Sigmundur Davíð: „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skattaskjóli“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað biðj­ast afsök­unar á þeim upp­lýs­ingum sem komið hafa fram vegna eignar hans og eig­in­konu hans á félagi skráð til heim­ilis á aflandseyj­unni Tortóla, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­unum. „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skatta­skjóli,“ sagði hann í svari við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, á Alþingi í dag.

Sig­mundur Davíð hefur ítrekað end­ur­tekið fyrri mál­flutn­ing um að allir skattar hafi verið greiddir vegna félags­ins og að félagið sé í eigu eig­in­konu hans. Þess vegna hafi honum ekki borið að skrá það í hags­muna­skrán­ingu þing­manna. Eig­in­kona hans hafi aldrei leynt þeim eignum sem eru inni í aflands­fé­lag­inu Wintris og aldrei hagn­ast á því að geyma eign­irnar þar. 

Sig­mundur Davíð hefur ekki svarað spurn­ingum um afsögn eða afsök­un­ar­beiðni með beinum hætti það sem af er fyr­ir­spurn­ar­tíma Alþingis, þrátt fyrir að slíkar spurn­ingar hafi verið marg­ít­rekað verið lagðar fram af þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar. Hann hefur heldur ekki svarað spurn­ingum um hvort hann trúi því virki­lega að svör hans séu þess eðlis að þau bæti þann skaða sem orðið hafi vegna alþjóð­legrar umfjöll­unar um mál­efni hans.

Sig­mundur Davíð segir að hann hafi ekki reynt að skýla sér á bak­við konu sína í þessu máli. Eftir á að hyggja hafi hins vegar verið óhjá­kvæmi­legt að ræða fjár­mál hennar fyrr, þótt að hann hafi haft það sem meg­in­stef að ræða ekki hennar mál­efni opin­ber­lega og í tengslum við stjórn­mála­þát­töku hans. Hann hefur ítrekað neitað því að Tortóla sé skatta­skjól. Skil­grein­ing á slíku sé hvort að við­kom­andi land sé nýtt til að fela eignir og kom­ast undan skatt­greiðslum. Það hafi hann aldrei gert.

Á lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er að finna lista yfir þau lönd og svæði sem telj­ast lág­skatta­svæði. Til þess að kom­ast á þann lista þarf­tekju­skattur af hagn­aði félags, sjóðs eða stofn­unar, sem um ræðir, að vera lægri en tveir þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á félagið, sjóð­inn eða stofn­un­ina hefði hún verið heim­il­is­föst á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár