Dauðastríð ríkisstjórnarinnar - Sigmundur Davíð ætlar ekkert að fara

Fátt virð­ist geta komið í veg fyrir að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar falli, en hann nýtur þó afger­andi stuðn­ings innan þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sjálf­stæð­is­menn eru á öðru máli, og þar gætir vax­andi ólgu og óánægju með stöðu mála.

Rík­is­stjórnin hangir ekki aðeins á blá­þræði, heldur virð­ist aðeins krafta­verk geta bjargað lífi hennar úr þessu, þrátt fyrir að for­sæt­is­ráð­herra sýni engan vilja til að víkja. Ástæðan er veik staða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, eftir afhjúpun í Kast­ljósi RÚV í gær, þar sem félagið Wintris Inc. var í for­grunni en það er skráð á Tortóla, eins og marg hefur verið rakið að und­an­förnu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er mikil og almenn óánægja innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með stöðu Sig­mundar Davíðs, og ekki síst þann ímynd­ar­skaða sem hann hefði valdið þjóð­inni, með fram­göngu sinni í þætt­inum í gær. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í við­tali við mbl.is fyrr í dag að staða rík­is­stjórn­ar­innar „væri mjög þung“.

Áhyggjur af stöðu mála

Á fundi þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrr í dag voru svipuð sjón­mið reifuð; staðan væri afleit og þá sér­stak­lega staða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Þá ræddu þing­menn Sjálf­stæð­is­manna einnig um þær fréttir að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hefði ákveði að flýta ferð sinn heim til Íslands. Í því fælust skila­boð, um að rík­is­stjórnin væri fall­völt. 

Þá væri fjar­vera Bjarna Bene­dikts­sonar, sem missti af flugi til lands­ins, ekki góð þar sem staða mála væri við­kvæm.

Mál Sig­mundar Davíðs er hluti af alþjóð­legri umfjöllun rann­sókn­ar­blaða­manna hjá Reykja­vík Media og ICIJ sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna um aflands­fé­lög og svo­nefnd Panama­skjöl, og hefur það fengið mikla og almenna athygli um alla heim í dag, einkum mynd­bands­brot þar sem hann reynir að ljúga sig út úr aðstæðum þegar sænski rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Sven Bergman spyr út í Wintris.

Heimskastljósið á Sigmundi Davíð

Nær allir helstu fjöl­miðlar heims­ins, þar á meðal breska rík­is­út­varpið

BBC

, The Guardian og allir helstu fjöl­miðlar Norð­ur­land­anna, hafa fjallað um mál­efni Sig­mundar Davíðs og þá stað­reynd að hann og konan hans hafi geymt miklar eignir á Tortóla.

Félagið var í sam­eig­in­legri eigu Sig­mundar Davíðs og Önnu Sig­ur­laugar til 31. des­em­ber 2009, og lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna upp á sam­tals um 500 millj­ónir króna að nafn­virði.

Ólík sýn stjórnarflokkanna

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins fund­aði í morgun með Sigmundi Davíð, og var þar fjallað um þátt­inn í gær­kvöldi og þær upp­lýs­ingar sem þar komu fram. Sig­mundur Davíð ját­aði í hádeg­is­frétta­tíma Stöðvar 2 að hafa staðið sig „ömur­lega“ í við­tali við Sven en hann ætl­aði að sitja áfram. Hann neit­aði með öllu að ræða við RÚV um málið, sem fyrr.

Spennan áþreifanleg

Þess er nú beðið að Bjarni komi til lands­ins, og er stefnt að því að hann fundi með þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðar í dag. Vafa­lítið mun hann eiga alvöru­þrung­inn fund með Sigmundi Davíð um stöðu mála einnig.

Þá gæti staðan skýrst innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hún mun ráða úrslitum um það hvort rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir reyna til þrautar að halda áfram sam­starfi, eða slíta sam­starf­inu og boða til kosn­inga innan skamms. Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna hafa lítið sagt um málið í dag, en Fram­sókn­ar­menn hafa þó gagn­rýnt fram­göngu RÚV eins og síð­ustu tvær vikur, og lét Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, hafa eftir sér orð um „leynig­esti RÚV“, í við­tali við Einar Þor­steins­son frétta­mann, án þess að skýra þau frekar. Hún gekk svo hröðum skrefum til fundar. 

Sjálf­stæð­is­menn hafa hins vegar lítið sem ekk­ert sagt um málið.

Sig­mundur Davíð ítrek­aði nú skömmu eftir fjögur, þegar hann tók til máls í þing­inu, að hann hefði engar eignir átt í skatt­skjóli. Hann hefði ekk­ert rangt gert, og að erlendir fjöl­miðlar hefðu, sumir hverjir – „þeim til hróss“ – tekið það fram að ekk­ert benti til lög­brota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár