Heimdallur lýsir yfir vantrausti á Sigmund Davíð

Heimdallur, félag ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, hefur lýst yfir van­trausti á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vegna þeirra upp­lýs­inga sem hafa komið fram um eign­ar­hald hans á félagi í skatta­skjóli á Bresku Jóm­frú­areyjum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þeim. Þar segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi haldið upp­lýs­ing­unum leyndum og sagt ósatt um þær. „Alvar­leiki máls­ins er slíkur að honum er ekki sætt á stóli for­sæt­is­ráð­herra. Ekki kemur annað til greina en Sig­mundur Davíð segi af sér emb­ætti. Hann hefur nú þegar stór­skaðað íslenska hags­muni. Heimdallur mun ekki styðja rík­is­stjórn undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar."

Fyrr í dag lýstu Ung Vinstri græn yfir að þau teldu að gjá hefði skap­ast á milli stjórn­valda og þjóð­ar­innar og því sé nauð­syn­legt að boða til kosn­inga. „Ung vinstri græn for­dæma hegðun stjórn­valda varð­andi aflands­fé­lög ráð­herra. Rík­is­stjórnin telur að þjóðin hafi engan rétt á að fá upp­lýs­ingar um hvar hags­munir ráð­herra liggja eða hvers vegna þeir ákveða að geyma fjár­muni sína í þekktum skatta­skjólum en reyna þó að telja almenn­ingi trú um að verð­tryggða krónan sé örugg­asti gjald­mið­ill í heimi.

Trún­að­ar­brestur hefur mynd­ast milli þjóðar og stjórn­valda, for­sæt­is­ráð­herr­ann ákvað að engu skipti þó að hann hefði hags­muna að gæta vegna eigna eig­in­konu sinnar á Tortóla þó að í 3. grein stjórn­sýslu­laga komi fram að "Starfs­maður eða nefnd­ar­maður er van­hæfur til með­ferðar máls ef hann er eða hefur verið maki aðila" en for­sæt­is­ráð­herr­ann heldur að umræðan snú­ist ein­ungis um að koma óorði á eig­in­konu sína. Viðbrögð ráð­herra hafa verið hroka­full og sýnt skiln­ings­leysi á stöðu mála. Eftir Kast­ljós­þátt gær­dags­ins er komið í ljós að ráða­menn þessa lands eru ekki hæfir til þess að sitja lengur. Ung vinstri græn telja að gjá hafi mynd­ast milli stjórn­valda og þjóð­ar­innar og því sé nauð­syn­legt að rjúfa þing og boða til kosn­inga. Sig­mundur og Bjarni vin­sam­leg­ast skilið lyklunum".

Ungir jafn­að­ar­menn lýstu yfir van­trausti á for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hans með yfir­lýs­ingu sem send var út í gær. Þar sagði m.a.: „Viðbrögð Sig­mundar Davíðs, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, við þeim alvar­legu athuga­semdum sem rétti­lega hafa verið gerðar við gjörðir hans upp á síðkastið, eru því miður dæmi­gerð fyrir stjórn­ar­hætti hans. Allir sem setja fram efn­is­lega og rök­studda gagn­rýni eru tor­tryggðir og sagðir gera það í ann­ar­legum til­gangi. Er það síst til þess fallið að byggja upp traust og virð­ingu Alþingis og íslenskra stjórn­mála almennt, sem brýn nauð­syn hefur þó verið til allt frá hruni. Vanhæfur for­sæt­is­ráð­herra sem kemur fram af hroka og lætur sín eigin völd ætíð njóta vafans getur aldrei byggt upp traust á milli sín og þjóðar sinnar. Þetta ein­staka mál og við­brögð for­sæt­is­ráð­herr­ans er næg ástæða afsagnar."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár