Bjarni: Ekki augljóst að ríkisstjórnin haldi áfram

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir ekki aug­ljóst að rík­is­stjórnin hafi umboð til þess að halda áfram. Hann ætlar að hitta for­sæt­is­ráð­herra í fyrra­málið. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir stöð­una alvar­lega.

Bjarni Benediktsson ætlar að hitta Sigmund Davíð í fyrramálið.
Bjarni Bene­dikts­son ætlar að hitta Sigmund Davíð í fyrra­málið. Mynd: Birgir Þór

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir ekki aug­ljóst að rík­is­stjórnin hafi umboð til þess að halda áfram. Hann seg­ist taka stöð­una sem upp er komin mjög alvar­lega. Bjarni seg­ist í sam­tali við Kjarnann ætla að funda með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í fyrra­málið þegar hann kemur til lands­ins. Bjarni er nú staddur erlendis.

Segir ríkisstjórnina í miklum mótbyr

Aðspurður segir Bjarni Sigmund ekk­ert sam­ráð hafa haft við sig um þá ákvörðun sína að segja ekki af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, eins og hann til­kynnti í beinni útsend­ingu í hádeg­inu á Stöð 2 í dag.

„Við höfum ekk­ert verið að ræða þetta neitt sér­stak­lega og ég var ekki með vænt­ingar um að hann myndi vera í miklum sam­skiptum við mig um það,” segir Bjarni.

Spurður hvort hann beri traust til Sig­mundar Davíðs til að leiða rík­is­stjórn­ina áfram segir Bjarni:

„Það er nú þannig með þessar traust- og van­trausts­yf­ir­lýs­ingar að ég vinn ekki þannig að ég láti rukka mig um slíkt í stjórn­ar­sam­starfi. En við tökum þess­ari stöðu alvar­lega og áttum okkur á því að rík­is­stjórnin er í miklum mót­byr. Við ætlum að setj­ast yfir málin og skoða það hvort við teljum að rík­is­stjórnin geti sótt sér þann styrk sem nauð­syn­legur er til að halda áfram. Það er ekki aug­ljóst að svo sé.”

Hefur hlustað eftir sjónarmiðum flokksins í dag

En treystir Bkarni sér til að sitja áfram í rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum?

„Á meðan það sam­starf er, þá sinni ég því. En við þurfum að setj­ast yfir þessa alvar­legu stöðu og velta því fyrir okkur hvort við teljum okkur hafa þann stuðn­ing og sam­stöðu til að sinna hlut­verki okkar,” segir hann. „Það er það sem ég hef verið að ræða við þing­flokk­inn í dag að hlusta eftir þeirra sjón­ar­miðum. Fyrsta verk­efnið á morgun verður að setj­ast niður með samt­arfs­flokknum.”

Bjarni horfði á Kast­ljós­þátt gær­kvöld­ins.

„Ég hef skiln­ing á því að fólk hafi verið slegið yfir þeim meg­in­at­riðum sem komu fram í þætt­inum,” segir hann.

Þingflokksformaður segir stöðuna alvarlega

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sitj­andi þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur undir með for­mann­inum í meg­in­at­riðum. Staðan sé mjög alvar­leg og því sé mik­il­vægt að setj­ast niður sem fyrst og ræða fram­haldið og stað­reyndir máls­ins

„Dagurinn í dag er að kveldi kom­inn og var mjög til­finn­inga­ríkur. Mér fannst Sig­mundur Davíð sýna á sér nýja og mann­legri hlið heldur en oft áður. Nú setj­umst við niður þegar for­mað­ur­inn kemur, því eðli máls­ins sam­kvæmt þá er það for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur mest um þessi mál að segja. Og það er mik­il­vægt að fá hann heim, þó að við höfum verið í góðu sam­bandi við hann á meðan hann hefur verið erlendis í gegn um síma, þá er það ekki það sama,” segir Guð­laugur. „Síðan þarf hann að taka sam­tölin við for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins og meta stöð­una sem upp er komin og taka ákvarð­anir í fram­haldi af því.”

Nauðsynlegt að horfa á verkefnin framundan

Guð­laugur segir nauð­syn­legt að líta til þess að stjórn­mál snú­ist að mestum hluta um traust, og það skipti miklu máli.

„En ég horfi líka á þjóð­ar­hag sem grund­vall­ar­at­riði. Og ég hef ákveðnar áhyggjur af því að það eru stór verk­efni framundan, eins og aflétt­ing hafta, og rík­is­fjár­málin eru ekki komin í höfn og ýmiss önnur verk­efni sem ættu að kom­ast í far­veg í bestri sátt. Við erum ánægð með þann árangur sem hefur náðst, en hann er ekki í höfn. Og það væri æski­legt að hvenær sem kosn­ingar verða, að við myndum ekki skemma fyrir þeirri veg­ferð sem við erum á.”

Vill ekki lýsa yfir trausti

Spurður hvort hann treysti Sigmundi Davíð til þess að leiða rík­is­stjórn­ina áfram segir Guð­laugur:

„Við munum bara fara yfir þau má með for­mann­inum okkar þegar hann kemur heim. Ég ætla bara að vera ein­lægur í því. Mín sam­skipti við Sigmund Davíð hafa alltaf verið mjög góð og hann hefur gert marga góða hluti, bæði í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu. En þetta snýst ekki ein­göngu um það. Og ég er algjör­lega með­vit­aður um að ég er var­kár í yfir­lýs­ingum og það er bara vegna þess að þannig er staðan. Og við viljum ekki taka neinar ákvarð­anir fyrr en for­mað­ur­inn okkar er kom­inn heim og búinn að fara yfir málin með okkur.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár