Stefnir í að frelsi fjölmiðla til að segja fréttir úr dómsal verði skert

Fagfélög blaða- og frétta­manna mót­mæltu bæði harð­lega ákvæði í frum­varpi sem dregur úr heim­ild fjöl­miðla til að greina frá því sem fram fer í dóm­sal. Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar taldi gagn­rýn­ina ekki eiga rétt á sér og styður breyt­ing­una.

Frelsi fjöl­miðla til þess að greina frá því sem fram fer í dóm­sal verður að óbreyttu skert verði frum­varp um ný lög um með­ferð einka­mála sam­þykkt. Breyt­ing­ar­til­laga sem þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum: Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn, lögðu fram í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þess efnis að heim­ilt yrði að hljóð­rita, taka myndir, streyma mynd og hljóði og greina frá því sem sak­born­ingur og vitni skýra frá við skýrslu­töku á meðan á henni stendur, með til­teknum frá­vikum, var felld af meiri­hluta nefnd­ar­innar.

Bæði Blaða­manna­fé­lag Íslands og Félag frétta­manna höfðu lagst ein­dregið gegn því að frum­varpið yrði sam­þykkt óbreytt. Það höfðu báðar sjón­varps­frétta­stofur lands­ins, einnig gert.

[adspot]Sam­kvæmt frum­varp­inu verður sam­tíma­end­ur­sögn af dóms­málum óheimil og ein­ungis dóm­stólum yrði heim­ilt að taka upp hljóð- eða myndefni af þing­haldi. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kom fram að banni við sam­tíma­end­ur­sögn af skýrslu­tökum væri ætlað að treysta réttar­ör­yggi og tryggja þannig að fram­burður vitnis lit­ist ekki af fram­burði þeirra sem þegar hafa gefið skýrslu. Það væri lyk­il­at­riði að skýrslu­gjafi í dóms­máli viti ekki hvað aðrir sem á undan honum komu sögðu.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta nefnd­ar­innar, sem þing­menn stjórn­ar­flokka mynda ásamt nefnd­ar­manni úr Mið­flokknum, segir að meiri­hlut­inn sé þeirrar skoð­unar að ofan­greint mark­mið verð að engu ef vitni getur fylgst með skýrslu­gjöf ann­arra utan dóm­salar í beinni útsend­ingu. „Meiri­hlut­inn telur að þeir hags­munir sem eru í húfi í þessum efnum séu mun veiga­meiri en þeir sem fel­ast í því að unnt verði að greina frá því sem sagt er í skýrslu­tökum í sam­tíma[...]Meiri­hlut­inn telur fram­an­greint ekki brjóta í bága við regl­una um að þing­höld skuli háð í heyranda hljóði, enda er ekki verið að tak­marka mögu­leika fjöl­miðla eða ann­arra til að sækja þing­hald og fylgj­ast með því sem þar fer fram.“

Taldi að læra hefði átt af hruninu

Í umsögn Blaða­manna­fé­lags Íslands um málið kom fram að það legð­ist alfarið gegn ákvæðum „í frum­varp­inu sem varða frek­ari hömlur á fjöl­miðla til að greina frá því sem fram fer í rétt­ar­sölum lands­ins og getur ekki látið hjá líða að lýsa furðu sinni á þessum til­raunum stjórn­valda til að leggja stein í götu þess að þing­hald sé fyrir opnum tjöldum.“

Þar sagði enn fremur: „Dómsmál rata ekki í fréttir nema þau séu frétt­næm og þau eru frétt­næm vegna þess að þau varða mik­il­væga hags­muni í sam­fé­lag­inu í víð­asta sam­hengi. Hags­munum hverra hefði það þjónað ef umfjöllun um svo­nefnd hrun­mál í fjöl­miðlum hefði verið bundin þeim tak­mörk­unum sem greinir í frum­varp­inu? Klárlega ekki hags­munum íslensks almenn­ings sem bar her­kostn­að­inn af van­helgu klíku­sam­bandi við­skipta og stjórn­mála í íslensku sam­fé­lagi! Þegar horft er í bak­sýn­is­speg­il­inn til þessa tíma er það kannski einmitt yfir­gengi­legt sið­leysið sem sker í augun. Ekkert er betur til þess fallið að vinna bug á sið­leysi og klíku­mynd­unum en gagn­sæi og við höfum ekki gagn­sæið ef við leggjum stein í götu um ræð­unnar um fram það sem brýna nauð­syn ber til.“

[adspot]Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar sagði að stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands treysti því og tryði í ljósi þeirrar „hörmu­legu reynslu sem við höfum nýlega af hrun­inu að alþing­is­menn, reynsl­unni rík­ari, láti ekki þessa ósvinnu ná fram að ganga.“

Gegn hagsmunum almennings

Í umsögn Félags frétta­manna, sem margir starfs­menn frétta­stofu RÚV til­heyra, sagði að meg­in­reglan á Íslandi sé sú að rétt­ar­höld, ekki síst í saka­málum, skulu háð í heyranda hljóði og fyrir opnum tjöldum. „Ein grunn­for­senda lýð­ræð­is­legrar umræðu er að almenn­ingur hafi aðgang að réttum upp­lýs­ingum til að geta mótað sér upp­lýstar skoð­anir á mál­efnum líð­andi stundar. Félagið telur það varða hags­muni almenn­ings að koma á fram­færi upp­lýs­ingum um sak­born­inga og afbrot þeirra. Hags­munir almenn­ings eru sér­stak­lega ríkir hvað þetta varðar ef um er að ræða stjórn­mála­menn sem brotið hafa af sér.“

Þá taldi félagið að rökin fyrir áður­nefndum breyt­ingum stæð­ust ekki skoðun. „Ef þeim er ætlað að koma í veg fyrir rétt­ar­spjöll nægir ekki að hindra frétta­flutn­ing af mál­inu. Vitni, sak­born­ingar eða aðrir aðilar máls geta fengið upp­lýs­ingar um það sem fer fram í dóm­sal frá öðrum en fjöl­miðlum. Félag frétta­manna telur að frum­varpið dragi úr getu frétta­stofu RÚV til þess að sinna þeirri lög­bundnu eft­ir­lits­skyldu sinni að veita dóms­kerf­inu aðhald. Dóms­valdið verður að vera sjálf­stætt og varið frá öllum póli­tískum áhrifum. Þar af leið­andi er aðhald fjöl­miðla og almenn­ings lyk­il­at­riði. Öll tak­mörkun á frétta­flutn­ingi af dóms­málum, umfram það sem er nauð­syn krefur þarf því að byggja á sterkum og veiga­miklum rökum.“

Frétta­stofa RÚV skil­aði einnig sér­stakri umsögn, sem Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri skrif­aði undir. Þar sagði m.a. að það skjóti „ skökku við að á sama tíma og stjórn­völd vilja efla tján­ing­ar­frelsið og frelsi fjöl­miðla standi til að hefta mögu­leika fjöl­miðla til að fjalla um dóms­mál og mál­efni dóm­stóla.“ Frétta­stofan lagð­ist ein­dregið gegn því að frum­varpið yrði sam­þykkt með ofan­greindum tak­mörk­unum.

[adspot]Í umsögn frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar var einnig lagst gegn tak­mörk­un­unum og sagt að nær­tækara væri að skoða leiðir til að opna dóm­stól­ana miklu meira fyrir almenn­ingi. „Samkvæmt núgild­andi lögum er bannað að hljóð­rita eða taka myndir í þing­haldi en dóm­ara veitt leyfi til að gera und­an­þágu frá því. Betur færi á því, við breyt­ingar á lög­unum, að leyfa mynda­tökur, og þess vegna hljóð­upp­tökur, nema dóm­ari banni þær sér­stak­lega. Frétta­stofa varar við þeirri við­leitni, sem birt­ist í frum­varp­inu, til þess að loka dóm­stólum frekar fyrir almenn­ingi með því að tefja eða hindra frétta­flutn­ing. Það er ekki almenn­ingi til hags­bóta, grefur undan meg­in­regl­unni um opið rétt­ar­hald og ýtir undir van­traust á rétt­ar­kerf­inu.“

Breytingartillögu hafnað

Minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar tók upp afstöðu fjöl­miðl­anna og fag­fé­laga þeirra. Í áliti hans sagði að umræðan um hvort að tak­marka ætti hljóð­upp­tökur, mynda­tökur og sam­tíma­end­ur­sagnir í dóm­sal væri mjög mik­il­væg. „Þar veg­ast á sjón­ar­mið um réttar­ör­yggi og frið­helgi sak­born­inga, aðstand­enda og vitna ann­ars vegar og mik­il­vægi opin­berrar og gegn­særrar dóm­sýslu og frjálsrar fjöl­miðl­unar í almanna­þágu hins vegar. Á Íslandi er meg­in­reglan sú að upp­tökur í dóm­sal eru bann­aðar en dóm­ara er heim­ilt að veita und­an­þágu frá því banni ef sér­stak­lega stendur á. Með 2. og 18. gr. frum­varps­ins er þessum reglum breytt þannig að óheim­ilt verði að streyma hljóði eða mynd úr þing­haldi eða greina frá því sem sak­born­ingur eða vitni skýrir frá við skýrslu­töku á meðan á henni stendur.“

Þessu lagð­ist minni­hlut­inn gegn og lagði til að frum­varp­inu yrði breytt þannig að sam­tíma­frá­sögn fjöl­miðla úr dóms­sal yrði áfram háð þeim tak­mörk­unum að dóm­ari gæti sér­stak­lega bannað hana ef sér­stak­lega stæði á eða hætta þætti á rétt­ar­spjöllum, í stað þess að bannið yrði almennt.

Þessari breyt­ing­ar­til­lögu var hafnað.

Frum­varpið hefur enn ekki verið afgreitt sem lög en það á eftir að fara til þriðju umræðu áður en af því verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár