Óska eftir samanburðarskýrslu á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi

Stór hópur þing­manna í stjórn­ar­and­stöð­unni telur að bein tengsl séu á milli þess sem útgerð­irnar telja sig geta greitt og þess sem meiri­hluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt. Nú óska þeir eftir sam­an­burð­ar­at­hugun.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Átján þing­menn hafa óskað eftir því að Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, flytji Alþingi skýrslu um sam­an­burð á greiðslum Samherja fyrir veiði­rétt í Namibíu og á Íslandi á grund­velli upp­lýs­inga frá Fiski­stofu og í þeim skjölum sem RÚV fjall­aði nýlega um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik.

Fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar er Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttur, for­maður Við­reisnar, en með henni eru sautján þing­menn úr Viðreisn, Pírötum, Sam­fylk­ing­unni og þing­manni utan flokka.

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni segir að ákvörðun veiði­gjalda hafi lengi verið ágrein­ings­mál í íslenskum stjórn­málum. Ekki hafi verið meiri­hluti fyrir því að láta gjald fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna ráð­ast á mark­aði þar sem til­tek­inn hluti veiði­heim­ilda yrði ár hvert boð­inn til sölu til ákveð­ins tíma. Þess í stað hafi gjaldið verið ákveðið með lögum, sem sætt hafa reglu­legum breyt­ingum.

Endurgjald fyrir einkaafnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar háð pólitísku mati

„End­ur­gjald fyrir einka­af­not af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar hefur þannig verið háð póli­tísku mati. Það póli­tíska mat hefur aftur í veru­legum atriðum byggst á áliti þeirra hags­muna­að­ila í útgerð sem eru full­trúar þeirra fyr­ir­tækja sem gjaldið greiða. Með öðrum orðum hafa verið bein tengsl á milli þess sem útgerð­irnar hafa talið sig geta greitt og þess sem meiri­hluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þær upp­lýs­ingar sem fram hafi komið í svoköll­uðum Sam­herj­a­skjölum, sem RÚV fjall­aði um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, gefi til­efni til að bera saman hvað eitt af stærstu og áhrifa­rík­ustu fyr­ir­tækj­unum á þessu sviði sé reiðu­búið til að greiða fyrir veiði­rétt á Íslandi og í Namibíu. Eftir yfir­lýs­ingar ráð­herra bæði í fjöl­miðlum og á þingi sé afar ólík­legt að rík­is­stjórnin hafi frum­kvæði að því að kanna þennan mik­il­væga þátt máls­ins til hlítar.

Samanburðarathugunin verði unnin af óháðum aðila

Sam­an­burður af þessu tagi á, sam­kvæmt flutn­ings­mönnum beiðn­innar, að geta stuðlað að mál­efna­legri umræðu um það mat sem ákvörðun veiði­gjalda bygg­ist á.

„Í Sam­herj­a­skjöl­unum kemur fram að greiðsla fyrir veiði­rétt í Namibíu hefur byggst á beinum greiðslum fyrir veiði­rétt og sér­stökum greiðslum til þeirra sem ráðið hafa mestu um úthlutun veiði­rétt­ar­ins.“

Að mati skýrslu­beið­enda færi best á því að sam­an­burð­ar­at­hug­unin verði unnin af óháðum aðila. „Rétt þykir að þeir óháðu aðilar taki heild­ar­fjár­hæð beggja þess­ara þátta með í sam­an­burð­inum. Einnig telja skýrslu­beið­endur æski­legt að sam­ráð verði haft við þing­flokka um þá óháðu aðila sem fengnir verða í þessa þýð­ing­ar­miklu vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár