Fólk á ferðinni með einkenni

Mik­il­vægt er að fólk haldi sig heima ef það er með COVID-19 ein­kenni, fari í sýna­töku og haldi sig til hlés þar til nið­ur­staða er fengin, sam­kvæmt land­lækni.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir sagði á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag að því miður væru brögð að því að fólk væri á ferð­inni – og jafn­vel á manna­mótum – með ein­kenni sem síðan reynd­ust vera COVID-19.

„Eitt af því mik­il­væg­asta við að kveða niður þessa bylgju er að fólk haldi sig heima ef það er með ein­kenni, fari í sýna­töku og haldi sig til hlés þar til nið­ur­staða er fengin um að ekki sé um COVID að ræða.“

Hún sagði að ein­kennin væru háls­sær­indi, vöðva­verkir, hiti og höf­uð­verkur, hósti, and­þyngsli og slapp­leiki. Sjald­gæfari ein­kenni væru breyt­ingar á bragð- og lykt­ar­skyni, ógleði, upp­köst og nið­ur­gangur.

[links]Rögn­valdur Ólafs­son aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn sagði á blaða­manna­fund­inum að ekki mætti gleyma því að þeir sem hafa verið að veikj­ast væri fólk sem hefði talið sig vera í öruggum aðstæðum – og að ekk­ert hefði verið í umhverf­inu sem gæfi til kynna að COVID væri „á næsta leiti“. Hann benti enn fremur á að sjá mætti gríð­ar­leg dómínóá­hrif af einu smiti, bæði í því hversu margir væru að smit­ast og færu í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár