun. Kjarninn heldur áfram að fylgj­ast með gangi mála í Wintris-mál­inu.

20:00 - Beinni útsendingu lokið í bili

Ég þakka fyrir sam­fylgd­ina í þess­ari fimm klukku­stunda beinu lýs­ingu í dag. Við höldum þó áfram umfjöllun okkar um þessi mál og verðum aftur með beina lýs­ingu á morgun.

19:48 - Varla til sú manneskja sem sér meira eftir Wintris en Sigmundur

Sig­mundur Davíð segir varla til þá mann­eskju á Íslandi sem sjái meira eftir því að félagið Wintris, sem er með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, hafi verið stofnað utan um eignir eig­in­konu hans, nema mögu­lega eig­in­konan sjálf. Það sé sjálf­sagt að biðj­ast afsök­unar á því að til félags­ins hafi verið stofnað með þessum hætti. Þetta sagði hann í Íslandi í dag.

19:40 - Ritari Sjálfstæðisflokksins tekur undir með Bjarna

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hún taki undir með Bjarna Bene­dikts­syni for­manni flokks­ins. „Mér finnst aug­ljóst að málið er alvar­legt og það verður að hlusta á við­brögð fólks við þætt­inum í gær. Við sjálf­stæð­is­menn tökum þessum málum af fullri alvöru.“

19:39 - Enn nokkur fjöldi á Austurvelli

Þótt form­legum mót­mælum sé lokið er enn nokkur fjöldi fólks á Aust­ur­velli.

19:21 - Forsætisráðherra Svíþjóðar segir að sambærileg staða væri ótæk þar

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar Stefan Löfven, segir að þar í landi þætti ótækt að flækj­ast í hneyksl­is­mál svipuð þeim sem nú skekja íslenskt sam­fé­lag. Hann segir að Íslend­ingar verði sjálfir að ákveða hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sitji áfram í stóli for­sæt­is­ráð­herra. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

19:13 - Fjallað um mótmælin í fjölmiðlum víða um heim

19:07 - Kann að vera að það sé tímabært að birta skattaskýrslur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði að það gæti verið tíma­bært að birta skatta­skýrslur sínar og konu sinnar, þótt það sé til mik­ils að ætl­ast af henni að gera slíkt. Þetta kom fram í við­tali við hann á Stöð 2.

19:00 - 27 þúsund manns hafa skrifað undir gegn Sigmundi Davíð

Rúmlega 27.300 manns hafa skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segi af sér.

[adspot]

18:49 - Forsætisráðherra nýtur stuðnings eins og staðan er í dag

Þetta sagði Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hann sagði þó ekki hægt að líta fram­hjá því hvernig hljóðið er í fram­sókn­ar­mönnum um allt land og í mót­mæl­endum á Aust­ur­velli.

18:43 - Ekki augljóst að stjórnin haldi áfram

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir ekki aug­ljóst að rík­is­stjórnin hafi umboð til þess að halda áfram. Hann ætlar að hitta for­sæt­is­ráð­herra í fyrra­málið. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir stöð­una alvar­lega. Þetta kemur fram í við­tölum Kjarnans við þá, sem Sunna Val­gerð­ar­dóttir tók nú fyrir skömmu.

18:19 - Lekagögnin ítarlegri en gögn skattrannsóknarstjóra

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir gögnin sem fjallað var um í Kast­ljósi í gær að ein­hverju leyti þau sömu og emb­ættið keypti á sínum tíma, þó virð­ist sem leka­gögnin séu eitt­hvað ítar­legri. Þetta kemur fram á vef RÚV.

18:09 - Aldrei annar eins fjöldi á Austurvelli

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur aldrei séð annan eins mann­fjölda sam­an­kom­inn til mót­mæla og nú er á Aust­ur­velli. Ekki einu sinni í mót­mæl­unum í hrun­inu. Ómögu­legt sé að slá á mann­fjöld­ann auk þess sem fólk streymi enn í bæinn. Þetta kemur fram á RÚV. Sjá má á með­fylgj­andi mynd að fólk er ekki bara á Aust­ur­velli heldur út allt Póst­hús­stræti.

18:04 - Búið að afboða þingfund á morgun

Enginn þing­fundur verður hald­inn á morgun og lík­lega ekki fyrr en van­traust­s­til­laga á rík­is­stjórn­ina verður tekin á dag­skrá. Þetta stað­festu Svandís Svav­ars­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir, þing­menn VG, við mig rétt í þessu. Ekki er komið á hreint hvenær af því verður, en lík­lega á mið­viku­dag eða fimmtu­dag. 

17:50 - Varðstjóri aldrei séð eins marga safnast saman á stuttum tíma

Arnar Rúnar Mart­eins­son, varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir í sam­tali við Vísi að hann hefði aldrei séð jafn­mik­inn fjölda fólks safn­ast saman á svo skömmum tíma og á Aust­ur­velli í dag. Hann segir umferð í átt að mið­borg­inni gríð­ar­lega mikla, og það sé bíll við bíl á Sæbraut­inni frá Kringlu­mýr­ar­braut. Mikill hiti sé í mann­skapnum en allt hafi hingað til farið vel fram. Eins og sjá má hér að neðan er þó eitt­hvað um að fólk kasti mat­vælum í þing­húsið.

17:47 - Myndband frá mótmælunum

17:45 - Þingfundi slitið

Búið er að slíta þing­fund­inum. Sagt er að fólk streymi enn á Aust­ur­völl og við munum halda áfram umfjöllun okkar um mót­mælin og málið allt. Innan skamms birtir Kjarninn við­töl við þing­menn.

17:33 - Bjarni segir Sigmund í mjög þröngri stöðu

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála-og efna­hags­ráð­herra, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, sé í þröngri stöðu og rík­is­stjórnin um leið vegna opin­ber­unar á eignum íslenskra ráða­manna í aflands­fé­lögum og málum sem því tengj­ast. Bjarni svarar því ekki hvort hann styðji for­sæt­is­ráð­herra til að sitja áfram. Það þurfi að setj­ast yfir það hvort rík­is­stjórnin hafi nægj­an­legan stuðn­ing og hvort rík­is­stjórnin treysti sér til að halda áfram, eftir atvikum eftir „ákveðnar ráð­staf­anir“. „Ég ætla ekk­ert að leyna því að það er það sem við erum að ræða. Hvort við höfum styrk til að halda áfram,“ sagði Bjarni.

Greint er nánar frá ummælum Bjarna hér. 

17:29 - Enn streymir fólk á Austurvöll

Frétta­menn sem eru á Aust­ur­velli hafa greint frá því að enn streymi fólk á Aust­ur­völl. Það er þung umferð í vest­ur­átt, sem er mjög óvenju­legt á þessum tíma dags, þegar umferðin er venju­lega í hina átt­ina. Eins og sést á mynd­inni hér að neðan er Aust­ur­völlur troð­fullur af fólki.

17:24 - Bjallan ómar

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar halda áfram að ræða um málið undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Þær ræður eru nokkuð stuttar og Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, var komin langt fram úr sínum tíma. Einar K. Guð­finns­son sló í bjöllu sína nokkuð oft en þá spurði Birgitta hvers vegna hún ætti að virða þing­sköp þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kæm­ist upp með það að tala við þjóð­ina með með lygum og lýð­skrumi.

17:12 - Talsmaður Indefence will að Sigmundur Davíð víki

Ólafur Elíasson, einn tals­manna InDefence hóps­ins, telur for­sæt­is­ráð­herra eiga að segja af sér. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, barð­ist með InDefence hópnum á móti hryðju­verka­lögum Breta á sínum tíma, hann var kom­inn á þing þegar hóp­ur­inn fór fram vegna Icesave. Þetta kemur fram á vef RÚV.

17:07 - Mótmælin í beinni

Hér má fylgj­ast með mót­mæl­unum á Aust­ur­velli í beinni útsend­ingu.

17:03 - „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skattaskjóli“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað biðj­ast afsök­unar á þeim upp­lýs­ingum sem komið hafa fram vegna eignar hans og eig­in­konu hans á félagi skráð til heim­ilis á aflandseyj­unni Tortóla, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­unum. „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skatta­skjóli,“ sagði hann í svari við einni fyr­ir­spurn­inni í þing­inu í dag. Þórður Snær Júl­í­us­son hefur tekið saman frétt um það sem Sig­mundur sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma.

[adspot]

16:58 - Bara tveir stjórnarþingmenn í salnum

Björt Ólafs­dóttir þing­maður Bjartrar fram­tíðar bendir á að aðeins tveir stjórn­ar­þing­menn séu eftir í þingsalnum Þetta eru þeir Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Haraldur Ein­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hér að neðan má sjá mynd af Jóni fyrir skömmu.

16:53 - Forsætisráðherrahjónin sögðu bara frá nauðbeygð

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG, segir að for­sæt­is­ráð­herra­hjónin hafi ekki sagt frá nokkrum hlut fyrr en þau voru nauð­beygð til þess.

16:50 - Mótmæli komin á fullt

Mótmælin gegn rík­is­stjórn­inni eiga að hefj­ast klukkan fimm en miðað við fjöld­ann og lætin fyrir utan þingið eru þau löngu hafin.

16:44 - Sigmundur er farinn úr þingsalnum

Og um leið og óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma lauk á Alþingi fór Sig­mundur Davíð úr þingsalnum. Búið er að taka önnur mál af dag­skrá þings­ins en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa haf­ist handa við að halda ræður undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta á ný.

Allir hinir ráð­herr­arnir sem hér sátu í þingsalnum eru farnir, en Eygló Harð­ar­dóttir stendur enn og hlustar á ræður stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna.

16:41 - Listi yfir lágskattasvæði

Til upp­lýs­ingar má sjá hér á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins lista yfir þau svæði sem telj­ast lág­skatta­svæði að mati rík­is­ins. Þar eru Bresku jóm­frú­ar­eyj­arnar.

16:37 - Ætlar hann í alvöru að segja við heiminn að Tortóla sé ekki skattaskjól?

Að þessu spyr Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Helgi á síð­ustu fyr­ir­spurn­ina í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma. Sig­mundur segir hér í annað sinn að Svíþjóð sé iðu­lega nefnt sem skatta­skjól, og notar það sem rök fyrir því að félagið Wintris hafi aldrei verið í skatta­skjóli.

16:32 - Sigmundur segir ekki mikið nýtt

Nú hafa Árni Páll, Katrín Jak­obs­dóttir, Óttarr Proppé og Helgi Hrafn Gunn­ars­son öll spurt Sigmund Davíð um málið. Það verður að segj­ast eins og er að for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki sagt mikið nýtt í þessum fyr­ir­spurnum. Það er ein fyr­ir­spurn eftir. Hann segir að það sé ákaf­lega mik­il­vægt að veita réttar upp­lýs­ingar og það hafi hann gert.

16:30 - Dauðastríð ríkisstjórnarinnar

Rík­is­stjórnin hangir ekki aðeins á blá­þræði, heldur virð­ist aðeins krafta­verk geta bjargað lífi hennar úr þessu. Ástæðan er veik staða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, eftir afhjúpun í Kast­ljósi RÚV í gær, þar sem félagið Wintris Inc. var í for­grunni en það er skráð á Tortóla, eins og marg hefur verið rakið að und­an­förnu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er mikil og almenn óánægja innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með stöðu Sig­mundar Davíðs, og ekki síst þann ímynd­ar­skaða sem hann hefði valdið þjóð­inni, með fram­göngu sinni í þætt­inum í gær. 

Ítarleg frétta­skýr­ing Magnúsar Hall­dórs­sonar um stöðu mála er hér.

16:25 - Farið að heyrast í mótmælunum

Nú er farið að heyr­ast í mót­mæl­endum hér inni í þing­sal. Bæði trommu­sláttur og sírenu­væl heyr­ist mjög vel hingað inn, og út um glugg­ann má sjá að það er farið að fjölga á Aust­ur­velli. Á átt­unda tug erlendra sjón­varps­stöðva hafa óskað eftir því að fá að taka á móti útsend­ingu RÚV af mót­mælum fyrir utan Alþing­is­húsið sem hefj­ast form­lega klukkan 17 í dag. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá tækni­deild RÚV. Lesa má nánar um það mál hér.

16:24 - Myndir af pöllunum

Hér má sjá ýmsar myndir af pöllum Alþingis.

16:16 - Sigmundur svarar ekki hvort hann ætli að hætta eða hvort hann skammist sín

Árni Páll spyr hvort Sig­mundur ætli að horfast í augu við veru­leik­ann og biðja þjóð­ina afsök­unar, og bætir því við í seinni fyr­ir­spurn hvort hann skammist sín ekki. Hann segir að honum þyki eng­inn sómi að því að Sig­mundur leiti sér skjóls í skatta­skjóli eða á bak við konu sína. Þetta snú­ist um hans ákvarð­anir, upp­lýs­ingar sem hann hafi leynt og lög sem hann hafi í besta falli gengið á svig við.

Sig­mundur ræddi allan tím­ann um skatta­mál og skatta­skjól. Hann ítrek­aði að alltaf hefðu verið greiddir skattar, og að þau hjón ættu ekki pen­inga í skatta­skjóli þess vegna. „Við hljótum öll að vilja ræða málið af yfir­vegun, heið­ar­leika og skyn­semi,“ sagði hann.

16:13 - Óundirbúnar fyrirspurnir hefjast

Sig­mundur er kom­inn aftur í sal­inn og óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir hefj­ast. Fyrstur er Árni Páll Árnason.

16:07 - Ekkert getur orðið eins og áður

Það falla áfram mjög þung orð hér í þingsalnum. Helgi Hjörvar og Steinunn Þóra Árna­dóttir hafa bæði sagt að málið verði ekki þagað í hel. Björt Ólafs­dóttir segir þing­fund­inn eins og með­virkn­is­sam­komu og það gangi ekki lengur. Enginn stjórn­ar­liði hafi komið upp og sagt sína skoðun, það sé von­andi merki um að fólk sé að hugsa sig um, því ann­ars „getum við bara hætt þessu, þetta er skrípa­leikur.“ Íslenska þjóðin eigi betra skilið. Oddný Harð­ar­dóttir segir að ekk­ert geti orðið eins og áður í íslenskum stjórn­málum.

16:04 - Sigmundur bregður sér frá

Sig­mundur Davíð var að bregða sér úr þingsalnum, eftir að hann spurði for­seta þings­ins hversu margir þing­menn ættu eftir að kveða sér hljóðs undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Hann fékk svarið fimm þing­menn.

15:59 - Við sættum okkur ekki við að búa í svo spilltu landi

„Herra for­seti, hér er ekki funda­fært“ segir Sigríður Ingi­björg. „Við sættum okkur ekki við að búa í svo spilltu landi.“ Það þurfi að boða til kosn­inga og slíta þing­inu.

15:53 - Frægasti fjárglæframaður heims

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði að Íslend­ingar ættu um þessar mundir fræg­asta fjár­glæfram­ann heims­ins í for­sæt­is­ráð­herra. Hann væri á for­síðum fjöl­miðla um allan heim. Við þessi orð leit Sig­mundur Davíð upp úr skrifum sínum og á Einar K. Guð­finns­son, for­seta þings­ins, sem brást við með því að biðja þing­menn að vera ekki með svig­ur­mæli í ræðum sínum. Róbert Marshall, sam­flokks­maður Guð­mundar, var næstur í ræðu­stól og fann að þessu. Hann sagði for­sæt­is­ráð­herra hafa orðið upp­vísan að lygum í sjón­varpi, en verið væri að biðja aðra þing­menn um að gæta orða sinna.

15:52 - „Þeirra er skömmin“

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður VG, lauk sinni síð­ustu ræðu á því að ávarpa stjórn­ar­meiri­hlut­ann og sagði: „Þeirra er skömmin.“ Margir félagar hennar köll­uðu þá „heyr, heyr.“ Þau orð heyr­ast nokkuð oft hér í þing­inu í dag.

15:49 - Hvað eruð þið að hugsa?

Árni Páll Árnason beinir nú orðum sínum til stjórn­ar­liða. Hann spyr hvort þeim finn­ist staða mála í alvör­unni í lagi og spyr hvað stjórn­ar­liðar séu að hugsa. „Ætlið þið ekki að standa með þjóð­inni? Við bíðum svars.“

15:46 - Twitter á fullu og mikið álag á vef Alþingis

Það virð­ist vera mikið álag á vef Alþingis, að minnsta kosti kemst blaða­maður ekki inn á vef­inn. Það er kannski til marks um áhug­ann á þess­ari umræðu sem hér fer fram. Twitter virð­ist vera að fylgj­ast vel með gangi mála eins og svo oft.

15:40 - Búið að niðurlægja heila þjóð

Það er búið að nið­ur­lægja heila þjóð.“ segir Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar. „For­sæt­is­ráð­herra hefur ákveðið, með því að segja okkur ekki satt, með því að eiga pen­inga í skatta­skjólum, með því að koma sér áfram án þess að segja sann­leik­ann, þá hefur hann nið­ur­lægt okkur.“

15:36 - „Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segðu af þér“

Birgitta Jóns­dóttir var að enda við að segja þessi orð hér að ofan. Hún var komin í ræðu­stól Alþingis í annað sinn. Áður hafði flokks­systir hennar, Ásta Guðrún Helga­dóttir, sagt það sama og spurt hvort Sig­mundur Davíð hefði enga sóma­kennd.

15:33 - Vantrauststillagan komin fram

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um van­traust á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hans, þing­rof og nýjar kosn­ingar hefur verið lögð fram. Í henni stendur: „Alþingi ályktar að lýsa van­trausti á for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hans. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið og efnt til almennra þing­kosn­inga svo ­fljótt sem við verður komið." Lestu frétt Kjarnans um van­traust­s­til­lög­una hér.

15:31 - Enn enginn stjórnarliði tekið til máls

Það er góð mæt­ing meðal þing­manna í þingsalnum. Enn er verið að ræða málin undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta, en eng­inn stjórn­ar­liði hefur enn kveðið sér hljóðs. Þeir virð­ast ekki sér­stak­lega áfjáðir í það heldur.

15:24 - „Icesave“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, er kom­inn í ræðu­stól­inn og hafði ekki talað lengi um að málið væri eitt það alvar­leg­asta í sög­unni þegar Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, kall­aði fram í „Icesave“.

15:20 - Rafmagnað andrúmsloft í þingsalnum

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar eru greini­lega búnir að stilla saman strengi sína á fund­inum í morgun. Þeir koma hér upp hver á fætur öðrum undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta, svo að dag­skrá þings­ins er form­lega ekki hafin enn. Þetta gengur vænt­an­lega svona áfram um ein­hverja stund.

Þing­pall­arnir eru lok­aðir fyrir almenn­ingi eins og oft þegar mót­mæli hafa verið boðuð fyrir utan. Það þýðir þó ekki að þeir séu tómir, því þeir eru nýttir fyrir þá fjölda­mörgu blaða- og frétta­menn sem hér eru til að fylgj­ast með.

15:15 - „Þetta er grafalvarleg stjórnarkreppa“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri Grænna, er næst í ræðu­stól. Hún segir að það hefði verið eðli­legt að Sig­mundur Davíð hefði komið sjálfur fram með skýr­ingar á mál­inu. „Kannski er orðið of seint fyrir skýr­ingar,“ segir hún svo, eftir Kast­ljós­þátt­inn í gær. „Það eru þung skref að ganga til þings í dag. Íslensk stjórn­völd eru í alvar­legri kreppu,“ segir Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, í sinni fyrstu ræðu. Á eftir honum kemur Birgitta Jóns­dóttir, kafteinn Pírata, og tekur í sama streng og hinir leið­togar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. „Ég verð að segja að það er mér til mik­illa von­brigða að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki nú þegar lýst því yfir að hann hygg­ist segja af sér.“

15:10 - Fundurinn hafinn

Fyrstur í ræðu­stól Alþingis er Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann lýsir yfir undrun sinni á dag­skrá þings­ins í dag. Eðlilegt hefði verið að þing­fundur hæf­ist á skýrslu Sig­mundar Davíðs um þessi stóral­var­legu mál sem nú séu uppi.

Fundur að hefjast

Þing­fund­ur­inn er að hefj­ast, en hann hefst á því að þing­menn minn­ast lát­ins þing­manns, Stefáns Gunn­laugs­sonar. Að því loknu verður gert stutt hlé á þing­fundi áður en óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir hefj­ast.

Heimdallur lýsir yfir vantrausti

Heimdallur, félag ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, hefur lýst yfir van­trausti á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vegna þeirra upp­lýs­inga sem hafa komið fram um eign­ar­hald hans á félagi í skatta­skjóli á Bresku Jóm­frú­areyjum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þeim. Þar segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi haldið upp­lýs­ing­unum leyndum og sagt ósatt um þær. „Alvar­leiki máls­ins er slíkur að honum er ekki sætt á stóli for­sæt­is­ráð­herra. Ekki kemur annað til greina en Sig­mundur Davíð segi af sér emb­ætti. Hann hefur nú þegar stór­skaðað íslenska hags­muni. Heimdallur mun ekki styðja rík­is­stjórn undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar." 

Bjarni enn í Flórída

Upp­haf­lega stóð til að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra yrði einnig til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á þing­inu í dag. Seinkun í flugi inn­an­lands í Banda­ríkj­unum varð til þess að hann missti af flug­inu til Íslands í gær­kvöldi. Því er ekki von á honum til lands­ins fyrr en í fyrra­málið. Eins og við greindum frá fyrr í dag segir Bjarni þó að staðan sem upp er komin sé „mjög þung“ fyrir rík­is­stjórn­ina. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort Sig­mundur Davíð sé hæfur til að starfa áfram sem for­sæt­is­ráð­herra.

Velkomin í fréttastraum frá Alþingi

Góðan dag, og vel­komin í þennan beina frétta­straum héðan frá Alþingi. Hér fylgj­umst við með þing­fundi sem hefst klukkan 15 og því sem verður í gangi fyrir utan þing­húsið. Þetta er fyrsti þing­fund­ur­inn í rúmar tvær vikur og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra á að vera til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Fjöldi blaða- og frétta­manna bíður nú í Alþing­is­hús­inu eftir því að þing­fund­ur­inn hefj­ist. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár