Á áttunda tug erlendra sjónvarpsstöðva vilja sýna frá mótmælunum

Búist er við yfir tíu þúsund manns á mótmæli sem fara fram á Austurvelli síðar í dag.
Búist er við yfir tíu þús­und manns á mót­mæli sem fara fram á Aust­ur­velli síðar í dag. Mynd: Hjalti Harðarson

Á átt­unda tug erlendra sjón­varps­stöðva hafa óskað eftir því að fá að taka á móti útsend­ingu RÚV af mót­mælum fyrir utan Alþing­is­húsið sem hefj­ast form­lega klukkan 17 í dag. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá tækni­deild RÚV. Ekki er liggur ljóst fyrir hversu margar sjón­varps­stöðv­anna muni nýta sér útsend­ing­una en ljóst er að erlendur áhugi á þeim atburðum sem eru að eiga sér stað á Íslandi er gríð­ar­legur. Fjöl­margir erlendir blaða- og frétta­menn eru staddir hér­lendis sem stendur í þeim til­gangi að fjalla um aflandseignir íslenskra ráða­manna og þær afleið­ingar sem opin­berun þeirra hefur haft.

Mótmælin verða að öllum lík­indum afar fjöl­menn. Alls hafa yfir tíu þús­und manns boðað komu sína á þau á Facebook-síðu þeirra. Krafan mót­mæl­anna er að boðað verði til kosn­inga strax.

Sér­stakur Kast­ljós­þáttur, sem unnin var í sam­starfi við Reykja­vik Media, var sýndur í gær klukkan 18. Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá Gallup var með­al­á­horf á Kast­ljós­þátt gær­dags­ins 49 pró­sent og upp­safnað áhorf á þátt­inn var 58 pró­sent. Þá var þátt­ur­inn með 92 pró­sent hlut­deild á meðal þeirra sem voru að horfa á sjón­varp á meðan að hann stóð yfir. Inni í þessum tölum eru ekki upp­lýs­ingar um þá sem horfðu á Kast­ljós­þátt­inn á net­inu. Net­um­ferð á vef RÚV tvö­fald­að­ist í gær.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var aðal­um­fjöll­un­ar­efni sér­staks Kast­ljós­þáttar um aflands­fé­laga­eign íslenskra stjórn­mála­manna sem sýndur var í gær. Þar gekk hann meðal ann­ars út úr við­tali við sænska sjón­varps­mann sænska rík­is­sjón­varps­ins og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóra Reykja­vík Media, þegar hann var spurður út í aflands­fé­lagið Wintris. Fjórum dögum eftir að við­talið var tekið opin­ber­aði eig­in­kona Sig­mundar Davíð að hún ætti erlent félag í stöðu­upp­færslu á Facebook. Síðar kom í ljós að Wintris var einnig stór kröfu­hafi í bú allra föllnu bank­anna og að Sig­mundur Davíð var sjálfur eig­andi helm­ings­hlutar í félag­inu þegar þeir kröfum var lýst. Fjallar var um málið í tugum fjöl­miðla út um allan heim í gær. Þeirra á meðal voru BBC, DR, NRK,SVT, The Guardian, Aften­posten, Le Monde og þýska stór­blaðið Sueddeutsche Zeitung, sem leiddi umfjöll­un­ina alþjóð­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár