Kann að vera tímabært að opna fyrir frekari upplýsingar um skattgreiðslur Wintris

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að það kunni að vera tíma­bært að eig­in­kona hans opni fyrir frek­ari upp­lýs­ingar um eignir og skatt­greiðslur aflands­fé­lags­ins Wintris, sem er í hennar eigu. Þetta kom fram í við­tali við hann í Íslandi í dag. Hann hefur ítrekað sagt að allir skattar og gjöld hafi verið greidd á Íslandi vegna þeirra eigna sem eru inni í félag­inu, sem eru erlend verð­bréf.

Sig­mundur Davíð sagði varla til þá mann­eskju á Íslandi sem sjái meira eftir því að félagið Wintris, sem er með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, hafi verið stofnað utan um eignir eig­in­konu hans, nema mögu­lega eig­in­konan sjálf. Það sé sjálf­sagt að biðj­ast afsök­unar á því að til félags­ins hafi verið stofnað með þessum hætti.

Í við­tal­inu sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að hann hefði ekki alltaf verið sáttur við nálgun RÚV í mál­inu en að hann hafi ákveðið að brjóta ákveðið prinsipp í sinni póli­tík með því að fara í við­tal við Frétta­blaðið fyrir páska. Það prinsipp væri að tengja ekki mál­efni eig­in­konu sinnar sínum stjórn­málum. Eftir á að hyggja hefði hann þó átt að svara fyrir Wintris-málið, sem varð opin­berað 14. mars með stöðu­upp­færslu eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Facebook, fyrr en hann gerði. Sú opin­berun átti sér stað í kjöl­far þess að sænskur sjón­varps­maður, í sam­starfi við Reykja­vík Media, spurði Sigmund Davíð út í félagið Wintris í sjón­varps­við­tali föstu­dag­inn 11. mars. Sig­mundur Davíð gekk út úr því við­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár