Bjarni segir Sigmund „í þröngri stöðu“ - Þurfa að ræða hvort stjórnin hafi styrk til að halda áfram

Bjarni Bene­dikts­son ætlar að setj­ast niður með for­sæt­is­ráð­herra þegar hann kemur heim frá Banda­ríkj­unum og ræða fram­tíð rík­is­stjórn­ar­innar. Bjarni svarar því ekki hvort hann styðji for­sæt­is­ráð­herra til að sitja áfram.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála-og efna­hags­ráð­herra, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, sé í þröngri stöðu og rík­is­stjórnin um leið vegna opin­ber­unar á eignum íslenskra ráða­manna í aflands­fé­lögum og málum sem því tengj­ast. Bjarni svarar því ekki hvort hann styðji for­sæt­is­ráð­herra til að sitja áfram. Það þurfi að setj­ast yfir það hvort rík­is­stjórnin hafi nægj­an­legan stuðn­ing og hvort rík­is­stjórnin treysti sér til að halda áfram, eftir atvikum eftir „ákveðnar ráð­staf­anir“. „Ég ætla ekk­ert að leyna því að það er það sem við erum að ræða. Hvort við höfum styrk til að halda áfram,“ sagði Bjarni. Ekki hafi verið tekin ákvörðun um að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í Síð­deg­is­út­varp­inu á Rás 2.

Þar sagði Bjarni að hann skilji að almenn­ingur sé sleg­inn yfir meg­in­efni Kast­ljós­þátt­ar­ins sem sýndur var í gær, og fjall­aði um eignir íslenskra ráða­manna í aflands­fé­lögum. Hann og Sig­mundur Davíð hafi rætt saman einu sinni yfir helg­ina en ekk­ert í dag. Því er ljóst að Sig­mundur Davíð ræddi ekki við Bjarna áður en að hann sagði að hann myndi ekki segja af sér í við­tali við Stöð 2 í hádeg­inu.

Bjarni segir að hann muni þurfa að setj­ast niður með Sigmundi Davíð og fara yfir stöð­una strax og hann kemur heim, en Bjarni er staddur í Banda­ríkj­unum eftir að hafa misst af flugi fyrr í dag. Að sögn Bjarna tekur þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og rík­is­stjórnin það alvar­lega að fólk sé slegið og að und­ir­aldan í þjóð­fé­lag­inu sé þung. „Við skynjum ágæt­lega umræð­una í þjóð­fé­lag­inu.“

Aðspurður um sína stöðu, en félag sem var að hluta til í eigu Bjarna, var einnig til umfjöll­unar í þætt­inum, segir Bjarni að ekk­ert sé óskýrt um hans mál. Þeim við­skiptum sem félagið hafi verið stofnað utan um hafi lokið í nóv­em­ber 2008 og félagið verið sett í afskrán­ing­ar­ferli eftir það. Hann geri sér engu að síður grein fyrir að til­vist þess kalli á skýr­ingar.

Bjarni sagði erfitt að segja annað en að sú nei­kvæða umræða sem Ísland hefur orðið fyrir alþjóð­lega sé skað­leg. Hún sé hins vegar eng­inn endir heldur aðstæður sem bregð­ast þurfi við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár